Þá fór svo að þannig Finnarnir unnu Júróvision, ég var bara mjög sáttur við það enda hélt maður með þeim, fannst lítið varið í önnur lög.Ívar hélt Júróvision partýið að þessi sinni og var það bara mjög vel heppnað. Hópurinn mætti og grillaði saman og svo var horft á keppnina og stigagjöfin, sumir fóru í bæinn og aðrir beint heim. Eins og sést á myndinni var mikið fjör á tímabili.
Þá eru nýjar myndir komnar inn á netið og hér má finna þær:
Júróvision
B.S. kynning hjá Önnu og Beggu
Svo er hægt að finna allar myndirnar á http://www.flickr.com/photos/orvars
Þá vann Breiðablik lélegt lið ÍBV 4-1. Blikarnir að gera góða hluti í deildinni og eru efstir með 6 stig 4 mörk í plús. Frábært.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli