Smá mont póstur...Þá eru 4 ár liðin síðan ég hætti að borða nammi og drekka gosdrykki. Sumarið 2004 var reyndar smá undantekning á gosinu en það gerir ekkert til. Get nú alveg sagt að þetta er bara ekkert mál og mig langar mjög mjög sjaldan í nammi og gos.
Anna segir reyndar að ég drekki bara þeim um meiri bjór og borði meira snakk! Það getur svo sem vel verið en ég borða samt ekki nammi og drekk ekki gos :)
Ég sé ekki fram á að fara borða nammi í bráð enda tímir maður ekki að eyðileggja svona langt bindindi.
Til hamingju með það Örvar, takk takk
Engin ummæli:
Skrifa ummæli