Stórleikur Íslands og Svíþjóðar í kvöld í Trondheim Spektrum og að sjálfsögðu verður maður staddur á svæðinu til að styðja sína menn. Við erum meira að segja búin að fá pössun þannig að Kári þarf ekki að vaka langt fram yfir sinn háttatíma og hlusta á sveittar handboltabullur taka æðisköst. Einn leikskólakennarinn bauðst í gær að koma og passa þegar ég sagði henni frá því að við ætluðum á leikinn með unga manninn og því yðri hann nú örugglega þreyttur á föstudaginn. Ekkert smá gott að fá svona hjálp þar sem allar ömmurnar og afarnir eru nú heima á Íslandi.En í þetta skiptið fer meður ekki illa sofinn með hnút í maganum niður í Trondheim Spektrum heldur með tilhlökkun. Trondheim Spektrum er nefnilega prófstaður þeirra í NTNU og er maður vanir að fara þangað til að taka sín próf. En ekki í þetta skiptið, maður er nú búin með þann pakka.
Það verður samt að viðurkennast að ég er nú ekkert mesta handbolta bulla í heiminum, en aftur á móti mjög spenntur fyrir þessu móti. Ekki alltaf sem handbolta landsliðið kemur að heimsækja mann til Þrándheims. Annars er Anna miklu meiri handbolta bulla heldur en ég, æsir sig alltaf miklu meira yfir handboltanum, á meðan ég er þessi rólegi. Verður fróðlegt að fylgjast með frúnni í kvöld, rjóða í kinnum og óskrandi eins og hún eigi lífið að leysa.
Þannig að allir að horfa á sjónvarpið í kvöld og sjá mig við hliðina á einni kolbrjálaðri bullu ;)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli