Létt rúll í Heiðmörkinni. Frekar þreyttur eftir Esju gærdagsins en fór samt út. Var alveg orkulaus frá byrjun og minnkaði hringinn sem ég ætlaði að fara niður í 12km. Fór meðfram vatninu og svo inn í Heiðmörk, tók svo hringinn í kringum Vatnsendahlíð og endaði í 13,6km á 1:07 klst.
23.5.13
13,6km í Heiðmörk

Merki:
Hlaup
22.5.13
Esja #4 2013
Lagði af stað frá Esjumelum eftir kvöldmat í sól og nánast logni. Ennþá smá þreyta eftir Hvítasunnuhlaupið á mánudaginn en allur að koma til.
Reyndi að hlaupa sem mest en án þess að pína mig neitt of mikið. Endaði á að fara upp að steini á 29:38. Hélt svo strax áfram upp að skífu og svo þegar ég var kominn þangað hélt ég áfram alveg útaf brún hinum megin á fjallinu, horfði þar niður í Blikdal. Það var mikil drulla og snjór og erfitt um hlaup uppá topp en skemmtilegt engu að síður.
Svo var það niður leiðin sem gekk fínt en þreyttur í lærum þegar ég var kominn niður. Var í heildina 1:31 og fór 12,3km en það er lóðrétt hækkun sem telur líka, ekki bara km.
Merki:
Hlaup
20.5.13
Hvítasunnuhlaup Hauka
Var mættur ca. 30 mín fyrir hlaup niður á Ávelli heimavöll Hauka. Ekki tók veðrið vel á móti manni því það kom alveg úrhellisrigning rétt áður en við mættum á svæðið. Biðum veðrið af okkur en eftir það kom þetta fína veður.
Sæmilega ferskur en nokkur óregla á svefninum um helgina. Fyrirfram var ég að velta því fyrir mér hvort maður gæti elt fremstu menn sem mér datt í hug að yrðu Björn Margeirs, Biggi Sævars og Friðleifur. Björn datt út stuttu fyrir hlaup og svo bættist Þórólfur í hópinn. Fór því af stað á eftir Bigga og Friðleif ásamt Þórólfi, Guðna og einum FH-ingi. Friðleifur var fremstur og fór hratt af stað. Þessi hópur hélst alveg fyrstu 5km og var ekki meira en ca. 50m á milli fremsta og síðasta. Svo við Hvaleyrarvatn fór aðeins að teygjast á hópnum. Biggi og Friðleifur fóru aðeins á undan, ég og Þórólfur héldum hóp og svo komu Guðni og FH-ingurinn.
Í kringum Stórhöfða gaf Friðleifur aðeins eftir og Biggi tók forustuna. Ég fór svo framúr Friðleifi upp Stórhöfða og þá voru þeir Friðleifur, Þórólfur og Guðni mjög stutt fyrir aftan mig. Gaf vel í á leiðinni niður en þar var enginn stígur til að fara eftir og mikið af grjóti, náði að reka tánna svakalega í einn stein á þessum kafla og var það nokkuð vont en truflaði mig ekki mikið. Hélt svo góðu rúlli áfram í átt að Hvaleyrarvatni, Þórólfur rúllaði framhjá mér á vegkaflanum eftir ca. 12km. Guðni var svo alveg að ná mér í skóginum við Hvaleyrarvatn. Svo var hlaupið meðfram Hvaleyrarvatni og upp aflíðandi brekku þar sem maður skiptist á að hlaupa og labba og var ágætis hvíld í því til að undirbúa sig fyrir loka kaflann á leiðinni.
Náði Þórólfi fljótlega og gaf svo vel í niður síðustu brekkuna fyrir ofan Ástjörn og fór framúr honum, hann var samt fljótt kominn fyrir aftan mig. Við vorum hægt og rólega að vinna á forskot Bigga en án þess að fara ná honum. Þegar við komum út á malbikaða stíginn við Ásbraut þá gaf Þórólfur í og fór framúr mér, hafði ekki í hann á loka sprettinum. Endaði í 3 sæti á tímanum 1:15:05. Þórólfur var í öðru sæti á 1:14:55 og svo Biggi í fyrsta á 1:14:44.
Við fengum allar gerðir af veðri, sól, rigning, næstum því haglél, rok og líka logn. Hlaupaleiðin var mjög skemmtileg og fjölbreytt, malarstígar, grófir kindastígar, malarvegir, brattar brekkur og skógarstígar. Leiðin var skv. mínu gps 17:42km.
Þetta hlaup er komið til að vera og mun ég mæta að ári. Sigurjón Pétursson tók þessar skemmtulegu myndir úr hlaupinu.

10.5.13
Morgunskokk
Morgunskokk hringurinn, smá stirður eftir gærkvöldið og hálf orkulaus eitthvað, var feginn að þetta var ekki lengra. Endaði á 7,7km á 38:20.
9.5.13
Rólegt í kringum Vatnið
Rólegt í kringum vatnið og Norðlingholt. Var orðinn eitthvað þreyttur
eftir smíðadag á pallinum og varla að nenna út eftir mat... en var svo
nokkuð laus við þreytu þegar maður var kominn af stað og endaði í
þægilegu kvöld skokki í mildu veðri.
Fyrsta stuttbuxna hlaup sumarsins og var það gott að komast úr síðbuxunum þó svo það hefði verið ennþá betra ef maður hefði komist út fyrr um daginn í sólinni.

8.5.13
Stór fræðsluhringurinn
Vor í lofti og ég ákvað að skella mér út eftir kvöldmat og fara stóra fræðsluhringinn í Heiðmörkinni. Frábært að vorið/sumarið sé loksins að detta í hús, langt síðan að maður hefur hlaupið meðfram vatninu í svona blíðu og svo að koma aftur af heiðinni og sjá yfir vatnið í kvöldsólinni og kyrrðinni var magnað.
Smá þreyta eftir Esju gærkvöldsins en maður rúllaði þetta nokkuð rólega.
16,5km á 1:19 klst.

7.5.13
Esja nr. 2 2013
Var frekar slappur á sunnudaginn og tók því auka hvíldardag til að ná kvefinu úr mér. Var því mættur ferskur út á Esjumela í kvöld í logni.
Skokkaði smá upphitun að Esjurótum og svo var reynt að skokka eins langt og maður komst, fór "hlaupandi" að fyrstu brúnni í gilinu og var þá farinn að finna fyrir í kálfunum, gekk svo upp tröppurnar í gilinu og náði svo að skokka sæmilega þangað til að slóðarnir skiptust. Þá tók kraftganga við og þá voru kálfarnir orðnir eins og grjót og lítið þægilegt við það, skánaði svo smá saman eftir því sem ofar dróg. Mikið af drullu þegar maður fór af stígnum yfir á "grasið".
Ennþá smá snjór fyrir neðan stein og náði ég að klöngrast þangað á 30:05, fólkið sem var að hvíla sig við steininn hefur ekki vitað sitt rjúkandi ráð þegar andsetinn maður æðir í átt að steininum bara til að renna í seinustu skrefunum og ná ekki undir 30 mín :).
Fór svo eftir smá hvíld upp á topp og það allt í snjó, gekk vel og datt ekki oft í gegn. Frábært útsýni uppá topp og aðeins smá gola fór þennan legg á 10:40.
Fór samt í gormana og fór varlega niður klettana og svo tók maður til fóta. Lærin fengu að kenna á því á leiðinni niður 6:xx niður að steini og tæpar 17 frá steini alveg niður að brú við Esjuskálann.
Flott æfing í frábæru veðri. Nú má þetta vor fara láta sjá sig.

Fjallganga,
Hlaup
6.5.13
Vika 18 - 29.04-5.5
Sæmileg vika að baki. Var frekar mikið stífur í kálfum á mánudaginn, eitthvað betri á þriðjudaginn og tók þá fyrstu Esju ársins sem var gott að ná svona snemma í maí. Fór svo frekar þéttan 17km hring í Heiðmörkinni á miðvikudaginn sem tók greinilega kraftinn úr mér. Var virkilega þreyttur fimmtudag og föstudag og sæmilega sprækur á laugardaginn en líklegast hlaupið aðeins of lengi í bleytunni og sló svo niður á sunnudeginum með kvef. Hvíld því í allavega tvo daga til að ná þessu úr mér.
Vikan endaði í 84 km og 7:21 klst + tvö fjöll, Esjan og Helgafell sem er góð æfing fyrir Laugaveginn.

Endurance: Shackleton's Incredible Voyage
Rakst á þessa bók þegar ég var að vefra um Goodreads.com, varð forvitinn um hana sérstaklega vegna ferðar Vilborgar til suður skautsins og einnig vegna eldri bróðir míns sem hefur lesið mjög mikið af bókum um ævintýrin á suðurskautinu.
Alveg hreint ótrúleg bók um magnað ferðalag Ernest Shackleton um suðurskautið. Endurance er virklega gott nafn á þessari bók og gefur orðin vosbúð aðra merkingu.
Búinn að hlusta á hana í hlaupatúrum í roki og rigningu á Esjuna og Helgafellið og því lítið hægt að kvarta yfir sínum "þrekraunum" þegar maður hlustar á þessa bók.
Svona bækur ættu að vera skildu lesning.

Bækur
4.5.13
Helgafell
Fór að heiman og hélt að það væri betra veður úti eftir að hafa verið að horfa á fótboltamót í víkinni fyrr um daginn. Sem betur fer fór ég nú í jakka og var með puff og griflur því annars hefði ég líklegast snúið við eftir einhverja km. Ætlaði upphaflega að fara í Heiðmörkina en svo breytti ég og ákvað að reyna að finna einhverja sæmilega leið upp á Helgafellið.
Gleymdi svo að kveikja á gps-inu fyrr en ég var kominn lang leiðina af Vífilstaðahlíð. Hljóp þaðan upp að Búrfellsgjá en var svo týndur út í móa eftir það. Búinn að sjá einhverja merkingar á kortum um að það sé slóð þaðan að Helgafelli en er alveg fyrirmunað að finna hana. "Hljóp" því eins og leið lá í áttina að Helgafelli, þveraði svo Valahnjúka og þá loksins birtist slóð sem lá beinustu leið uppá topp. Smá bratti fyrst en svo var þetta hæfilegt. Gekk allan tímann með mikinn vind og slyddu í andlitið. Alveg kominn með nóg af þessari vetrarfærð á vormánuðum. Hljóp svo niður með vindinn í bakið. Vissi að ég kæmist á slóða frá Kaldárseli og fór þá í þá átt eftir Helgafellið. Beygði svo frá veginum á réttum stað og datt inn á hestaslóðann sem liggur alla leið út í Heiðmörk og fór sem leið lá heim.
Frekar þreyttur í lokin enda búinn að vera 2:30 klst með þessa 26 km sem ég fór. Fann fyrir smá eymslum í hægri hæl eftir hlaupið.
Virkilega kaldur og blautur eftir þetta hlaup og endaði svo með því að ég var orðinn hálf slappur á sunnudeginum með einhverja kvefdrullu.

3.5.13
Aftur þreyttir 10km
Fór aftur úr vinnunni en í þetta skiptið eftir vinnu og áður en það var boðað til afmælisveislu í vinnunni. Akkúrat ekkert skárri en á fimmtudaginn og bara þreyttir ef eitthvað var. Einn af þessum hlaupatúrum sem maður hefði betur átt að sleppa. 10 km á 49 mín.
Merki:
Hlaup
2.5.13
Þreyttir 10km
Frekar þreyttur, eftir Esjuna á þriðjudag og 17km í Heiðmörk á miðvikudag. Lullaði í hádeginu hringinn inn í Elliðaárdal og tók einn hring í Eyjunni og svo aftur í vinnuna, mikið rok úti og kalt. Ennþá vetur 2. maí. Fór 10 km á 47 mín.
Merki:
Hlaup
1.5.13
Stóri fræðsluhringurinn í Heiðmörk
Fór út að hlaupa um kl. 17 og stefnan tekin á Heiðmörk. Ísköld norðan átt fyrstu 4 km meðfram vatninu og svo hlýnaði nú eitthvað þegar maður fór fram hjá Helluvatni og inn í Heiðmörk. Var með merkilega lítið af harðsperrum eftir Esju gærkvöldsins en fann þó alveg fyrir því. Rúllaði stór fræðsluhringinn og gekk það vel. Frekar mikill vindur og hiti um -1°C.
Fór 16,5km á 1:17.
Fór 16,5km á 1:17.
Merki:
Hlaup
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)