Kláraði síðustu tvo þættina af 24 í gærkvöldi, úff hvað þetta var skemmtilegt sería. Held svei mér þá að þetta hafi verið sú besta.Lítið sem ekkert af svona frekar pirrandi persónulegum vandamálum og alveg ótrúlega góð "twists" á söguþræðinum. Þá lýst mér einnig vel á næstu seríu. Bless í bili Jack, sjáumst í haust.
Fyrir áhugasama þá á ég fyrstu tvær seríurnar af 24 á DVD diskum.
Annars held ég að 24 sé það besta sem í boði er í sjónvarpinu í dag. Þá góða við 24 er að vandamálin leysast og maður fær alltaf að vita í lokin hver er vondi kallinn og svona. Lost getur verið nokkuð pirrandi ef þetta ætlar að teygjast eitthvað endalaust áfram og einnig Prison Break.
Ég myndi segja að topp 5 listinn væri svona:
24
Prison Break
Desperate Houswives
Lost
Boston Legal
Þá er bara löng helgi framundan og ekkert nema gott um það að segja.


Þá fór svo að þannig Finnarnir unnu Júróvision, ég var bara mjög sáttur við það enda hélt maður með þeim, fannst lítið varið í önnur lög.
Þá vann 





