Það var sko delux kvöld í gærkvöldi, borðaður góður matur og horft á góða bíómynd.Kvöldmaturinn byrjaði á forrétt, á boðstólnum var Mozzarella ostur með tómötum og sallati (vantaði basilíku til að gera þetta 100% en mjög gott engu að síður). Myndin var reyndar tekin seinustu helgi en álíka flott í gær.
Í aðalrétt var norskt lamb með rauðvínssósu, kartöflum og sallati, og ekki má gleyma að rauðvín var drukkið með. Gat ekki verið eldað betur af meistarakokkinum henni Önnu.
Svo í eftirrétt var hjólað út í búð og keyptur karmellu/hnetu ís, einnig mjög góður þó svo að ekki hafi verið lagt mikil vinna í þennan rétt.
Eftir þetta og þegar Kári var kominn í háttinn var svo horft á Mýrina eftir Baltasar/Arnald. Mjög flott mynd og góð þó svo að spennan sé nú ekkert að drepa mann. Góð saga sem sögð er mjög sannfærandi í þessari mynd. Er alveg að fíla stílinn hjá Baltasari, myndirnar hans eru alltaf gerðar svo kaldar og einhvernveginn einmannalegar, þetta passar mjög vel við íslenska landslagið.Ágúst Eva var mjög góð sem dóttir Erlends en enn og aftur verð ég að lýsa yfir vonbrigðum með að Ingvar E. Sigurðsson sé settur í öll almennileg hlutverk sem bjóðast á þessu landi. Ekkert út á hann að setja varðandi þessa mynd, hann leikur þetta mjög vel og í sjálfu sér alveg sannfærandi sem Erlendur. En samt er hann ekki þessi Erlendur sem maður var búinn að ímynda sér. Við skulum ekki einu sinni fara útí það hvernig leikaravalið á Ingvari eyðilagði fyrir mér myndina Kaldaljós, sem var uppáhalds bókin sem ég las í menntaskóla. Svíarnir gera þetta vel með vali á Kurt Wallander og manni fannst Erlendur vera svona svipuð týpa og hann. Einnig fannst mér ekki passa að Erlendur keyrði um á glænýjum Range Rover, löggur eiga að vera á druslum.
En þrátt fyrir að mér fannst Ingvar ekki passa nógu vel í hlutverk Erlends er myndin engu að síður mjög góð. Það var ekki laust við að allar landslags senurnar í myndinni létu mann sakna gamla klakans.
Einkunn: Mýrin fær 8
Engin ummæli:
Skrifa ummæli