4.11.07

Helgin

Þá er þessi fína helgi að verða búin.

Kári og Örvar "Ut på tur" (04.11.2007)

Á föstudaginn var Íslendinga hittingur á Den Gode Naboen og var bara nokkuð mikið að nýju fólki sem mætti. Við vorum náttúrulega öll orðin bestu vinir á Facebook fyrir kvöldið, en ekki hitt mikið af fólkinu "in real life", sem er nokkuð sérstakt.
Alltaf gaman að hitta íslendinga hérna í Þrándheimi og tala um reynslu okkar allra af Norge. Greinilega góður hópur af fólki sem þarf að hrista aðeins betur saman. Verður líklegast ekki gert fyrr en eftir áramót þar sem prófin fara nú að nálgast óðfluga.
Því miður var engin myndavél á staðnum, svona er þetta þegar maður heldur að einhver annar ætlar að taka myndir.

Heilsan var svo bara helvíti góð á laugardeginum, held það sé gönguferðinni heim að þakka. Vel þess virði að labba heim og hressa sig við, þó svo að Jói sé kannski ekki alveg sammála enda fékk hann væna flugferð ofaní drullupoll.

Minn maður ásamt Freyju Maríu í klifur kastalanum á Burger King (04.11.2007)

Í dag var svo farið í hópferð á Burger King þar sem Kári fór á kostum í klifur kastalanum, náðum honum varla heim. Ekki besta mynd í heimi en lýsir stemmningunni nokkuð vel.

Við vorum í smá "ut på tur" áður en farið var á BK og þá talaði Anna að hún yrði nú að fara heim að skipta um föt áður en hún færi út að borða!!! Já út að borða! Svona er standardinn búinn að lækka hjá minni við dvölinni í Norge.

Anna sátt við að fara "út að borða" á Burger King (04.11.2007)

Engin ummæli: