25.10.07

Duved

Eins og ég sagði frá fyrir helgi þá fórum við til Duved (Åre) í Svíþjóð um helgina. Nenni ekki alveg að útlista hvað var gert en ferðin var góð. Borðaður góður matur og drukkið gott vín. Anna skrifað góðan pistil um ferðina sem ég ætla að láta mér duga að copy/pasta-a hingað. Anna take it away...

Skelltum okkur til Sverige, nánar tiltekið Duved með þrem öðrum íslenskum fjölskyldum. Leigðum 4 hyttur/stuer/bústaði. Við fjölskyldan lögðum af stað á föstudaginn þegar Anna var búin í vinnunni, leifðum Kára reyndar að vera bara á leikskólanum meðan það var klárað að pakka og svo var brunað af stað um 3 leitið. Þegar við vorum komin yfir landamærin beið okkar snjór í Svíþjóð. Kom okkur frekar á óvart, vissum reyndar að það væri hvítt, en áttum ekki von á svona miklum snjó. Hann stoppaði reyndar ekki lengi og á laugardeginum var hann næstum allur farinn.

Krabbi eldaður á sænskan máta var á boðstólnum á föstudagskvöldinu og sænskar kjötbollur fyrir þau yngstu. Rosa góður matur og skemmtilegt að borða hann. Börnin voru svo sykruð upp til að þau gætu nú vakað í partýinu :) Kári skemmti sér alveg konunglega með öllum stelpunum og fór að sofa langt fram yfir hátta tíma 1.árs barna :)

Laugardagurinn var nýttur í að skoða aðeins Åre og versla ódýra hluti sem verða ekki nefndir á barnalandi... Liðið var nú eitthvað orkulaust á eftir skemmtilegt föstudagskvöld þannig að innkaupin voru nú ekkert glæsileg hjá liðinu.... hehe. Sænskt svín var svo á boðstólnum á laugardagskvöldinu og ekki má gleyma Subway sem var etinn í hádegismat :) Aðeins rólegra partý á laugardagskvöldinu og því þurftu börnin ekki eins mikinn sykur til að vaka, enda fengu þau að fara að sofa fyrr en kvöldið áður ;) Kári var reyndar svo þreyttur að hann sofnaði fanginu á mömmu sinni meðan spilað var Mr. and Mrs. (sem by the way við unnum....)

Sunnudagurinn fór svo í tiltekt í hyttunum og svo var verslaður matur í Ica Åre. Alltaf gott að fara til Sverige og spara smá peninge.

Engin ummæli: