Ég sá markið í sjónvarpinu og horfði svo á bæði Ísland í dag og einnig Kastljós. Það sem ég held er að:
Bjarni hafi skorað óvart, held að það sé alveg á hreinu. Aftur á móti þoli ég ekki þegar lið sparkar boltanum útaf á vallarhelming andstæðinga og er svo skilað boltanum upp við hornfána á sínum eigin vallarhelming og andstæðingurinn pressar eftir á. Held að það sé það sem Bjarni hafi ætlað sér.
Auðvitað átti Guðjón að skipa sínu liði að skora sjálfsmark, þó svo að Keflvíkingar hafi brugðist reiðir við. Tek þessa afsökun ekki gilda.
Hvað ætluðu þessir Keflvíkingar að gera við Bjarna þegar þeir hlaupa á eftir honum upp í klefa, lá þeim svona mikið á að tala við hann? Setja þessa menn í bann og ekkert annað.
Báðir þjálfarar koma einstaklega illa frá þessu máli, hver lýgur meira veit ég ekki.
Þannig að sá sem kemur út úr þessu með mestri reisn (að mínu mati) er Bjarni Guðjónsson.
6.7.07
5.7.07
Athugasemdir
Ég held svei mér þá að athugasemda kerfið sé bilið, menn hafa alveg verið að missa sig í að kommenta hérna á síðuna. Nei segi bara svona...
Merki:
Tækni
4.7.07
El Niño
Þá er það staðfest, Fernando Torres er að koma til Liverpool. Hef ekki verið svona spenntur yfir kaupum Liverpool í langan tíma, jússímía.Hann virðist samt ekkert vera raða mörkunum inn á Spáni en held samt að hann eigi eftir að vera góður fyrir Liverpool. Maður er samt alltaf smeikur þegar menn eru að koma í nýtt land og nýja deild en vonandi verður hann fljótur í gang og við fáum að sjá eitthvað af svona mörkum...
Nú er bara að vona að það fari að detta einhver kantari inn og þá erum við að tala saman.
3.7.07
Svalasti karakter kvikmyndasögunnar?
Gerast þeir eitthvað svalari en John McClane? Held að svarið sé nei.
Ég og Árni fórum í nostalgíu ferð á Die Hard 4.0 í gærkvöldi og báðir með varan á gagnvart þeirri nýju, því hinar þrjár eru náttúrulega tær meistaraverk.
En þegar við gengum út úr Regnboganum vorum við sælir og glaðir eins og 16 ára unglingar 1995 þegar við löbbuðum heim úr Mjóddinni eftir að hafa séð Die Hard with a Vengeance. Ég var mjög ánægður með þessa mynd og var John McClane svalari en svalt og harðari en hart. Hafði áhyggjur að Mac gaurinn myndi ekki passa þarna inn en hann var nokkuð fyndinn og svo voru bæði Kevin Smith og vondi gaurinn góðir.
Eitt atriði sem gekk ekki alveg upp og svo hefði James Bond aðeins mátt missa sig í þotu atriðinu en það hafði samt ekki áhrif á gæði myndarinnar.
Fyrst þegar ég heyrði um Die Hard fjögur var ég mjög smeikur en eftir að hafa séð hana get ég alveg sagt að hún á alveg heima með hinum þremur meistaraverkunum og er alveg pottþétt ein skemmtilegasta hasarmynd sem maður hefur séð í langan tíma.
Einkunn: Die Hard 4.0 fær 9
Ég og Árni fórum í nostalgíu ferð á Die Hard 4.0 í gærkvöldi og báðir með varan á gagnvart þeirri nýju, því hinar þrjár eru náttúrulega tær meistaraverk.En þegar við gengum út úr Regnboganum vorum við sælir og glaðir eins og 16 ára unglingar 1995 þegar við löbbuðum heim úr Mjóddinni eftir að hafa séð Die Hard with a Vengeance. Ég var mjög ánægður með þessa mynd og var John McClane svalari en svalt og harðari en hart. Hafði áhyggjur að Mac gaurinn myndi ekki passa þarna inn en hann var nokkuð fyndinn og svo voru bæði Kevin Smith og vondi gaurinn góðir.
Eitt atriði sem gekk ekki alveg upp og svo hefði James Bond aðeins mátt missa sig í þotu atriðinu en það hafði samt ekki áhrif á gæði myndarinnar.
Fyrst þegar ég heyrði um Die Hard fjögur var ég mjög smeikur en eftir að hafa séð hana get ég alveg sagt að hún á alveg heima með hinum þremur meistaraverkunum og er alveg pottþétt ein skemmtilegasta hasarmynd sem maður hefur séð í langan tíma.
Einkunn: Die Hard 4.0 fær 9
Merki:
Kvikmyndir
2.7.07
Nýtt í horfi
Smokin' Aces (2006)
Töff mynd, langt síðan að maður hefur séð svona svala krimma mynd.
Einkunn: Smokin' Aces fær 8
Pan's Labyrinth (2006)
Mjög svo skrítin mynd en samt góð.
Einkunn: Pan's Labyrinth fær 7
Crank (2006)
Hrein AST (Allt sprent í tætlur) mynd en er samt ekki að gera sig. Mæli frekar með The Transporter.
Einkunn: Crank fær 5
Employee of the Month (2006)
Heimsk grínmynd sem hægt er að hafa gaman af.
Einkunn: Employee of the Month fær 5
Next (2007)
Sama gildir hér og um Ghost Rider, Nicolas Cage er bara ekki svalur.
Einkunn: Next fær 5
Ghost Rider (2007)
Hvenær ætlar Nicolas "Why couldn't you put the bunny back in the box?" Cage að átta sig á því að hann er ekki hasarmyndahetja, hann á að leika fyllibyttu og aumingja. Reyndar var þessi snillingur í myndinni, man einhver eftir Road House :)
Einkunn: Ghost Rider fær 4
Töff mynd, langt síðan að maður hefur séð svona svala krimma mynd.
Einkunn: Smokin' Aces fær 8
Pan's Labyrinth (2006)
Mjög svo skrítin mynd en samt góð.
Einkunn: Pan's Labyrinth fær 7
Crank (2006)
Hrein AST (Allt sprent í tætlur) mynd en er samt ekki að gera sig. Mæli frekar með The Transporter.
Einkunn: Crank fær 5
Employee of the Month (2006)
Heimsk grínmynd sem hægt er að hafa gaman af.
Einkunn: Employee of the Month fær 5
Next (2007)
Sama gildir hér og um Ghost Rider, Nicolas Cage er bara ekki svalur.
Einkunn: Next fær 5
Ghost Rider (2007)
Hvenær ætlar Nicolas "Why couldn't you put the bunny back in the box?" Cage að átta sig á því að hann er ekki hasarmyndahetja, hann á að leika fyllibyttu og aumingja. Reyndar var þessi snillingur í myndinni, man einhver eftir Road House :)
Einkunn: Ghost Rider fær 4
Merki:
Kvikmyndir
Business Time
Hérna er eitthvað til að koma ykkur af stað eftir helgina.
Merki:
Youtube
28.6.07
Svalur.is
Vildi bara láta fólk vita að það eru komnar fullt af myndum inná barnaland. Ég er ekki búinn að vera standa mig í myndamálum en Anna er alltaf sami dugnaðarfákurinn.Hérna er Kári, fólk hóar bara ef það vantar lykilorðið.
Annars er júní bara að verða búinn, djíses hvað þetta líður hratt.
Merki:
Daglegt
26.6.07
Blóð / Hjól
Fór á hjólinu og gaf blóð, uss hvað maður er duglegur
Merki:
Daglegt
22.6.07
Evrópumótið í handknattleik
Hver vill koma í heimsókn í janúar 2008 til Þrándheims?
Nú er það komið á hreint að Ísland verður í D-riðli á Evrópumótinu í handbolta og fer sá riðill fram í Þrándheimi, frétt.
D-riðill, Þrándheimi:
Ísland
Frakkland
Svíþjóð
Slóvakía
Þannig að hver ætlar að bóka pláss í Þrándheimi 17. janúar?
Nú er það komið á hreint að Ísland verður í D-riðli á Evrópumótinu í handbolta og fer sá riðill fram í Þrándheimi, frétt.
D-riðill, Þrándheimi:
Ísland
Frakkland
Svíþjóð
Slóvakía
Þannig að hver ætlar að bóka pláss í Þrándheimi 17. janúar?
Merki:
Íþróttir
Fyrir Star Wars nörda
Ekki mikið að frétta héðan. Hérna er smá fyrir Star Wars nördana, algjör snilld!
Merki:
Kvikmyndir
21.6.07
Veðurfréttir
Úff greyjið konan.
Hélt fyrst að þetta væri atriði úr Svínasúpunni.
Hélt fyrst að þetta væri atriði úr Svínasúpunni.
Merki:
Daglegt
20.6.07
ammli
Maður hefur ekki verið að standa sig í blogginu, lofa ekki bótum í þeim málum fyrr en hausta tekur.
Það mjög furðulegt að vera einn með Kára á 17. júní (Anna var að vinna um nóttina). Mér leið eins og Audda Blö í einu Svínasúpu atriði, langaði helst til að vera með skilti sem stóð á að ég væri ekki helgarpabbi :)
Fór á Air tónleikana í gærkvöldi með Kidda. Nokkuð góðir tónleikar, tóku alla helstu "slagarana" ásamt efni frá nýju plötunni. Nokkur alveg helvíti mögnuð lög þegar þeir gáfu smá extra í lögin, djöfull væri ég til í að vera trommuleikari á svona stórum tónleikum og þá helst með Sigurrós í Popplaginu.
Svo er það mál málana í dag, ætli maður sé ekki bara orðinn 28 ára, uss hvað maður er ungur...
Fór á Air tónleikana í gærkvöldi með Kidda. Nokkuð góðir tónleikar, tóku alla helstu "slagarana" ásamt efni frá nýju plötunni. Nokkur alveg helvíti mögnuð lög þegar þeir gáfu smá extra í lögin, djöfull væri ég til í að vera trommuleikari á svona stórum tónleikum og þá helst með Sigurrós í Popplaginu.Svo er það mál málana í dag, ætli maður sé ekki bara orðinn 28 ára, uss hvað maður er ungur...
15.6.07
Taflan
Við skulum hafa eitt á hreinu, tafla, að Breiðblik er betra félag en hk, punktur.
Ætla rétt svo að vona að KR geri eitthvað í næsta leik, það er eitthvað að ef litli bróðir er ofar en stóri...
Hvað er málið með Magga Palla, get nú alveg sagt að ég átti ekki von á því að hann væri með markahæstu mönnum á íslandsmótinu, ekkert nema gott um það að segja.
Ætla rétt svo að vona að KR geri eitthvað í næsta leik, það er eitthvað að ef litli bróðir er ofar en stóri...Hvað er málið með Magga Palla, get nú alveg sagt að ég átti ekki von á því að hann væri með markahæstu mönnum á íslandsmótinu, ekkert nema gott um það að segja.
Merki:
Fótbolti
8.6.07
Helgi
Fyrstu vinnuvikunni er formlega lokið og það er komin helgi, það sem meira er að það er gott veður...svei mér það!
Merki:
Daglegt
Helgi
Fyrstu vinnuvikunni er formlega lokið og það er komin helgi, það sem meira er að það er gott veður...svei mér það!
Merki:
Daglegt
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)