Það góða við þetta er að núna er þolanlegra að hjóla heim úr skólanum.
Tók þessa mynd út um eldhúsgluggan í morgun. Frábært að hafa svo flott útsýni út um eldhúsgluggan.Þá fórum við í dag niður á skattstofuna í Þrándheimi til að fá kennitölu. Vorum búin að láta senda fluttningsvottarð að heiman til þeirra og héldum að það væri nóg til að koma ferlinu af stað en það virkar því miður ekki þannig. Þannig að núna tekur það 3-4 vikur að fá kennitölurnar og á meðan getum við ekki stofnað bankareikning né fengið lækni fyrir Kára.
En þannig er það nú bara.
Þá setti ég fullt af myndum inná myndasíðuna. Á eftir að skrifa við myndirnar en það er nú ekki hægt að gera allt í einu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli