Þá er bara heil vinnu viku framundan, hvaða dónaskapur er það? Maður getur samt huggað sig við það að það er þriggja daga helgi eftir þessa viku þökk sé Verkalýðsdeginum.
Þetta er búið að vera fínt frí. Tók mér föstudaginn í frí þannig að ég náði 4 daga helgi eftir tveggja daga vinnu viku, ekki slæmt það.
Helgin fór samt mest í að mála heima fyrst var ég að hjálpa pabba með að mála inni og svo tók ég einnig herbergið í íbúðinni hjá mér og Önnu. Anna var orðin leið á geljublá litnum á herberginu, þannig að nú er það orðið hvítt og fallegt.
Þá hátti Auður hans Ívars afmæli og varð 27 ára á miðvikudaginn og var haldið innflutnings/afmælis partý hjá þeim á miðvikudaginn og var bara feiknar góð mæting þó svo að vinahópurinn hafi nú verið nokkuð rólegur.
Skemmtilegt að segja frá því að þegar ég var búinn að smella einni af partý gestum var myndavélinn þeirra full, gott að eiga digital myndavél en ekki tölvu...
Ekki má gleyma því að Liverpool vann Chelsea verðskuldað 2-1 en samt fann Morinho einhverja afsökun á tapinu. Maður er mjög veruleika firrtur, það er alveg á hreinu.
Þá sá ég einnig tvær bíómyndir um helgina sem ég nenni nú ekki að fjalla neitt sérstaklega um.
The Interpreter fær 6,5 Örlish
Stay fær 5 Örlsih, ef einhver fattar þessa mynd má sá hinn sami tala við mig. Samt er klipping og myndataka mjög flott í þessari mynd.
Þá fór ég alveg á skrið í Prison Break í gær, horfði á 3 þætti og það var mjög erfitt að láta þar við sitja. Ekkert eðlilega góðir þættir enda er byggingarverkfræðingur í aðalhlutverki.
Kveðja
Michael Scofield
24.4.06
19.4.06
Páskarnir
Páskarnir voru mjög góðir og maður náði að gera heilmikið. Eins og áður hefur komið fram þá fóru ég og Ívar norður til Akureyrar á skíði.
Við náðum alveg 3 og hálfum tíma á skíðum á fimmtudaginn í fínu færi og veðri og það sem betra var engar raðir. Fimmtudagskvöldið var rólegt þar sem það var horft á The Adventures of Ford Fairlane. Hún var nú betri í minningunni en alveg hægt að hlæja hvað hún var hallærisleg.
Föstudagurinn var tekinn snemma enda alveg stórkostlegt veður úti. Vorum mættir með fyrstu mönnum upp í fjall og náðum góðum tveimur tímum áður en fjallið fylltist alveg. Talað var um 5000 manns í fjallinu enda eitt besta veður á staðnum í mörg ár. Hinni kom svo og náði í okkur upp í fjall og var farið í góðan hádegismat á meðan mesta ösin var.
Ívar datt svo nokkuð harkalega tvisvar þegar við vorum mættir aftur upp í fjall og hættum við þá enda færið orðið nokkuð slæmt.
Um kvöldið var svo farið á KEA í brilliant mat til Hinna og svo á djammið svo var nú bara helvíti gaman.
Sem sagt snilldarferð og myndirnar koma vonandi bráðlega inná netið.
Þá fór ég og Anna einnig upp í sumarbústað sem var mjög gott að venju.
Þannig að páskarnir mínir fá topp einkunn enda algjör brilli.

Myndir frá Siglufirði
Þá er ég loksins búinn að setja myndirnar frá Siglufirði inn. Við strákarnir förum í skíða og menningarferð til Siglufjarðar helgina 24-26. mars og var það mjög vel heppnuð ferð en myndirnar nokkuð seint á ferð.Með í för voru Örvar, Ívar, Kiddi, Gísli og svo kom Hinni frá Akureyri.
Ef þið viljið að einhver mynd verði tekin niður endilega látið mig vita.
Myndirnar má finna hér til hliðar á Flickr skjöldinum eða bara hér.
18.4.06
Frekar huggulegur...
Það verður líklegast ekki komist hjá því að fjalla um þetta.
Þetta birtist í Fréttablaðinu á laugardaginn í lesendur spyrja Ásthildi Helgadóttir.
Ég vil bara taka það fram að þó svo ég sé nú alveg sammála henni Ásthildi um að ég sé lang myndalegastur á Línuhönnun þá verð ég bara að koma því á framfæri að það var EKKI ég sem sendi inn þessa spurning. Hérna er þetta á visir.is
Brandararkallinn sem sendi þetta inn má vinsamlegast gefa sig fram því ég verð nú að viðurkenna að þetta var helvíti fyndið að þetta skuli hafa birst í sjálfu blaðinu líka.
Mér til sönnunar get ég sagt að allir sem þekkja mig vita alveg að ég myndi aldrei og þá meina ég aldrei segjast vera frá Reykjavík eins og stendur þarna.
Fólkið í vinnunni skemmti sér alla vega konunglega að gera grín af mér í hádeginu.
Kveðja
Þessi huggulegi...
Þetta birtist í Fréttablaðinu á laugardaginn í lesendur spyrja Ásthildi Helgadóttir.
Ég vil bara taka það fram að þó svo ég sé nú alveg sammála henni Ásthildi um að ég sé lang myndalegastur á Línuhönnun þá verð ég bara að koma því á framfæri að það var EKKI ég sem sendi inn þessa spurning. Hérna er þetta á visir.isBrandararkallinn sem sendi þetta inn má vinsamlegast gefa sig fram því ég verð nú að viðurkenna að þetta var helvíti fyndið að þetta skuli hafa birst í sjálfu blaðinu líka.
Mér til sönnunar get ég sagt að allir sem þekkja mig vita alveg að ég myndi aldrei og þá meina ég aldrei segjast vera frá Reykjavík eins og stendur þarna.
Fólkið í vinnunni skemmti sér alla vega konunglega að gera grín af mér í hádeginu.
Kveðja
Þessi huggulegi...
12.4.06
Páskar
Þá er alveg að koma páskafrí, eftir svona 10 mínútur hjá mér...
Ég og Ívar ætlum að kíkja á Akureyri á skíði og fáuum íbúð að láni hjá snillinginum honum Ægi. Þar er stefnt á að fara á skíði aðalega en aldrei að vita nema að einn eða tveir bjórar fái að fylgja með norður.
Þá er ég einnig alveg að vera búinn að ganga frá myndunum frá Sigló. Þær koma samt ekki inn fyrr en eftir helgi.
En ég segi bara gleðilega páska.

Umferð og hálfvitar
Íslendingar geta verið ótrúlega dónalegir í umferðinni. Ekki að ég viti mikið um umferðarmenningu annara þjóð en ekki get ég ímyndað mér að hún sé jafn slæm og gerist hér.
Ég var að hjóla heim úr vinnunni á mánudaginn þegar ég var kominn að Bústaðarveginum þurfti ég að stoppa við gangbraut til að komast yfir. Er það ekki umferðarreglunum að bílar eigi að stoppa fyrir "gangandi" umferð, ég held það.
Allavega þegar svona tveir bílar eru búnir að bruna framhjá án þess að stoppa þá fer ég að gera mig líklegan að komast yfir götuna og set hjólið ansi nálægt gangstéttinni til að sýna að ég ætla yfir og vitið menn, þá er flautað á mig um leið og keyrt er framhjá!!! Hvernig dirfist þér félagi að reyna að komast yfir þegar ég er að drífa mig úr vinnunni hefur ökurmaðurinn(konan) hugsað.
En það var ekki nóg með það heldur keyrðu einhverjir 10 bílar í viðbót framhjá meðan ég stöð þarna með uppréttar hendur í mótmælaskyni.
Og loksins þegar kom rautt á nærliggjandi ljósi þá var einhver ökumaður svo vingjarnlegur að stoppa fyrir mér.
Svona er ísland í dag.

10.4.06
Embla
Embla 01.02.1996 - 07.04.2006Embla var svæfð núna á föstudaginn og var svo jörðuð upp í sumarbústað í Svarfhólsskógi í Svínadal.
Fyrir rúmri viku missti Embla sjónina og einnig virðist þefskynið hafa farið. Þá hefur hún verið að grennast all mikið undanfarna mánuði og allt bendir til að hún hafi verið með sykursýki.
Ég á allavega erfitt að ímynda mér betri hund en hana Embla enda voru margir sem komu við á föstudaginn og kvöddu hana.

31.3.06
Hjóla + Charlie
Hjólaði í vinnuna í góða veðrinu í morgun. Það er ekkert smá frískandi að hjóla svona á morgnanna þá er maður vel vaknaður þegar maður mætir í vinnnu og svo á leiðinni heim getur maður kúplað sig út úr önnum dagsins. Ekki skemmir að vera með einhverja snilld í ipod-inum hennar Önnu. En hún fær bílinn í staðinn.
Horfði á Charlie and the Chocolate Factory í gær og var bara helvíti ánægður með hana. Vissi ekki alveg við hverjum maður ætti að búast og voru því væntingar ekki miklar. Johnny Depp er náttúrulega snillingur og fer á kostum og strákurinn sem leikur Charlie er einnig mjög góður.
Charlie and the Chocolate Factory fær 7 Örlish!
Fyrst það er föstudagur þá verður að fylgja smá bónus. Hérna er myndbandið með Silvíu Nótt, þeas nýja myndbandi á ensku. Hérna er það.
Horfði á Charlie and the Chocolate Factory í gær og var bara helvíti ánægður með hana. Vissi ekki alveg við hverjum maður ætti að búast og voru því væntingar ekki miklar. Johnny Depp er náttúrulega snillingur og fer á kostum og strákurinn sem leikur Charlie er einnig mjög góður.Charlie and the Chocolate Factory fær 7 Örlish!
Fyrst það er föstudagur þá verður að fylgja smá bónus. Hérna er myndbandið með Silvíu Nótt, þeas nýja myndbandi á ensku. Hérna er það.
30.3.06
Pizza og DVD
Reykingar eru óþolandi. Ég bara skil bara ekki afhverju í andskotanum þetta getur ekki verið bannað á veitingastöðum. Ég og frú förum á Eldsmiðjuna í gær og þurftum frá að hverfa vegna þess að aðeins var laust á reyksvæði, og við vorum ekki að fara sitja með fólk ca. 50 cm metra frá okkur í báðar átti að spúa á okkur. No way José eins og þeir segja.
Þá var ákveðið að prufa nýja útibú Eldsmiðjunnar því eins og allir vita eru þetta langbestu pizzurnar í bænum. Staðurinn heitir Reykjavík Pizza Company og er á Laugarveginum. Ekkert að kvarta yfir pizzunum, mjög góðar en þar var einnig betri sætin fyrir reykingarmenn, alveg glatað. Þá var þjónustan þarna slæm eins og á Eldsmiðjunni. Jæja ekki meira um það.
Horfði á Derailed um helgina með Jennifer Aniston og Clive Owen. Myndin byrjar mjög rólega og er hálf leiðinleg til að byrja með. Þetta er svona mynd sem fer svo lítið í taugarnar á manni, allir gera allt vitlaust í myndinni "nei fara þarna, gera þetta" alltaf er það gert, ef þið skiljið mig.
Annars kom smá líf í hana í lokin sem bjargaði henni.
Derailed fær því 6 Örlish!
Þá var ákveðið að prufa nýja útibú Eldsmiðjunnar því eins og allir vita eru þetta langbestu pizzurnar í bænum. Staðurinn heitir Reykjavík Pizza Company og er á Laugarveginum. Ekkert að kvarta yfir pizzunum, mjög góðar en þar var einnig betri sætin fyrir reykingarmenn, alveg glatað. Þá var þjónustan þarna slæm eins og á Eldsmiðjunni. Jæja ekki meira um það.
Horfði á Derailed um helgina með Jennifer Aniston og Clive Owen. Myndin byrjar mjög rólega og er hálf leiðinleg til að byrja með. Þetta er svona mynd sem fer svo lítið í taugarnar á manni, allir gera allt vitlaust í myndinni "nei fara þarna, gera þetta" alltaf er það gert, ef þið skiljið mig.Annars kom smá líf í hana í lokin sem bjargaði henni.
Derailed fær því 6 Örlish!
29.3.06
Bland í boka
Við strákarnir fórum til Siglufjarðar um helgina í mega skíðaferð (aka sukkferð). Þar var farið á drukkið , farið á skíði, drukkið og farið heim. Mjög gaman og mun ég henda inn myndum vonandi í vikunni. Förum samt ekkert nánar út í þessa ferð.
Í dag ákvað ég að koma að gagni og fara að gefa blóð enda er ég í 0- sem er víst svo kallað neyðar blóð. Manni líður alltaf vel (andlega) eftir að hafa gefið blóð, þá finnst manni eins og maður komi af einhverju gagni í þjóðfélaginu (ekki að mér finnist ég vera gagnlaus).
Svo maður fari svo aðeins út í tónlistina þá eru tónleikar með Badly Drawn Boy, Elbow og einhverjum fleirum 6.maí í Laugardalshöllinni. Miðasala hefst 7. apríl. Vill einhver vera memm á þessum tónleikum?
Og ef þið fílið Snow Patrol þá getið þið farið hingað og sótt 4 ný lög með þeim. Ég mæli með því.

23.3.06
Band of Horses
Band of Horses er frá rigninga borginni Seattle í USA og eru þeir að gefa út sína fyrstu plötu. Sá gripur heitir Everything All The Time. Ég náði mér í lag með þeim á einhverri bloggsíðu og heitir það The Funeral. Það lag er snilld en ekki veit ég meira um plötuna nema að hún fær 8.8 í Pitchfork.Ég mæli með að þið náið ykkur í þessa plötu, eða kaupið hana á netinu því ég efast um að hún fáist hérna á landi.
Hérna er Rapidshare linkur á diskinn.
http://rapidshare.de/files/16111480/BOH-EATT.rar.html
Þetta er rar skrá sem passwordið er "theindieconnection" án gæsalappa.
Því segi ég bara verði ykkur að góðu.
22.3.06
Skattur og Liverpool
7-0, já ég sagði 7-0 fyrir Liverpool á móti Birmingham. Hver hefði trúað því að Liverpool ætti eftir að skora 15 í þremur leikjum eftir að Liverpool hafði gert jafntefli við Charlton, tapað á móti Benfica og Arsenal. Fyrir þessa þrjá leiki hafði Liverpool skorað 6 mörk í 11 leikjum. Þetta var algjör snilld og það var ekki laust við það að maður var farinn að vorkenna Birmingham mönnum því gjörsamlega allt fór inn. 9 skot á mark og 7 inn segir ansi mikið.
Svo er bara vona að hið ótrúlega gerist í kvöld og Newcastle slái Chelsea út.
Svo gekk maður frá skattinum í gærkvöldi en ekki fékk ég neina útreikninga sökum einhvers sem ég nenni ekki að skrifa um. En fínt að maður mundi nú að ganga frá þessu svo skattman myndi nú ekki éta mann.

20.3.06
TV
Ég horfði á Walk the Line um helgina. Fyrir þá sem ekki vita er það um ævi snillingsins Johnny Cash. Myndin sjálf er mjög góð og Joaquin Phoenix og Reese Witherspoon leika mjög vel og syngja alveg ótrúlega vel líka. Þau sungu öll lögin í myndinni sjálf fyrir þá sem ekki vissu það.Mér finnst Witherspoon eiga óskarinn skilið fyrir þessa frammistöðu og Phoenix hefði alveg mátt fá eitt stykki óskar einnig. En mæli sem sagt með Walk the Line og fær hún 8 Örlish!
Þá er Lost að koma sterkir inn aftur eftir nokkra lægð. Þetta eru samt sömu framleiðendur og gerðu Alias og þeir þættir eru nú frægir fyrir að draga lopann en vonandi fer spennan að magnast aftur.
En frétt dagsins er að Prison Break er að byrja eftur eftir langt hlé. Þetta eru geðveikir þættir og ekki sakar að aðalleikarinn leikur byggingarverkfræðing. Hversu oft hef ég sagt að það ætti að hætta með alla þessa lækna þætti og byrj að gera þætti um verkfræðinga?
19.3.06
Rás 2 rokkar hringinn
Á föstudagskvöldið fórum ég, Stebbi og Ívar á tónleika Rásar 2 með Vax, Dikta, Ampop og Hermigervil. Þar sem ég hlusta lítið á útvarp þá vissi ég lítið sem ekkert um Vax fyrir tónleikana en þeir voru mjög góðir og komu skemmtilega á óvart.Dikta voru næstir á svið en ég var búinn að hlusta á nýja diskinn með þeim sem heitir Hunting for Happiness og er mjög góður og bjóst við miklu frá þeim. Þeir stóðu alveg fyrir sínu en eina sem ég hef yfir að kvarta er að þeir spiluðu ekkert af gamla diskinum sínum.
Næstir á svið voru Ampop sem voru líka búnir að gefa út disk (My Delusions) og ég einnig búinn að hlusta á hann. Þeir komu mér samt skemmtilega á óvart hve góðir þeir voru á sviði. Mjög flott hjá þeim og mæli eindregið með þeim.
Svo kom Hermigervill og loka kvöldinu og hlustuðum við á 2-3 lög áður en við fórum. Hann var jú mjög fyndin týpa en full mikið e pillu pop fyrir mig.
En sem sagt góðir tónleikar og ekki má gleyma að íslenskt er gott. Einnig var mjög góð mæting og Nasa alveg troðfullur. Þá vil ég þakka Kidda (Önnu bró) fyrir miðana.
Á leiðinni heim lentu við í skemmtilegri lífsreynslu. Það var nefnilega þannig að við löbbuðum framhjá ansi skemmtilegu pari sem var á fullu í einu horninu að mér sýndist að reyna að búa til barn.
Á þessari mynd má sjá parið "in action" en því miður var ég bara með myndavél á símanum mínum. Annars hefði þessi atburður verið myndaður betur.En þó svo að við vorum að þvælast í kringum þau létu þau það ekkert stoppa sig. Ég segi nú bara meira af þessu!
16.3.06
DVD+ Liverpool + Fiskur
Við skulum bara klára þetta strax. Já ég hef séð bæði Miss Congeniality 1 og 2. Ég horfði á Miss Congeniality 2: Armed and Fabulous í gærkvöldi og bara nokkuð sammála dóminum á imdb um að hún fái 5 Örlish!. Til að afsaka mig aðeins á því að hafa horft á þessa mynd þá vantaði mig einhverja stutta mynd til að horfa á svo maður færi nú ekki of seint að sofa skiljið...allar góðar myndir í dag eru einhverjir 2-3 tímar...einnig á ég hana á DVD og því varð að nýta þessa fjárfestingu. Myndin kostaði mig samt bara um 70 krónur þannig að ekki lemja mig næst þegar þið sjáið mig.
Þá vann LIVERPOOL stórsigur í gær á Fulham 5-1 takk fyrir dömur mínar og herrar, ég sagði 5-1. Loksins loksins loksins tókst Liverpool að skora.
Svo vil ég mæla með fiskversluninni Fylgifiskar sem er staðsett á Suðurlandsbraut 10. Alveg snilldar fiskbúð sem er með mjög góða og einfalda fiskrétti, bara að henda inn í ofn eða á pönnu. Allir réttir sem ég hef smakkað þarna eru snilld og ekki bjóst ég við að segja þetta þegar ég var 6 ára bölvandi mömmu fyrir að hafa fisk. En nú er fiskur einu sinni í viku í H23 og hana nú.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)