Langaði að taka stöðutékk á forminu og skráði mig því í Víðavangshlaup ÍR sem fór fram á sumardaginn fyrsta. Veðrið ekki það besta en það var talsverð rok úr norðri sem hafði áhrif á Sóleyjargötu og Fríkirkjuvegi.
Var mættur niður í Ráðhús ca. 20 mín fyrir hlaup, tók létta upphitun í kringum tjörnina og kom mér svo fyrir í startinu.
Fór slatti af fólki frekar hratt af stað og maður var í grúbbu 2 á eftir fremsti mönnum (og stelpu). Hélt mig í þeim hóp fyrstu 2km og reyndi að finna skjól á móti vindi niður Sóleyjargötu og Fríkirkjuveg. Eftir beygjuna inná Suðurgötu reyndi ég aðeins að gefa í til að fækka aðeins í hópnum og það tókst, eftir það vorum við 4, ég, Geir, Þórólfur og Róbert. Á Skothúsveginum tók Geir forustuna og hélt henni alveg þangað til við vorum aftur komnir á Skothúsveginn, þá vorum við þrír jafnir, ég, Geir og Þórólfur. Eftir beygjuna inn Tjarnargötuna náði Þórólfur forustu og ég stakk mér á undan Geir. Svo var bara allt gefið í botn og allt klárað af tankinum og ég náði rétt svo að stinga mér á undan Geir í mark.
Varð í 7. sæti á 17:41 sem ég var bara mjög ánægður með. Ekki langt frá mínum best 5km tíma.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli