Síðustu tvær helgar búnir að vera mjög góðar. Smá ágrip um hvað var gert síðustu helgi.
Paintball með vinnunni, algjör snilld í góðu veðri. Mitt lið rústað þessu.
Manchester "stór"tónleikarnir. Mikil vonbrigði, bæði með skipulag tónleikana og tónlistina.
Kayak um höfuðborgarsvæðið. Jón Haukur bróðir dróg mig og Pabba með sér á Kayak. Algjör snilld en ekki laust við að maður hafi verið þreyttur í lokin.
Þá er komið að þessari helgi.Liverpool varð bikarmeistari á laugardaginn í algjörum snilldar leik. Var reyndar löngu búinn að afskrifa mína menn í þessum leik en markið frá besta miðjumanni í heimi á 90 mín var ekkert smá flott. Úff og Reina í vítaspyrnukeppninni ekki fræðilegur að Liverpool hefði tapað í henni.
Annars var svo vorhátíð í vinnunni þar sem Milljónamæringarnir spiluðu ásamt Páli Óskari og Bogamil. Rosa fjör þar og ekki síst gott að vita að einn vinnufélagi minn viðurkenndi að hafa sett inn spurninguna til Ásthildar. Nú er bara að hefna sín.
Svo er það bara Breiðblik í kvöld. Breiðablik og Valur eigast við í fagra dalnum kl. 8. Malli verður með þrennu í kvöld og sýnir allt sem ég kenndi honum í gamla daga.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli