Nú er búið að vera sannkallað íslenskt haustveður í Þrándheimi. Það er búið að rigna núna undanfarna daga og allur snjórinn er farinn, ofan á það þá er einnig búið að vera rok sem maður er nú ekki vanur hérna í Þrándheimi.Þetta á að vera svona út vikuna og þá vonandi fer að koma gott veður aftur.
Karen og Víðir Freyr voru í heimsókn í seinustu viku og fóru þau á mánudaginn. Gaman að fá þau í heimsókn en Anna sá aðalega um að sinna þeim og sína þeim bæinn á meðan ég var að læra.En við náðum samt að fara öll saman út að borða á Peppes Pizza og var það í fyrsta sinn sem við förum út að borða síðan Kári kom í heiminn. Gaman að komast út úr húsinu á kvöldin sem maður hefur nú ekki gert mikið af seinustu mánuði.
Nóg í bili, bið að heilsa í bili.
















