30.9.01

Haustferð U&B

Það var farið í Hausferð U&B á föstudaginn. Í þetta skiptið var farið á vesturland. Fórum fyrst upp í Borganes að hlusta á það sem þeir hjá Vegagerðinni höfðu að segja. Eftir það var lagt í hann til Stykkishólms. Skoðaðar voru vegaframkvæmdir á leiðinni. Þá var borðað og farið í sund í Stykkishólmi. Stoppað var hjá Loftorku í Borganesi á leiðinni heim.
Eftir þetta allt saman var farið í bæinn, menn voru ekki að endast lengi þar en ég held að ég hafi verið með þeim seinustu sem fórum heim.

22.9.01

VARÚÐ VARÚÐ VARÚÐ

Ekki fara á Artificial Intelligenge. Þvílíka bull og vitleysu hef ég sjaldan séð.

20.9.01

Hannibal

Var að horfa á Hannibal í gær. Var svolítið hæg af stað en hélt samt alltaf athyglinni. Það var ca. ljótasti maður sem ég hef séð í myndinni en hvað með það, Anthony Hopkins var mjög góður og átti setningu aldarinnar í myndinni mjög fyndin.

Annars var líka Dortmund vs. Liverpool í Meistaradeildinni í gær. Mjög bragðdaufur leikur. 0 - 0 jafntelfi.

19.9.01

Liverpool vs. Dortmund

Liverpool á að spila í Meistardeildinni í kvöld við Dortmund, það verður King Carragher sem tekur Koller í bakaríið.

TAPAÐ

Jakkinn minn var tekin í misgripum í Verkfræði og Hjúkrunarfræði partýi á föstudaginn 14. sept. Þeir sem vita eitthvað um þetta endilega sendið mér póst.

6.9.01

Liverpool með 7 mörk

Nú hafa Liverpool menn skorað öll mörk Englands í seinustu leikjum eða 7 talsins, hvað segir Árni Magnússon núna? Vont að hafa Liverpool menn sem kunna ekki að sækja!

Annars var það nú alveg öruggt að Íslendingar mundu tapa á móti Norður Írum. Ég var búinn að spá þessu.

29.8.01

Ræktin

Var að byrja í ræktinni í gær. Svaka duglegur, ætla að missa nokkur kíló.

Annars er ég að fara í matarklúbbinn í kvöld. Guðmundur Sverrisson (http://www.hi.is/~gudmsv) heldur þetta matarkvöld sem er á miðvikudegi því Hinni er að fara til Frakklands að kokka.

Seinna

27.8.01

Skólinn

Byrja aftur í skólanum í dag. Annars eru góðar fréttir að MUFC er að selja Jaam Stam og að MUFC er að byrja tímabilið mjög illa.

22.8.01

Línuleg albegra

Það eru Coldplay tónleikar í kvöld og ég þarf að sitja heima og læra undir línulega algebru og rúmfræði.

Svaka fjör.

27.6.01

TLC vs. Ragnan

Ég var að spila í utandeildinni í gær og TLC tapaði fyrir FC Ragnan, mjög ósanngjarnt. Kiddi Tví náði þó að setja boltann í netið í öðrum leiknum í röð.

Þórsmörk

Ég var að prófa að búa til þessa síðu!

Annars var svaka fjör um helgina. Fór upp í Þórsmörk í 30. afmæli til bróður míns Jóns Hauks, svaka fjör.