27.4.13

Vormaraþon FM


Ákvað að taka annað keppnishlaupið á þremur dögum og skráði mig á föstudaginn í hálft maraþon í Vormaraþoni félags maraþonhlaupara. Veðurspáin var ekki góð fyrir hlaupið, íslenskt haustveður, rok og rigning en ég vildi taka gott stöðu tékk á forminu og því var ekkert annað en að mæta og taka á því sama hvernig veðrið yrði.

Var mættur niður í Fossvog ca. hálf tíma fyrir hlaup, hálf kalt svona um morguninn, rigning og rok, varla að maður vildi fara út úr bílnum. Maður komast þó af stað og tók 3km upphitun og það hjálpaði aðeins í að losna við mesta stífleikann í kálfunum. Var kominn með frekar miklar harðsperrur í kálfana eftir 5km hlaupið á fimmtudaginn.

Ég var eitthvað hálf utan við mig í startinu og áður en ég vissi af var búið að skjóta og allir fóru af stað, ég ekki búinn að kveikja á úrinu og það tók smá tíma að detta inn. Fórum frekar hratt af stað (~3:40 hraði) og vorum fljótt fjórir í hóp; ég, Siggi Tomm, Róbert og Guðni Páll. Vissum að það yrði gott að halda vel í hópinn í þessum mótvindi (ca. 10m/s) sem yrði alveg út á nes. Héldum áfram að keyra þetta frekar hratt en vorum komnir á ~3:50 hraða á km 3 og 4. Siggi var að keyra þetta full hratt og leyfðum við honum aðeins að sigla á undan eftir HR í Öskjuhlíðinni. Hjá vatnsstöðinni við HR slappaði svo Guðni Páll aðeins á gjöfinni. Ég og Róbert vorum þá tveir og Siggi aðeins á undan, þegar við beygjum svo aftur vestur eftir strax eftir Nauthólsvík þá gaf Siggi aðeins eftir til að leyfa okkur að ná sér. Ég og Siggi skiptumst svo á að leiða til að halda uppi hraðanum í mótvindinum. Gekk vel og var ég alveg gáttaður hvað við náðum að halda góðum hraða í þessum aðstæðum. Við snúnings punktinn fékk maður svo auka orku bæði við að fá vindinn í bakið og svo einnig að mæta öllum hlaupurunum. Fór þennan kafla aðeins of hratt enda að hlaupa á ca. 3:40-3:44 hraða. Eftir 12km gaf ég því aðeins eftir og Siggi tók forustuna í hópnum, þarna var Róbert kominn ca. 100m fyrir aftan okkur. Tók smá á að fá aftur mótvindi þegar maður beygði til norðurs við Nauthólsvík en maður hélt þá svipuðum hraða áfram ca. 3:50. Bilið á milli okkar Sigga jókst svo á þessum kafla í ca. 100m og hélst það svo nokkuð stöðugt þangað til í lokin. Orkan farinn að minnka aðeins og farinn að finna fyrir þreytu þegar maður var kominn aftur niður í Fossvog, því erfitt að hlaupa í gegnum markið og vita að það voru 4km eftir og tveir síðust talsvert uppímóti og einnig með mótvind. Gott að komast á stokkinn og sjá hvar maður var staddur í hlaupinu. Kári Steinn var að leiða hlaupið og Ingvar á eftir og svo Arnar Péturs, Siggi svo ca. 100m á undan mér og Róbert ca. svipað á eftir mér. Svo staulaðist maður bara áfram í lokin dauðþreyttur í mótvindi og uppímóti og fannst ég vera farinn að hægja á mér þó svo að úrið segi ekki þá sögu. Seinustu 400m voru erfiðir en alveg frábært að klára og aðeins 20 sek frá mínum besta tíma á 1:20:38. Vissi ekki alveg á hvaða tíma ég var að hlaupa á allt hlaupið útaf þessu rugli í byrjun og tók þetta meira eftir tilfinningunni.
Fréttum svo þegar við vorum komnir í mark að Siggi hafði lent í 3. sæti og ég því í 4 sæti, því Kári Steinn hafði verið að pace-a Ingvar og Arnar.
Mjög ánægður með tímann og formið á þessum tímapunkti miðað við að hæfingar í vetur hafa ekki gengið nægilega vel. Hefur þó allt verið á uppleið undanfarið og var þetta gott stöðutékk á forminu.

Vil þakka félagi maraþonhlaupara fyrir að halda þessa frábæru keppni. Alltaf gaman að keppa og hitta aðra hlaupara á Íslandi og góð tímasetning á þessum hlaupum til að auka við flóruna í heilu og hálfu maraþoni.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Fín frásögn. Takk fyrir þetta.
Eigum helling inni...