Í fyrsta lagi gekk mér ekki vel í prófinu, las kennarann vitlaust og hann spurði um efni sem ekki margir bjuggust við og algjörlega á skjön við fyrri próf. Aftur á móti virðist flesum hafa gengið illa þannig það er alltaf smá sárabót. Ég sagði við tvo samnemendur mína að deginum yrði bjargað þegar Liverool myndi vinna AC Milan en...
Í öðru lagi tapaði svo Liverpool fyrir AC Milan í meistaradeildinni eins og flestir vita. Einhvernvegin hélt ég að ég yrði meira vonsvikinn eftir leikin heldur en raun bar vitni. Mér finnst Liverpool hafa verið betri aðilinn í leiknum en þeir voru ekki nógu góðir í að klára færin og eins og margoft hefur verið sagt þá gengur fótbolti útá að skora mörk! Horfði svo á fögnuðinn hjá AC Milan og gat ekki annað en samglaðst smá með þeim útaf hvernig fór fyrir þeim í Istanbul. Þannig að ætli þetta hafi ekki verið sanngjart á einhvern hátt! Ég er sammála þessari grein.Þannig að nú er fótboltinn búinn í bili og það er alveg á hreinu að mikið verður að gera hjá Liverpool í sumar. Fowler, Dudek, Zenden, Gonzales og örugglega Bellamy eru að fara frá Liverpool.
Ég vill sjá framherja sem kann að skora mörk og vinstri kantara koma í sumar!
Jæja meira steypa!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli