30.4.13

Fyrsta Esja ársins

Fyrsta Esja ársins. Fór eftir kvöldmat upp að Esjumelum og lagði þar. Hljóp svo í mótvindi í-4°C í átt að Esjustofu. Mótvindur alla leið upp en skjól á köflum, prófaði að fara vinstra megin upp og því lítið hægt að hlaupa þar. Hljóp aðeins í byrjun en lítið eftir það, snjór þegar maður fór að nálgast steininn og nokkuð hálft, var ekki á broddum og rann nokkuð. Var 32:39 upp að steini og nokkuð sáttur við það.

Hljóp svo niður hægri leiðina, þar var frekar hálft í efri hlutanum en slapp til, var næstum því runninn á rassinn 1x en það slapp. Lærin fengu svo að finna fyrir því á leiðinni niður og tók það 20 mín. Skokkaði svo aftur upp að Esjumelum og endaði æfingin í 9,65km á 1:09. Fínasta æfing og frábært útsýni þó svo að það hafi mátt vera aðeins hlýrra og minni vindur. Nú verður reynt að fara 1x í viku á Esjuna.

Engin ummæli: