29.10.07

Það sem ég mæli með er...

Nokkuð síðan ég kom seinast með uppfærslu á því sem ég er búinn að vera horfa á. Allavega ætti fólk að vera óhætt að horfa á myndir sem fá yfir 5 í einkunn en getur alveg eytt tímanum sínu í eitthvað annað en að horfa á myndir sem fá 4 og niður. Hérna kemur það nýjast sem horft hefur verið á í Moholti. Gaman væri nú að fá álit annarra kvikmyndaspekinga.

Hot Fuzz (2007)
Góð grín spennumynd, Bretarnir klikka seint þegar kemur að húmor.
Einkunn: Hot Fuzz fær 8

Blades of Glory (2007)
Það eru fáir gamanleikarar sem komst með tærnar þar sem Will Ferrell hefur hælana. Algjör snillingur og fer á kostum í þessari grínmynd. Ég grét af hlátri í einu af skauta atriðinu, það er eitthvað svo fyndið að sjá tvo kallmenn skauta listdans. Má samt ekki taka hana of alvarlega.
Einkunn: Blades of Glory fær 8

Blind Dating (2006)
Við afrekuðum það eitt kvöldið að horfa á tvær myndir á einu kvöldi. Eitthvað sem við höfum ekki gert síðan Kári kom í heiminn. En sem betur fer var hin myndin Blades of Glory, því þessi er mjög svo slæm. Illa leikin og bara léleg mynd, maður hefði átt að vita betur en eins og oft áður þá blekkist maður á því hvað er vinsælt á vídeóleigunum. Getur alveg sleppt henni, þó svo að frúnni langi að sjá rómantíska gamanmynd, því Önnu fannst hún alveg jafn leiðinleg.
Einkunn: Blind Dating fær 4

Breaking and Entering (2006)
Þessi mynd er titluð sem drama/romance/thriller en ég sé mjög svo lítinn romance og thriller yfir svona lélegri mynd. Jude Law að halda framhjá þessari með einhverri sem á fátt sameiginlegt með fegurð. Hrein leiðindi sem ber að forðast.
Einkunn: Breaking and Entering fær 2

Fracture (2007)
Mjög skemmtileg crime/drama/thriller með skemmtilegu plotti. Ryan Gosling (Notebook) er eitthvað fyrir stelpurnar.
Einkunn: Fracture fær 7

Reign Over Me (2007)
Ein besta drama mynd ársins, mjög flott mynd.
Einkunn: Reign Over Me fær 8

United 93 (2006)
Öðruvísi heimildarmynd um 9/11, góð mynd.
Einkunn: United 93 fær 8

Deja Vu (2006)
Denzel Washington í einhverri vísindaskáldskaps vitleysu. Söguþráðurinn er frekar asnalegur en jú, ágætis spennumynd, ágætt í neyð.
Einkunn: Deja Vu fær 5

Perfect Stranger (2007)
Ágætis glæpómynd með Bruce Willis og Halle Berry.
Einkunn: Perfect Stranger fær 6

Disturbia (2007)
Þessi kom manni nokkuð á óvart, skemmtilega spennandi.
Einkunn: Disturbia fær 7

Flyboys (2006)
Ágæt flugmynd/stríðsmynd en ekki mikið meira en það.
Einkunn: Flyboys fær 6

The Lookout (2007)
Voðalega þunglynd mynd eitthvað, hélt ég væri að fara horfa á meiri spennu en allir voða óhamingju samir eitthvað, nær rétt í 5, mæli samt ekki með henni.
Einkunn: The Lookout fær 5

Knocked Up (2007)
Ein besta grínmynd ársins, eða á ég að segja rómantíska grínmynd? Allavega mjög skemmtileg mynd.
Einkunn: Knocked Up fær 8

Mr. Brooks (2007)
Kevin Costner góður í þessari skemmtilegu crime/drama/thriller.
Einkunn: Mr. Brooks fær 8

Apocalypto (2006)
Spennadi og skemmtileg mynd eftir Mel Gibson, frekar subbuleg en það gerir þetta bara skemmtilegra.
Einkunn: Apocalypto fær 8

The Number 23 (2007)
Leiðinleg hrollvekja, drama, mystery...
Einkunn: The Number 23 fær 4

Jæja þetta er orðið alltaf langt...næst ætla ég að láta líða styttra á milli svona pósta, ætla að reyna að halda áfram að gefa öllum myndum sem ég sé á árinu einkunn. Vonandi nennir einhver að lesa þetta og gefa sitt álit.

Engin ummæli: