Smá uppfærsla á hvað maður er búinn að vera að horfa á í DVD spilaranum, sumt gott annað ekki.
The Illusionist
Mjög góð mynd með þeim Edward Norton og Paul Giamatti. Lítið um það að segja, horfðum á hana með litlar væntingar og kom skemmtilega á óvart. Hún fær 7,7 á imdb og er ég nokkuð sammála því.
The Illusionist fær 8 stjörnur
Silent Hill
Var eitthvað að misskilja með þessa mynd. Hélt að Demi Moore léki í henni en svo var ekki. Alveg hræðilega leiðinleg hrollvekja, svona mynd sem fer í taugarnar á manni og ekki á skemmtilega hátt.
Silent Hill fær 2 stjörnur
The Last Kiss
Mér hefur alltaf fundist Zach Braff mjög skemmtilegur leikari. Hann velur bíómyndirnar vel og Scrubs eru náttúrulega snilld. En þessi mynd er svona rómantík/drama og fjallar um 29 ára mann (og vini hans) sem eru í tilvistarkreppu yfir því að þeir eru að verða 30 ára. Raunverulega sett fram maður getur alveg séð þetta gerast, mjög góð mynd.
The Last Kiss fær 7 stjörnur
Svo fara fullt fullt af myndum að fara koma út þannig að það er alltaf nóg til að horfa á.
15.2.07
12.2.07
Uppþvottalögur
Já það var gleðidagur í dag, fjölskyldan fór nefnilega og keypti sér nýjan uppþvottalög. Ekki nýja uppþvottavél heldur nýjan uppþvottalög, já þið lásuð rétt. Sá gamli var nú alveg ómögulegur og var fjölskyldufaðirinn á heimilinu mjög ósáttur við hann alveg frá upphafi. En nú er kominn nýr uppþvottalögur og betri tímar eru í vændum.
Ef maður reiknar dæmið aðeins og gefur sér að maður eyði 15 mín. á dag í uppvask þá gerir það 91 klst á einu ári. Þetta sýnir hvað mikilvægt er að vera með góðan uppþvottalög...
Kári aðeins erfiðari í nótt tók ca. klst um 10 leitið og svo aftur um 3:30. Þetta stóð tæpt en maður gaf sig ekki, stál taugar.

11.2.07
Mæðradagurinn
Þá vildi ég nú einnig óska móður minni til hamingju með daginn, til hamingju með daginn elsku mamma mín. Þú færð þessa mynd af syni þínum og barnabarni í tilefni dagsins.Eins og sést á myndinni fór ég í klippingu líkt og Kári. Nú erum við feðgarnir með alveg eins klippingu. Man ekki hvort ég var búinn að tala um það hérna en Kári var sem sagt snoðaður fyrir rúmri viku síðan. Var kominn með mis sítt hár og einnig mismunandi á litinn. Ég fylgdi svo í kjölfarið um helgina og lét hárið fjúka enda var það komið á það stig að maður var farinn að þurfa að greiða sér, sem gengur náttúrulega ekki.
Kári vs. Örvar #2
Svefnátakið gekk mjög vel í nótt. Kári vaknaði tvisvar og það tók ekki nema 20 mín að sofna. Rétt yfir 6 vaknaði hann svo aftur og þá var kominn tími á að fá sér að drekka, sem hann gerði og hélt svo áfram að sofa til 8. Ég hélt að maður ætti að vera þreyttur eftir svona svefnátakshelgi en ég er nú bara úthvíldur :)
Maður má samt ekki vera of bjartsýnn. Þriðja umferð fer svo fram í kvöld.
Maður má samt ekki vera of bjartsýnn. Þriðja umferð fer svo fram í kvöld.
Merki:
Kári
10.2.07
Kári vs. Örvar
Já það var stórbardagi í nótt en Örvar stóð uppi sem sigurvegari kvöldsins/næturinnar. Allt snýst þetta um andlega styrk og eftir ótal píb-test og með þrjóskuna sér í liði þá er allt hægt.
Fyrir þá sem ekki fatt um hvað ég er að tala þá fóru við í svefnátak í gær, byrjaði eiginlega á föstudaginn. Kári var farinn að vakna alltof oft á nóttunni einmitt þegar hann á að fara minnka það. Þannig að nú var helgin tekin frá og málið verður afgreitt.
En stríðið er ekki búið þó að ég hafi unnið einn bardaga, lota tvö er í kvöld...

3.2.07
Ljósmyndir
Ég átti alltaf eftir að benda fólki á myndasíðuna hans Jóns Hauks (eða á ég að segja Jóns Hauks, Margrétar og Guðrúnar?).Allavega startaði Jón Haukur síðunni eftir að ég var búinn að nöldra mikið í honum um að maður fengi aldrei að sjá myndir frá þeim. En nú er betri tíð og myndir detta inn nokkuð reglulega.
Gott framtak og alltaf gaman að geta fylgst með úr fjarska. Skiptir ekki hvort það sé verið að fylgjast með byggingarframkvæmdum, Guðrúnu frænku eða skoða myndir úr ferðalögum.
Þess má geta að Jón Haukur byrjaði að fá ljósmyndadelluna þegar hann var í grunnskóla (að ég held). Stofnaði skáta ljósmyndaklúbb og var að kenna ljósmyndun í einhverjum grunnskólum, bara svona fyrir þá sem ekki vissu þetta.
Hérna er svo linkur á síðuna:
http://jonhaukur.smugmug.com/
Merki:
Ljósmyndir
2.2.07
25.000
Hver verður gestur númer 25.000? Vegleg verðlaun í boði...
Það þarf að fara aðeins neðar á síðuna til að sjá teljarann sem er kominn í 24833 þegar þetta er skrifað...spennandi
Það þarf að fara aðeins neðar á síðuna til að sjá teljarann sem er kominn í 24833 þegar þetta er skrifað...spennandi
Merki:
Daglegt
Afmælisbarn dagsins
Til hamingju með afmælið elsku mamma mín, við hugsum til þín í dag. Verst að komast ekki í heimsókn og fá eitthvað gott að borða :)
Merki:
Daglegt
1.2.07
Uppfærsla
Ennþá veikur, held ég sé bara að versna...
...djöfulsins.
Annars tek ég til baka með að Anna sé ekki að sinna mér, hún er best í heimi.
Þá er hláka í Þrándheimi í þessa dagana, samt minnkar snjórinn ekkert, bara hálka, er að spá í að fara á skautum í skólann á morgun...

29.1.07
Veikindi
Mikilil fjör helgi að ljúka hérna í Moholti. Kári var veikur alla helgina með 38,5 stiga hita, voðalega lítill strákur sem þurfti að sinna mikið. Þannig að ekkert varð af skíðferðinni upp í Vassfjellet og í staðin var ekki farið út úr húsi.
Ég hélt nú að maður gæti nú ekki smitast af svona litlum manneskjum en ég virðist hafa náð mér í veikindin frá litla manninum. Ég er búin að snýta af mér nefinu og ekki fær maður svo neina aumkun frá hjúkkunni á heimilinu. Maður þarf að vera með 40°+ stiga hita og ælandi blóði til að ná athygli hennar. Ekki taka mark á henni í comment kerfinu.
Skiptum aðeins um gír. Á föstudaginn var horft á eina hræðilega, The New World með Colin Farrel, úff. Fyrstu klst er einhvers konar ljóðalestur yfir einhverjum leiðindum. Mæli eindregið ekki með þessari mynd, hún fær 3 stjörnur í mínum bókum (þeas af 10).

Daglegt,
Kvikmyndir
24.1.07
Snjór og ljósmyndun
Það er búið að snjóa mjög mikið hérna í Þrándheimi seinustu daga og er allt á kafi. Þegar við vorum að fara í barnasund í gær þá ætlaði ég ekki að finna bílinn útá stæði því það var snjór yfir 80% af bílnum. Ætli það hafi ekki verið svona 20 cm nýfallinn snjór ofan á bílnum, og það eftir einn dag.
Þá setti ég nýjar myndir inná flickr. Þetta eru myndir frá ferð til Frøyja sem ég fór í með einu faginu sem ég er í. En Frøyja er eyja á vesturströndinni í ca. 3 klst aksri frá Þrándheimi.
Hérna er linkur á þessar myndir.
Merki:
Ljósmyndir,
ljósmyndun
23.1.07
Leggja inn
Kannski maður skellir sér og leggur inn í bankann!!!
22.1.07
Yfirvikt?
Ég held að það sé alveg hægt að uppljóstra því hérna á veraldarvefnum að nú er þyngdin í sögulegu hámarki hjá mér (eða var það um jólin).
Þannig að þeir sem hafa heyrt sögur um J-ö rassinn í mínu "stærsta" ástandi, sem var fyrir 4 árum síðan, geta núna séð þetta með eigin augum því nú er ég þyngri en þá. En spurning hvort að öll þessi hjólamennska láti mig núna fá bumbu í staðinn, ekki J-ö rass :).
Nú get ég ekki hætt að borða nammi eða hætta að drekka gos eins og ég gerði forðum daga þannig að nú ákvað ég að hætta í snakkinu og kannski minnka bjórinn. Helvíti slæmt það en eitthvað verður maður að gera.
Þá fór ég í minn fyrsta bolta hérna í Norge, þetta var opinn tími og ég skellti mér með Nonna. Þetta var bara helvíti gaman og flottur vinnubolta standar á þessu. Annars þarf maður að vera duglegur að fara í þennan bolta og kannski að fara lyfta og hlaupa, aldrei að vita. Maður er nefnilega kominn með kort í NTNUi og kostaði hálft ár heilar 300 kr norskar eða ca. 3300 kr.
Nóg í bili, Jack Bauer bíður...ha det

21.1.07
Snjór
Niðurstaða:
Mission Impossible: 6
Hostel: 5
20.1.07
2007
2007 gengið í garð eins og flestir ættu að vera búnir að átta sig á. Hef verið latur að koma mér af stað í blogginu eftir langt og gott jólafrí heima. Allt komið á fullu í skólanum og er ég að reyna að einbeita mér af því.
Það er fullt af frétta af Kára og ég ætla að benda fólki á barnalandssíðuna hans, þar sem móðir hans er mjög dugleg að skrifa og setja inn myndir.
http://www.kariorvarsson.barnaland.is/
Fólki sem enn vantar aðgang getur sent tölvupóst á mig: orvars@gmail.com eða annahardar@gmail.com
Annars er það að frétta að Ívar og Auður voru að eignast lítinn strák 17. jan. Ég er auðvitað marg búinn að óska þeim til hamingju og vildi ég óska þess að geta verið á landi til að sjá Örvar Ívarsson í eigin persónu, læt netið þó duga í bili.
Fer svo vonandi að taka mig á í myndasíðunni, það er bara svo margar myndir, meira en mánuður sem á eftir að koma þarna inn. En maður reynir.
Við skulum þá segja að ég sé kominn af stað og þá má vænta fleiri frétta og stöðugri fréttaþjónustu frá Þrándheimi.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)