28.10.07

Kári trommari

Delux

Það var sko delux kvöld í gærkvöldi, borðaður góður matur og horft á góða bíómynd.

Kvöldmaturinn byrjaði á forrétt, á boðstólnum var Mozzarella ostur með tómötum og sallati (vantaði basilíku til að gera þetta 100% en mjög gott engu að síður). Myndin var reyndar tekin seinustu helgi en álíka flott í gær.
Í aðalrétt var norskt lamb með rauðvínssósu, kartöflum og sallati, og ekki má gleyma að rauðvín var drukkið með. Gat ekki verið eldað betur af meistarakokkinum henni Önnu.
Svo í eftirrétt var hjólað út í búð og keyptur karmellu/hnetu ís, einnig mjög góður þó svo að ekki hafi verið lagt mikil vinna í þennan rétt.

Eftir þetta og þegar Kári var kominn í háttinn var svo horft á Mýrina eftir Baltasar/Arnald. Mjög flott mynd og góð þó svo að spennan sé nú ekkert að drepa mann. Góð saga sem sögð er mjög sannfærandi í þessari mynd. Er alveg að fíla stílinn hjá Baltasari, myndirnar hans eru alltaf gerðar svo kaldar og einhvernveginn einmannalegar, þetta passar mjög vel við íslenska landslagið.
Ágúst Eva var mjög góð sem dóttir Erlends en enn og aftur verð ég að lýsa yfir vonbrigðum með að Ingvar E. Sigurðsson sé settur í öll almennileg hlutverk sem bjóðast á þessu landi. Ekkert út á hann að setja varðandi þessa mynd, hann leikur þetta mjög vel og í sjálfu sér alveg sannfærandi sem Erlendur. En samt er hann ekki þessi Erlendur sem maður var búinn að ímynda sér. Við skulum ekki einu sinni fara útí það hvernig leikaravalið á Ingvari eyðilagði fyrir mér myndina Kaldaljós, sem var uppáhalds bókin sem ég las í menntaskóla. Svíarnir gera þetta vel með vali á Kurt Wallander og manni fannst Erlendur vera svona svipuð týpa og hann. Einnig fannst mér ekki passa að Erlendur keyrði um á glænýjum Range Rover, löggur eiga að vera á druslum.
En þrátt fyrir að mér fannst Ingvar ekki passa nógu vel í hlutverk Erlends er myndin engu að síður mjög góð. Það var ekki laust við að allar landslags senurnar í myndinni létu mann sakna gamla klakans.
Einkunn: Mýrin fær 8

27.10.07

Smjattpattarnir

Djöfull væri ég til í að eiga þessar bækur ennþá. Búið að vera pirra mig að ég mundi ekki hvernig Smjattpattarnir litu út en eftir smá leit þá fann ég þetta loksins. Þeir heita nefnilega The Munch Bunch á ensku. Spurning hvort maður fari á ebay og kaupa sér þessar gömlu bækur fyrir Kára (lesist: mig). Þá væri náttúrulega best að endurútgefa þessar bækur eins og hefur verið gert með Barbapabba.
Man samt ekki eftir hvort að þetta voru teiknimyndir eða ekki, en þeir voru í uppáhaldi.

26.10.07

Boltaspark

Best að segja frá því að ég var EKKI staddur á Lerkendal Stadion þegar Rosenborg vann glæstan 2-0 sigur á Valencia á miðvikudaginn. Nokkuð svekkelsi að það voru til miðar á Schalke en ekki þennan leik og ennþá meira svekkelsi að þeir töpuðu 0-2 á móti Schalke en unnu Valencia. En svona er lífið maður fær ekki allt sem maður vill.
Þeir eru þrátt fyrir það ennþá í 6 sæti sem er ekki nógu gott fyrir stórveldið frá Þrándheimi þannig að Tørum var sagt upp fyrir leikinn.

Aðeins að enska boltanum. Þessi spá mín er ekki alveg að ganga upp. Ég spáði Arsenal í 5 sæti og Tottenham í fjórða. Nú er málum þannig háttað að Martin Jol var að segja upp því Tottenham getur ekki neitt og Arsenal er í 1 sæti með einhverja 12-13 sigurleiki í röð. Liverpool mætir svo Arsenal á Anfield á sunnudaginn og menn eru skjálfandi á beininu á að mæta Arsenal í þessu formi sem þeir eru í núna. Það er bara vonandi að mínir menn rífi sig upp af rassgatinu og fari að sína að þeir kunni að spila fótbolta.
Annars er trú mín á Rafa alltaf að minnka, þannig er það nú bara.

En á meðan að Liverpool tapar í Tyrklandi er sigur Rosenborg ennþá meira gleði efni, og þá reynir maður að hugsa meira um það :)

25.10.07

Duved

Eins og ég sagði frá fyrir helgi þá fórum við til Duved (Åre) í Svíþjóð um helgina. Nenni ekki alveg að útlista hvað var gert en ferðin var góð. Borðaður góður matur og drukkið gott vín. Anna skrifað góðan pistil um ferðina sem ég ætla að láta mér duga að copy/pasta-a hingað. Anna take it away...

Skelltum okkur til Sverige, nánar tiltekið Duved með þrem öðrum íslenskum fjölskyldum. Leigðum 4 hyttur/stuer/bústaði. Við fjölskyldan lögðum af stað á föstudaginn þegar Anna var búin í vinnunni, leifðum Kára reyndar að vera bara á leikskólanum meðan það var klárað að pakka og svo var brunað af stað um 3 leitið. Þegar við vorum komin yfir landamærin beið okkar snjór í Svíþjóð. Kom okkur frekar á óvart, vissum reyndar að það væri hvítt, en áttum ekki von á svona miklum snjó. Hann stoppaði reyndar ekki lengi og á laugardeginum var hann næstum allur farinn.

Krabbi eldaður á sænskan máta var á boðstólnum á föstudagskvöldinu og sænskar kjötbollur fyrir þau yngstu. Rosa góður matur og skemmtilegt að borða hann. Börnin voru svo sykruð upp til að þau gætu nú vakað í partýinu :) Kári skemmti sér alveg konunglega með öllum stelpunum og fór að sofa langt fram yfir hátta tíma 1.árs barna :)

Laugardagurinn var nýttur í að skoða aðeins Åre og versla ódýra hluti sem verða ekki nefndir á barnalandi... Liðið var nú eitthvað orkulaust á eftir skemmtilegt föstudagskvöld þannig að innkaupin voru nú ekkert glæsileg hjá liðinu.... hehe. Sænskt svín var svo á boðstólnum á laugardagskvöldinu og ekki má gleyma Subway sem var etinn í hádegismat :) Aðeins rólegra partý á laugardagskvöldinu og því þurftu börnin ekki eins mikinn sykur til að vaka, enda fengu þau að fara að sofa fyrr en kvöldið áður ;) Kári var reyndar svo þreyttur að hann sofnaði fanginu á mömmu sinni meðan spilað var Mr. and Mrs. (sem by the way við unnum....)

Sunnudagurinn fór svo í tiltekt í hyttunum og svo var verslaður matur í Ica Åre. Alltaf gott að fara til Sverige og spara smá peninge.

Jenny

Þetta er án efa eitt það fyndnasta lag sem ég hef heyrt. Get ekki endurtekið það nógu oft hvað fólk verði að tékka á Flight of the Conchords.

Flight of the Conchords - Jenny [mp3]

18.10.07

Hress

Hann er hress þessi ungi maður. Svona stuð er reglulega á mínum manni áður en farið er að sofa.

Utanlandsferð?

Gerist fólk eitthvað mikið svalara ný vaknað, ég bara spyr!

Það eru komnar nýjar myndir inná Picasa ljósmyndasíðuna, ég er aldrei þessu vant á undan Önnu að setja myndir á netið. Hægt að finna myndirnar hér:
http://picasaweb.google.com/orvars/OktBer2007/

Það verður svo skellt sér til útlanda um helgina, reyndar enga rosalega vegalengd því ferðinni er heitið til Åre í Sverge. Við tökum 0kkur saman nokkrar fjölskyldur og leigðum hyttur (aka sumarbústaði eða íbúðir).

Hef þetta ekki lengra í bili, þannig að ég óska bara fólki góðrar helgar.

17.10.07

Editors

Mæli með Smokers Outside The Hospital Doors með hljómsveitinni Editors. Þetta lag er tekið af plötunni An End Has a Start sem kom út á þessu ári.


Hérna er svo mp3 skrá með laginu:
Editors - Smokers Outside The Hospital Doors

Maður verður aðeins að rokka þetta upp eftir James Blunt.

Pósturinn Páll

eða svona næstum því, þetta er bara hjemmesykepleier hún Anna. Eigum við eitthvað að ræða þessi föt?

Anna er byrjuð að vinna og þá breytist heimilslífið aðeins.
Í gærkvöldi var Anna á kvöldvakt og ég og Kári einir heima allan eftirmiðdaginn og því einnig einir heima í kvöldmat. Það er ekki það auðveldasta í heimi að elda með Kára viðstaddan því hann vill taka mikinn þátt í þessu öllu saman og það helst ofan í pottunum. Nema hvað að Anna tók sig til og eldaði fyrir okkur feðgana í hádeginu. Þannig að þegar ég og Kári komum þreyttir heim eftir erfiðan skóladag þá beið okkur kvöldmatur inní ísskáp, já það er gott að eiga góða konu/mömmu :)

15.10.07

Öbbi Fel og harðsperrur

Afslöppunar helgi af baki, alltaf fínt að slappa aðeins af eftir svona góðar heimsóknir.

Ég fór ásamt þeim Stebba og Jóa í Skvass á föstudaginn, alveg frábært að komast í einhverja aðra hreyfingu en að hlaupa úti. Jói er semi pro í þessu sporti og rúllaði okkur Stebba upp en við tveir erum á þessi venjulega amature level-i, þetta mun samt allt koma hjá okkur, Jói is going down. Helvíti gaman allt saman og stefnt á að gera þetta vikulega.
En djöfulsins harðsperrur var maður með um helgina og allt á einhverjum stöðum þar sem maður vissi ekki að maður var með vöðva (segi svona). Alveg að drepast aftan í lærinu, rasskinnunum og neðra bakinu, þetta var það slæmt að það var vont að setja niður á sandkassann þegar fjölskyldan var í sínum vikulegu sandkassaleikjum.

Annars tók ég mig til á sunnudaginn og sýndi hæfileika mína í eldhúsinu. Ég hef nú alltaf staðið mig nokkuð vel í eldamennskunni en aftur á móti ekki í bakstrinum. Það var svo á sunnudaginn sem ég bjó til þessar ljúfengu muffins og ekki nóg með það heldur var svo boðið uppá Royal búðing í eftirrétt (með kvöldmatinum).
Usss, svona er maður klár. Það tekur mikla hæfileika að hella smá vökva í skál og svo dufti útí og hræra, volla = bakari

14.10.07

Fleiri myndir

Þá er ég búinn að setja myndir frá september á netið.
Hægt að finna þær hér:
http://picasaweb.google.com/orvars/September2007/

Það eru einnig komnar nokkrar myndir frá Október mánuði en það er enn sem komið er bara myndir frá leik Rosenborg og Schalke í meistaradeildinni.
http://picasaweb.google.com/orvars/OktBer2007/

Þá bjó ég til linka hægra megin á síðunni á þessi myndaalbúm. Bæði Picasa og flickr.

Góðar stundir.

13.10.07

Myndir á netið

Búinn að setja myndir frá heimsókn mömmu og pabba hennar Önnu á Picasa. Svo koma fleiri myndir frá sept. bráðum á netið.

Myndirnar er hægt að finna hér:
http://picasaweb.google.com/orvars/KambHeimsKn/
Mæli með að fólk skoði þetta í "slideshow".

Fer svo að setja link á Picasa síðuna hérna hægra megin.

12.10.07

Jesú

Er þetta ekki aðal brandarinn í dag?

Músíka


Er maður alveg glataður ef manni finnst þetta lag skemmtilegt? Og það sem verra er að diskurinn er bara nokkuð góður.

Djöfull er maður að verða mjúkur.