26.3.07

BloggGáttin

Nú er komin nokkuð gott kerfi sem fylgist með uppfærslum á bloggum landsmanna. Þessi síða notar RSS-kerfið og heitir BloggGáttin. Þú getur sett upp þinn eigin lista og þá færðu alltaf nýjustu færsluna hjá hverjum og einum án þess að þurfa fara inná hverja heimasíðu fyrir sig og athuga hvort að viðkomandi hafi uppfært. Ég bætti við nokkrum bloggum sem ég kíki inná daglega, vona að það sé í lagi.

Þið getið bætt mér við í bookmarks með því að ýta á appelsínugula RSS hnappinn hægra megin á address barinu, svona ef þið viljið ekki nota BloggGáttina.

Engin ummæli: