Mikil stemmning hérna í Norge þessa stundina. Kári komi með ælupestina og ældi í gærkvöldi og svo aftur í rúmið sitt í nótt. Einstaklega hressandi að vakna við svona og héldu báðir foreldrarnir að þau væri komin með vott af pestinni eftir þrifin í nótt.Ég fór svo í morgun á leikskólann að ná í dótið hans Kára fyrir helgina og frétti þá að þrír aðrir eru veikir heima ásamt einhverjum slatta af foreldrum. Sökudólgurinn Iben var svo mætt aftur eftir að hún var búinn með sinn skamt í vikunni. Þannig að nú erum við Anna orðin frekar tæp í maganum og vitum við ekki alveg hvort við séum komin með pestina eða erum svona ímyndunarveik. Kemur kannski í ljós seinna í dag.
En ég er allavega niðri í skóla frekar tæpur í maganum.
Sem sagt bara skemmtilegar fréttir frá okkur hérna í Norge.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli