11.3.07

DVD uppfærsla

Það nýjasta sem horft hefur verið á í Moholti.

Fritt Vilt (2006)
Fritt Vilt er norsk hryllingsmynd. Við horfum á hana með Jón Hauki og Margréti og var viðeigandi að horfa á norska mynd með þeim. Þetta svipar svolítið til íslenskra mynda, svona með landskynning í byrjun og manni finnst leikararnir vera eitthvað svo heimilislegir. Gaman að horfa á norska mynd og æfa sig í norskunni í leiðinni, alveg ágætis spennu/horror hérna á ferð.
Fritt Vilt fær 5 stjörnur.

Flags of Our Fathers (2006)
Mig hefur langað að sjá þessa mynd alveg frá því að tökur byrjuðu á Íslandi. Nokkrir úr vinnunni voru aukaleikarar í þessari mynd og þá var ég einnig búinn að vinna á þessum slóðum. Þetta er ekki alveg þessi týpíska stríðsmynd heldur er hún meira róleg og gengur eiginlega útá að útskýra söguna á bakvið eina frægustu ljósmynd í heimi. Persónulega fannst mér þetta skemmtileg mynd en Anna hraut nú við hliðina á mér í lokin. Einnig gaman að sjá íslenska landslagið úti á Reykjanesskaga.
Þá er næst að horfa á Letters from Iwo Jima sem er um sama bardaga/stríð nema sagt frá sjónarhóli Japana, hún fær einnig góða dóma.
Flags of Our Fathers fær 7 stjörnur.

John Tucker Must Die (2006)
Já ég horfði á þessa mynd í gærkvöldi. Ég var búinn að ákveða að horfa á The Departed en þá tók Kári til sinna mála og ákvað að vera á öskrinu í ca. klst upp í rúmmi. Eftir það var ákveðið að horfa á eitthvað léttmeti sem tæki ekki meira en eina og hálfa klukkustund. John Tucker Must Die var fyrir valinu enda vitað að þar var ekki um mjög flókna mynd um að ræða.
Frekar döpur mynd en maður fékk alveg það sem maður átti von á, heimskuleg gelgjumynd. En maður verður nú stundum að horfa á þannig lagað, er það ekki?
John Tucker Must Die fær 3 stjörnur.

Engin ummæli: