Lífið er mjög fínt í fríinu og nóg að gera. Þó svo maður eigi nú ekki að segja það en þá var alveg ágætt að fá frí frá sólinni, til að geta farið að gera eitthvað annað en að liggja í sólinni.
Búinn að vera föndra í tölvunni en hún ákvað að gefa upp öndina í seinustu viku. Fór í Tölvulistann og keypti nýtt móðurborð og nýjan örgjörva og var/er svo að púsla þessu saman. Vona að hún verði "up and running" á morgun en það er nú alveg gefið að eitthvað óvænt komi uppá eins og venjulega þegar maður er í þessu tölvustússi.
Þá þurfti bílinn smá aðhlynningu. Nýtt loftnet, nýr spegill og skipta um peru. Þessi reddaði maður bara með einni.
usss, djöfull er maður duglegur...
3.8.06
2.8.06
Pössun
Annar dagur í sumarfrí var ekki beint slæmur frekar en sá fyrsti. Vaknaði reyndar um kl. 7:30 þegar Gríma sagði að það væri kominn dagur. Ég er nefnilega að passa hana Grímu í tvær vikur meðan að foreldrarnir eru í Frakklandi. Hún lætur ekkert segjast, þegar klukkan er orðin 7:30 þá er matartími hjá mér, og hver getur neitað þessum augum.Annars er maður í sjálfu sér ekki að gera mikið í að undurbúa allt það sem er að fara gerast þegar svona veður er úti þannig að maður er bara í sumarfríi sem er bara mjög fínt.
Syriana
Horfði á Syriana í gærkvöldi eða réttara sagt byrjaði að horfa á Syriana í gær. Þessi mynd er aðeins of flókin fyrir mig og er eins og langur 60 minutes þáttur um Bandaríkin og samband þeirra við Mið-austurlönd. Hætti að horfa þegar lítið eða ekkert var búið að gerast eftir meira en 60 mínútur. Kannski er þetta ágæt mynd en ekki alveg mitt tel.Syriana fær 4 Ö.
1.8.06
"Sumarfrí"
Seinasti vinnudaginn hjá Línuhönnun var í gær og ekki laust við að það hafi verið nokkuð skrýtið að labba út með allt draslið sitt eftir að hafa verið þarna með annan fótinn síðan 2001. En nú tekur skemmtilegur tími við og það er alveg ljóst að það verður nóg að gera.
Á næstu dögum hefst svo á fullu undirbúningur fyrir komu bumbubúans í heiminn og einnig að flytja til Noregs og að byrja í skólanum. Það er í mörg horn að líta en sem betur fer erum við búin með margt af því.
Ég byrjaði svo "sumarfríið" mitt á því að vera upp á Landspítala þar sem bumbi var með einhverja stæla og þurfti að láta snúa sér. Hann var sem sagt sitjandi eða akkúrat öfugur við það sem hann (bumbubúinn) á að vera. En það reddaðist allt og nú er barnið vonandi komið í rétta stöðu.
Annars er eiginlega of heitt úti til að vera í sólbaði en ég er að reyna mitt besta í þeim málum.
Jæja bið að heilsa í bili, aftur út í sólina.

Sumó og Sigur Rós
Helgin var ekkert smá góð. Ég og frúin fórum upp í bústað í afslöppun og var það mjög notalegt. Svo skrapp ég í golf með strákunum snemma á laugardaginn. Það gekk ekkert alltof vel þannig að það hafði örlítil áhrif á þessa afslöppunar helgi en maður má ekki taka það of nærri sér, sérstaklega þegar þetta var annað skiptið í golf í sumar.
Það var mjög gott veður á laugardaginn og tengdó lét sjá sig upp í bústað í kaffi og einn besta mat sem ég hef smakkað. Það er fátt betra en humar með nóg af hvítlauk, verst að við vorum ekki með hvítvín og því lét ég bjórinn nægja. (hérna vantar eiginlega mynd af humrinum en hún kemur seinna).
Á sunnudaginn spilaði svo TLC og vann auðveldlega 6-0. Eftir leikinn var svo farið á magnaða tónleika með Sigur Rós á Klambratúni aka Miklatúni. Popplagið í lokin er eitt það magnaðasta sem maður hefur heyrt, þetta lag er náttúrulega ekki hægt. Þá var mjög flott stemmning þarna og Óli Grís (forseti) lét meira að segja sjá sig. (hérna á að koma mynd af Óla og Dorit sem ég tók af þeim, kemur seinna). Góðir tónleikar og fá þeir fullt hús hjá mér.

28.7.06
Belle & Sebastian
Fór á Belle & Sebastian tónleikana í gær á Nasa. Við mættum þegar Emilíana var á sínu fyrsta lagi og var þá húsið orðið eins og sardínudós. Allt, alltof margir þarna inni og það var ekkert smá heitt þarna enda var Jim Bob eins og hann hefði hlaupið maraþon.Emiliana var fín, var stutt og mikil læti inni og allir að reyna að koma sér fyrir. Var búinn að sjá hana á sama stað og heyra sömu lögin áður.
Það var talsverð bið eftir Belle & Sebastian enda mikið að skipuleggja til að koma öllum fyrir. Belle & Sebastian voru alveg frábær og ekki sakaði að maður var á topp stað. Tóku fullt af lögum, bæði nýjum og einnig fullt af gömlum lögum.
Ég var mjög ánægður að "finna" nýtt lag með þeim á þessum tónleikum og heitir það Electronic Renaissance og er á Tigermilk plötunni.Annnars var ég ótrúlega ánægður að sjá þessa hljómsveit loksins á tónleikum. Stebbi á svo heiðurinn á því að kynna mig fyrir þessari hljómsveit 1998. Takk fyrir það.
Svo vil ég biðja Árna um að sleppa því að taka Örvar Geir vin sinn með sér næst þegar við förum saman eitthvað, það bara gengur ekki að hafa tvo Örvara á sama fermeter, það veldur bara misskilningi.
Kallinn sáttur í lok dags.
24.7.06
Inside Man
Það er alltaf gaman þegar maður hittir á góðar bíómyndir sem maður býst ekkert alltaf mikið af. Sá Inside Man nýverið og kom hún manni nokkuð á óvart hveru góð hún var.Það eru mjög stór nöfn í þessari mynd, Denzel Washington, Clive Owen, Jodie Foster, Christopher Plummer og Willem Dafoe og svo er Spike Lee leikstjóri.
Mjög góð mynd með góðum leikurum og góðu handriti. Árni þú veður að líta fram hjá því að Denzel Washington er í þessari mynd og sjá hana.
Inside Man fær 8 Ö
Þegar þessi vinnudagur er búinn á ég bara viku eftir í vinnunni.
Víííí, þó svo það verðir skrýtin tilhugsun að fara aftur í skóla, þá hlakka ég mjög mikið til.
23.7.06
Brúðkaup
Fór í brúðkaup í gær til Geirs og Hrefnu og var það mjög vel heppnað í alla staði. Þessi mynd er tekin þegar brúðhjónin eru að koma út úr Kópavogskirkju.Geir heitir sem sagt Geir Ómarsson og ég er nokkuð viss um að presturinn var næstum því búin að segja Geir Ólafsson. Geir Ó...Ómarsson eitthvað smá hik á prestinum. Það var því vel við hæfi að Geir Ólafsson kom og söng í veislunni.
Þá var ég að setja nýjar myndir inná netið og fólk getur skoðað þær hérna til hliðar eða með því að smella hér.
Þetta eru myndir af steggjun Hinna, afmælinu hans pabba, afmælinu mínu og svo loks útskriftin hjá Önnu og mömmu. Er svo að fara vinna í því að setja upp möppur. Vinir, Fjölskylda og ferðalög, hald að það sé best að hafa þetta þannig.
Set svo fleiri myndir inn í vikunni.
22.7.06
Golf á Vatnsleysuströnd
Þá er golf sumarið byrjað hjá mér. Ég, Reynir og Kiddi fórum seint á fimmtudaginn í bongó blíðu vestur til Vatnsleysustrandar í golf. Reynir á heiður skilið fyrir að bjóða okkur Kidda, takk fyrir það.Annars vann Reynir og ég held að ég hafi verið í öðru sæti og Kiddi í seinasta en ég á eftir að fá nákvæmar tölur frá Reyni.
Hérna eru svo Kiddi og Reynir á 5 holu.Þá er annað brúðkaup sumarsins í kvöld. Geir (frændi hennar Önnu) og Hrefna eru að fara gifta sig í Kópavogskirkju (hvar annar staðar?). Það verður örugglega fjör, spurning hvort að Anna dansi upp á borði eins og vanalega...
Kveðja
Örvar golfari
21.7.06
Norge her over jeg komme
Það er þá orðið ljóst að ég (ásamt konu og barni) er að fara flytja til Þrándheims í Noregi. Fékk loksins svar frá skólanum og ég er kominn inn í NTNU í Þrándheimi (sjá mynd að ofan).Fyrir þá sem ekki vita þá er stefnan tekin á Meistaranám í Byggingarverkfræði og er ég að fara í Burðarþol eða Konstruksjon á móðurmálinu.
Í sambandi við íbúðarmál þá eru þau komin á hreint því ég fékk svar í seinustu viku um að við værum komin með íbúð, þannig að það er allt að gerast.
Stefnan er að ég fari út á undan og svo kemur Anna og krílið út þegar þau eru til. Þetta verður "magni"ficent svo maður vitni nú bara í Tommy Lee.
Það er því ljóst að ágúst verður mjög spennandi mánuður þar sem nóg verður að gerast. Eitt stykki barn á leiðinni, flytja út og fara í skóla.
Med vennlig hilsen
Örvar Norski
20.7.06
Sumar & sól
Já svona á veðrið að vera. Verst að ég er ekki kominn í sumarfrí hvað með það, maður á að njóta þess á meðan maður getur.Það er ekki alltaf sem maður getur verið úti að borða kvöldmat kl. 19:00. En Hlíðarhjallinn er besti staður í heiminum og þar er gott að búa.
Þá fékk ég mér einn besta borgara sem ég hef smakkað. Einn þykkur úr Nóatúni, ostur, sósa, franskar og bjór. Ummmmmm.
19.7.06
Barnavagn
Á mánudaginn var farið og gerð enginn smá innkaup fyrir fjölskylduna. Við förum og keyptum eitt stykki barnavagn og engann smá vagn. Brio Kombi varð fyrir valinu enda var hann á tilboði og um að gera að stökkva á svoleiðis enda eru barnavagnar ekki gefins.En eins og ég segi er þetta algjör torfærukerra með drif á öllum hjólum, 6 gíra , með velti grind og fjaðrar mjög vel, kannski smá ýkjur en hann virkar allavega fínn.
Eins og ég sagði áðan er barnavagnar ekki ókeypis og fengum við Brio-inn á 60 þús og var það með 15 þús afslætti. Þannig að maður er alltaf að "græða".
Annars er alltaf að styttast í bumbubúann og núna eru innan við 4 vikur (vonandi) að hann (bumbubúinn) komi í heiminn. Við skulum allavega vona að það verði ekki 6 vikur.
Svo eiga skóla málin að fara klárast í vikunni.
Allt að gerast...
10.7.06
And the winner is...
Þá er HM búið og 4 ár í næstu keppni. Þetta er komið fínt eftir 64 leiki og nú getur maður farið að hugsa um eitthvað annað en fótbolta og tippleiki.
Það endaði svo þannig að ég, Örvar Steingrímsson, vann tipp leikinn í vinnunni með 44 leiki rétta af 64 leikjum. Það gerir um 69% nýting sem verður að teljast mjög gott.
Ég fæ 24.750 kr fyrir að lenda í fyrsta sætinu og þá lenti ég í öðru sæti í keppninn hjá vinahópnum og þar koma 6.000 kr í hús.
Þannig að heildar verðlaun eru 30.750 en þar sem ég eyddi 3.000 kr í að taka þátt þá eru nettó verðlaun 27.750.
Þannig að nú eru komnar 30.750 kr upp í barnavagn og ekki veitir af því enda barnavagnar ekkert það ódýrasta sem fæst út í búð.
Aðeins aftur að HM sjálfri. Ég hélt með Ítalíu í úrslitaleiknum og var því mjög ánægður með sigur þeirra. Hefði vilja sjá Cannavaro vera valinn mann mótsins en þar sem kosið var í hálfleik þá vissu menn ekki að Zidane myndi skíta upp á bak.
Ég veit alveg að Materazzi er skíthæll en hvað með það, menn eiga bara ekki að skalla menn, sama hvað sagt er við þá. Leiðinlegt að snillingur eins og Zidane skulu enda ferilinn á svona hátt.
Það endaði svo þannig að ég, Örvar Steingrímsson, vann tipp leikinn í vinnunni með 44 leiki rétta af 64 leikjum. Það gerir um 69% nýting sem verður að teljast mjög gott.
Ég fæ 24.750 kr fyrir að lenda í fyrsta sætinu og þá lenti ég í öðru sæti í keppninn hjá vinahópnum og þar koma 6.000 kr í hús.
Þannig að heildar verðlaun eru 30.750 en þar sem ég eyddi 3.000 kr í að taka þátt þá eru nettó verðlaun 27.750.
Þannig að nú eru komnar 30.750 kr upp í barnavagn og ekki veitir af því enda barnavagnar ekkert það ódýrasta sem fæst út í búð.
Aðeins aftur að HM sjálfri. Ég hélt með Ítalíu í úrslitaleiknum og var því mjög ánægður með sigur þeirra. Hefði vilja sjá Cannavaro vera valinn mann mótsins en þar sem kosið var í hálfleik þá vissu menn ekki að Zidane myndi skíta upp á bak.Ég veit alveg að Materazzi er skíthæll en hvað með það, menn eiga bara ekki að skalla menn, sama hvað sagt er við þá. Leiðinlegt að snillingur eins og Zidane skulu enda ferilinn á svona hátt.
7.7.06
Dagskrá og HM
Dagskrá helgarinnar er:
Laugardagur:
Að fara í brúðkaup hjá Hinna og Ástu.
Það verður gaman.
Sunnudagur:
Horfa á úrslitaleik HM.
Það verður vonandi gaman.
Standpínan endaði í 1. sæti í tippleiknum hjá okkur vinunum og ég verð í 2. sæti. Pilotinn er í 3. sæti en Tæklarinn gæti stolið því af honum ef Ítalir vinna. Þannig að ég er strax kominn í + í HM tippleikjum.
Þá er ég ennþá í fyrsta sæti í vinnu tippleiknum. Svaka spenna þar, ég er með 42, Fikka er með 41 leik og Sigfríð og Jón Þór eru með 40. Þannig það má ekkert klikka í seinustu tveimur leikjunum.

5.7.06
15.000
Ég missti af 15.000 gestinum...fæ ég þá ekki bara bjór útá það?
Annars var helgin mjög góð og alltaf gott að vera upp í sveit.
Þá fór ég á sunnudaginn að byggja hús...þeas hjálpa Jóni Hauki í grunninum á nýja húsinu. Þá var fyrsta steypa á mánudaginn.
Annars var helgin mjög góð og alltaf gott að vera upp í sveit.
Þá fór ég á sunnudaginn að byggja hús...þeas hjálpa Jóni Hauki í grunninum á nýja húsinu. Þá var fyrsta steypa á mánudaginn.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)