9.11.07

Ælubæli

Mikil stemmning hérna í Norge þessa stundina. Kári komi með ælupestina og ældi í gærkvöldi og svo aftur í rúmið sitt í nótt. Einstaklega hressandi að vakna við svona og héldu báðir foreldrarnir að þau væri komin með vott af pestinni eftir þrifin í nótt.

Ég fór svo í morgun á leikskólann að ná í dótið hans Kára fyrir helgina og frétti þá að þrír aðrir eru veikir heima ásamt einhverjum slatta af foreldrum. Sökudólgurinn Iben var svo mætt aftur eftir að hún var búinn með sinn skamt í vikunni. Þannig að nú erum við Anna orðin frekar tæp í maganum og vitum við ekki alveg hvort við séum komin með pestina eða erum svona ímyndunarveik. Kemur kannski í ljós seinna í dag.
En ég er allavega niðri í skóla frekar tæpur í maganum.

Sem sagt bara skemmtilegar fréttir frá okkur hérna í Norge.

7.11.07

Sæll, eigum við að ræða þetta eitthvað frekar

Sæll, eigum við að ræða þetta eitthvað frekar? Getur maður sagt eitthvað annað eftir gærkvöldið, en ég vil samt ræða þetta eitthvað frekar!

Ekki nóg með það að Liverpool vann Baskitas 8-0 í Meistaradeildinni sem ku vera nýtt með, heldur tók Rosenborg sig til og vann Valencia 0-2 á útivelli. Alveg magnað og get maður varla hugsað sér betra fótboltakvöld. Horfði mest á Liverpool leikinn en var aðeins að flakka á milli stöðva til að sjá hvort að Rosenborg myndi halda þetta út. Það fyndna við þetta er að bæði lið hefðu getað unnið mun stærri sigra.

Við sjáum myndband...

Aðeins af Liverpool. Það vita allir að Liverpool hefur ekki verið að spila eins vel og þeir geta undanfarið og hafa ákveðnir aðilar (hóst***andfótbolti.net***) farið þar mikið og verið með mikla sleggjudóma varðandi Liverpool og einnig einblínt á Crouch sem andfótboltalið og mann. Ekki var Man utd mikið gagnrýnt í byrjun tímabils þegar þeir virtust ekki kunna að skora mörk en þegar Liverpool er í lægð þá er sko gaman að gagnrýna.

En í gær sýndu Liverpool sitt rétta andlit og með Crouch fremstan í flokki spilaði frábæra sóknar knattspyrnu og uppskáru 8 mörk að launum. Ekki slæmt það.

Nú er bara að vona að Benitez sjái aðeins að sér og leyfi Crouch að fá smá tækifæri í byrjunarliðinu og setji Kuyt á bekkinn eða út úr hóp. Þá vil ég einnig sjá Aurelio og Arbeloa fá tækifæri í bakvörðunum á kostnað Finnan og Riise sem hafa vægast sagt verið slakir þetta tímabilið. Benayoun klárlega maður þessa leiks og vonandi fær hann einnig fleiri tækifæri.
Svo koma Torres og Agger bráðum til baka og þá verður Liverpool vonandi óstöðvandi. Ég vona það allavega, það er svo gott fyrir sálina þegar liðið manns gengur vel.

Jæja nóg af fótbolta í bili.

6.11.07

Ho Ho Ho We Say Hey Hey Hey

Er þetta ekki málið fyrir næstu Júróvisjón?



Spurning hvort að þetta sé slæm landkynning. Ísland, nýja hnakkalandið?

Hef reyndar ekki séð hin lögin en lýst vel á að senda svona lag, gæti mögulega höfðað til Austur evrópu og svo fatta kannski restin að þetta sé djók!

Ég styð allavega Barða, Gillz og kó.

4.11.07

Helgin

Þá er þessi fína helgi að verða búin.

Kári og Örvar "Ut på tur" (04.11.2007)

Á föstudaginn var Íslendinga hittingur á Den Gode Naboen og var bara nokkuð mikið að nýju fólki sem mætti. Við vorum náttúrulega öll orðin bestu vinir á Facebook fyrir kvöldið, en ekki hitt mikið af fólkinu "in real life", sem er nokkuð sérstakt.
Alltaf gaman að hitta íslendinga hérna í Þrándheimi og tala um reynslu okkar allra af Norge. Greinilega góður hópur af fólki sem þarf að hrista aðeins betur saman. Verður líklegast ekki gert fyrr en eftir áramót þar sem prófin fara nú að nálgast óðfluga.
Því miður var engin myndavél á staðnum, svona er þetta þegar maður heldur að einhver annar ætlar að taka myndir.

Heilsan var svo bara helvíti góð á laugardeginum, held það sé gönguferðinni heim að þakka. Vel þess virði að labba heim og hressa sig við, þó svo að Jói sé kannski ekki alveg sammála enda fékk hann væna flugferð ofaní drullupoll.

Minn maður ásamt Freyju Maríu í klifur kastalanum á Burger King (04.11.2007)

Í dag var svo farið í hópferð á Burger King þar sem Kári fór á kostum í klifur kastalanum, náðum honum varla heim. Ekki besta mynd í heimi en lýsir stemmningunni nokkuð vel.

Við vorum í smá "ut på tur" áður en farið var á BK og þá talaði Anna að hún yrði nú að fara heim að skipta um föt áður en hún færi út að borða!!! Já út að borða! Svona er standardinn búinn að lækka hjá minni við dvölinni í Norge.

Anna sátt við að fara "út að borða" á Burger King (04.11.2007)

2.11.07

Afmælisbarn dagsins


... er Hrefna Rán frænka. Hún er 3 ára í dag og vildum við nota tækifærið og óska henni til hamingju með daginn.
Það verður væntanlega mikið fjör í afmælinu á morgun !!

Blogg: AH

Snjór

Svona leit Moholt-ið út í morgun þegar ég var búinn að fara með Kára á leikskólann. Fyrsti alvöru snjórinn því kominn en því miður er von á því að hann fari jafn fljótt og hann kom, því það er spáð slyddu og rigningu fram á þriðjudag.

Það sem er að frétta héðan en löngu ákveðið er að við fjölskyldan komum ekki heim um jólin. Já þið lásuð rétt. Við ákváðum fyrr í haust að okkur langaði að vera hérna úti um jólin og upplifa jól að heiman. Vissum líka ekki hvernig yrði fyrir Önnu að fá frí í vinnunni á þessum tíma. Þannig að þessi jól verða 100% afslöppun hjá mér og vonast ég eftir að komast á skíði, lesa bækur og horfa á sjónvarp, eitthvað sem maður hefur gert of lítið af undanfarið.

Þá ætla tengdó og örverpið að koma í heimsókn yfir jólin og verður það örugglega mjög gaman. Verða hérna í Þrándheimi frá 21/22 des til 28. Eins gott að snjóguðirnir bregðist ekki eins og seinustu jól.

Læt þetta duga í bili, góða helgi.

30.10.07

Tranquilize

Þetta lag er eitt af þeim sem er alveg að gera sig fyrir mig þessa dagana. Er alveg að fíla The Killers núna og fannst mér Sams Town einn af diskum ársins 2006. Þetta er víst af diski sem heitir Sawdust og það eru b-hliðar og "rarities" en það er búið að gefa það út á itunes.



The Killers - Tranquilize [mp3]

Tími og sími

Vill bara láta vita að nú er kominn vetrartími hérna í Þrándheimi, þannig að það þýðir að það eru aðeins 1 kst. munur á Íslandi og Norge. Við "græddum" einn tíma á sunnudaginn en Kári virðist ennþá vera í sama gírnum. Minn maður er að vakna svona á milli 5-6 á morgnana, mikill hressleiki þar á ferð.

Aðeins að símnúmera málum, Kiddi Sverris og Jón Haukur eiga það sameiginlegt að vera einu sem hringt hafa í heimasímann og ekki er listinn eitthvað mikið lengri hjá þeim sem hafa hringt í gsm-símanan. En við auglýsum sem sagt eftir fólki til að hringja í okkur :)

Fyrir áhugasama er símanúmerið hjá:
mér: +47 97471935
Önnu: +47 95011854
og svo er það heimsíminn: +47 73888412

Þeir sem eru með skype geta leitað af mér undir orvarstein.

Nú er svo bara að taka sig til og hringja í okkur, við erum vöknuð snemma

29.10.07

Það sem ég mæli með er...

Nokkuð síðan ég kom seinast með uppfærslu á því sem ég er búinn að vera horfa á. Allavega ætti fólk að vera óhætt að horfa á myndir sem fá yfir 5 í einkunn en getur alveg eytt tímanum sínu í eitthvað annað en að horfa á myndir sem fá 4 og niður. Hérna kemur það nýjast sem horft hefur verið á í Moholti. Gaman væri nú að fá álit annarra kvikmyndaspekinga.

Hot Fuzz (2007)
Góð grín spennumynd, Bretarnir klikka seint þegar kemur að húmor.
Einkunn: Hot Fuzz fær 8

Blades of Glory (2007)
Það eru fáir gamanleikarar sem komst með tærnar þar sem Will Ferrell hefur hælana. Algjör snillingur og fer á kostum í þessari grínmynd. Ég grét af hlátri í einu af skauta atriðinu, það er eitthvað svo fyndið að sjá tvo kallmenn skauta listdans. Má samt ekki taka hana of alvarlega.
Einkunn: Blades of Glory fær 8

Blind Dating (2006)
Við afrekuðum það eitt kvöldið að horfa á tvær myndir á einu kvöldi. Eitthvað sem við höfum ekki gert síðan Kári kom í heiminn. En sem betur fer var hin myndin Blades of Glory, því þessi er mjög svo slæm. Illa leikin og bara léleg mynd, maður hefði átt að vita betur en eins og oft áður þá blekkist maður á því hvað er vinsælt á vídeóleigunum. Getur alveg sleppt henni, þó svo að frúnni langi að sjá rómantíska gamanmynd, því Önnu fannst hún alveg jafn leiðinleg.
Einkunn: Blind Dating fær 4

Breaking and Entering (2006)
Þessi mynd er titluð sem drama/romance/thriller en ég sé mjög svo lítinn romance og thriller yfir svona lélegri mynd. Jude Law að halda framhjá þessari með einhverri sem á fátt sameiginlegt með fegurð. Hrein leiðindi sem ber að forðast.
Einkunn: Breaking and Entering fær 2

Fracture (2007)
Mjög skemmtileg crime/drama/thriller með skemmtilegu plotti. Ryan Gosling (Notebook) er eitthvað fyrir stelpurnar.
Einkunn: Fracture fær 7

Reign Over Me (2007)
Ein besta drama mynd ársins, mjög flott mynd.
Einkunn: Reign Over Me fær 8

United 93 (2006)
Öðruvísi heimildarmynd um 9/11, góð mynd.
Einkunn: United 93 fær 8

Deja Vu (2006)
Denzel Washington í einhverri vísindaskáldskaps vitleysu. Söguþráðurinn er frekar asnalegur en jú, ágætis spennumynd, ágætt í neyð.
Einkunn: Deja Vu fær 5

Perfect Stranger (2007)
Ágætis glæpómynd með Bruce Willis og Halle Berry.
Einkunn: Perfect Stranger fær 6

Disturbia (2007)
Þessi kom manni nokkuð á óvart, skemmtilega spennandi.
Einkunn: Disturbia fær 7

Flyboys (2006)
Ágæt flugmynd/stríðsmynd en ekki mikið meira en það.
Einkunn: Flyboys fær 6

The Lookout (2007)
Voðalega þunglynd mynd eitthvað, hélt ég væri að fara horfa á meiri spennu en allir voða óhamingju samir eitthvað, nær rétt í 5, mæli samt ekki með henni.
Einkunn: The Lookout fær 5

Knocked Up (2007)
Ein besta grínmynd ársins, eða á ég að segja rómantíska grínmynd? Allavega mjög skemmtileg mynd.
Einkunn: Knocked Up fær 8

Mr. Brooks (2007)
Kevin Costner góður í þessari skemmtilegu crime/drama/thriller.
Einkunn: Mr. Brooks fær 8

Apocalypto (2006)
Spennadi og skemmtileg mynd eftir Mel Gibson, frekar subbuleg en það gerir þetta bara skemmtilegra.
Einkunn: Apocalypto fær 8

The Number 23 (2007)
Leiðinleg hrollvekja, drama, mystery...
Einkunn: The Number 23 fær 4

Jæja þetta er orðið alltaf langt...næst ætla ég að láta líða styttra á milli svona pósta, ætla að reyna að halda áfram að gefa öllum myndum sem ég sé á árinu einkunn. Vonandi nennir einhver að lesa þetta og gefa sitt álit.

28.10.07

Kári trommari

Delux

Það var sko delux kvöld í gærkvöldi, borðaður góður matur og horft á góða bíómynd.

Kvöldmaturinn byrjaði á forrétt, á boðstólnum var Mozzarella ostur með tómötum og sallati (vantaði basilíku til að gera þetta 100% en mjög gott engu að síður). Myndin var reyndar tekin seinustu helgi en álíka flott í gær.
Í aðalrétt var norskt lamb með rauðvínssósu, kartöflum og sallati, og ekki má gleyma að rauðvín var drukkið með. Gat ekki verið eldað betur af meistarakokkinum henni Önnu.
Svo í eftirrétt var hjólað út í búð og keyptur karmellu/hnetu ís, einnig mjög góður þó svo að ekki hafi verið lagt mikil vinna í þennan rétt.

Eftir þetta og þegar Kári var kominn í háttinn var svo horft á Mýrina eftir Baltasar/Arnald. Mjög flott mynd og góð þó svo að spennan sé nú ekkert að drepa mann. Góð saga sem sögð er mjög sannfærandi í þessari mynd. Er alveg að fíla stílinn hjá Baltasari, myndirnar hans eru alltaf gerðar svo kaldar og einhvernveginn einmannalegar, þetta passar mjög vel við íslenska landslagið.
Ágúst Eva var mjög góð sem dóttir Erlends en enn og aftur verð ég að lýsa yfir vonbrigðum með að Ingvar E. Sigurðsson sé settur í öll almennileg hlutverk sem bjóðast á þessu landi. Ekkert út á hann að setja varðandi þessa mynd, hann leikur þetta mjög vel og í sjálfu sér alveg sannfærandi sem Erlendur. En samt er hann ekki þessi Erlendur sem maður var búinn að ímynda sér. Við skulum ekki einu sinni fara útí það hvernig leikaravalið á Ingvari eyðilagði fyrir mér myndina Kaldaljós, sem var uppáhalds bókin sem ég las í menntaskóla. Svíarnir gera þetta vel með vali á Kurt Wallander og manni fannst Erlendur vera svona svipuð týpa og hann. Einnig fannst mér ekki passa að Erlendur keyrði um á glænýjum Range Rover, löggur eiga að vera á druslum.
En þrátt fyrir að mér fannst Ingvar ekki passa nógu vel í hlutverk Erlends er myndin engu að síður mjög góð. Það var ekki laust við að allar landslags senurnar í myndinni létu mann sakna gamla klakans.
Einkunn: Mýrin fær 8

27.10.07

Smjattpattarnir

Djöfull væri ég til í að eiga þessar bækur ennþá. Búið að vera pirra mig að ég mundi ekki hvernig Smjattpattarnir litu út en eftir smá leit þá fann ég þetta loksins. Þeir heita nefnilega The Munch Bunch á ensku. Spurning hvort maður fari á ebay og kaupa sér þessar gömlu bækur fyrir Kára (lesist: mig). Þá væri náttúrulega best að endurútgefa þessar bækur eins og hefur verið gert með Barbapabba.
Man samt ekki eftir hvort að þetta voru teiknimyndir eða ekki, en þeir voru í uppáhaldi.

26.10.07

Boltaspark

Best að segja frá því að ég var EKKI staddur á Lerkendal Stadion þegar Rosenborg vann glæstan 2-0 sigur á Valencia á miðvikudaginn. Nokkuð svekkelsi að það voru til miðar á Schalke en ekki þennan leik og ennþá meira svekkelsi að þeir töpuðu 0-2 á móti Schalke en unnu Valencia. En svona er lífið maður fær ekki allt sem maður vill.
Þeir eru þrátt fyrir það ennþá í 6 sæti sem er ekki nógu gott fyrir stórveldið frá Þrándheimi þannig að Tørum var sagt upp fyrir leikinn.

Aðeins að enska boltanum. Þessi spá mín er ekki alveg að ganga upp. Ég spáði Arsenal í 5 sæti og Tottenham í fjórða. Nú er málum þannig háttað að Martin Jol var að segja upp því Tottenham getur ekki neitt og Arsenal er í 1 sæti með einhverja 12-13 sigurleiki í röð. Liverpool mætir svo Arsenal á Anfield á sunnudaginn og menn eru skjálfandi á beininu á að mæta Arsenal í þessu formi sem þeir eru í núna. Það er bara vonandi að mínir menn rífi sig upp af rassgatinu og fari að sína að þeir kunni að spila fótbolta.
Annars er trú mín á Rafa alltaf að minnka, þannig er það nú bara.

En á meðan að Liverpool tapar í Tyrklandi er sigur Rosenborg ennþá meira gleði efni, og þá reynir maður að hugsa meira um það :)

25.10.07

Duved

Eins og ég sagði frá fyrir helgi þá fórum við til Duved (Åre) í Svíþjóð um helgina. Nenni ekki alveg að útlista hvað var gert en ferðin var góð. Borðaður góður matur og drukkið gott vín. Anna skrifað góðan pistil um ferðina sem ég ætla að láta mér duga að copy/pasta-a hingað. Anna take it away...

Skelltum okkur til Sverige, nánar tiltekið Duved með þrem öðrum íslenskum fjölskyldum. Leigðum 4 hyttur/stuer/bústaði. Við fjölskyldan lögðum af stað á föstudaginn þegar Anna var búin í vinnunni, leifðum Kára reyndar að vera bara á leikskólanum meðan það var klárað að pakka og svo var brunað af stað um 3 leitið. Þegar við vorum komin yfir landamærin beið okkar snjór í Svíþjóð. Kom okkur frekar á óvart, vissum reyndar að það væri hvítt, en áttum ekki von á svona miklum snjó. Hann stoppaði reyndar ekki lengi og á laugardeginum var hann næstum allur farinn.

Krabbi eldaður á sænskan máta var á boðstólnum á föstudagskvöldinu og sænskar kjötbollur fyrir þau yngstu. Rosa góður matur og skemmtilegt að borða hann. Börnin voru svo sykruð upp til að þau gætu nú vakað í partýinu :) Kári skemmti sér alveg konunglega með öllum stelpunum og fór að sofa langt fram yfir hátta tíma 1.árs barna :)

Laugardagurinn var nýttur í að skoða aðeins Åre og versla ódýra hluti sem verða ekki nefndir á barnalandi... Liðið var nú eitthvað orkulaust á eftir skemmtilegt föstudagskvöld þannig að innkaupin voru nú ekkert glæsileg hjá liðinu.... hehe. Sænskt svín var svo á boðstólnum á laugardagskvöldinu og ekki má gleyma Subway sem var etinn í hádegismat :) Aðeins rólegra partý á laugardagskvöldinu og því þurftu börnin ekki eins mikinn sykur til að vaka, enda fengu þau að fara að sofa fyrr en kvöldið áður ;) Kári var reyndar svo þreyttur að hann sofnaði fanginu á mömmu sinni meðan spilað var Mr. and Mrs. (sem by the way við unnum....)

Sunnudagurinn fór svo í tiltekt í hyttunum og svo var verslaður matur í Ica Åre. Alltaf gott að fara til Sverige og spara smá peninge.

Jenny

Þetta er án efa eitt það fyndnasta lag sem ég hef heyrt. Get ekki endurtekið það nógu oft hvað fólk verði að tékka á Flight of the Conchords.

Flight of the Conchords - Jenny [mp3]