Kláraði að horfa á aðra seríu af Dexter í gærkvöldi. Frábærir þættir sem ég fæ bara ekki nóg af, án efa uppáhalds þátturinn minn í dag. Alltaf flott þegar að það koma nýjir frumlegir þættir fram og maður vonar bara að næsta sería verði eins góð og fyrstu tvær. En næsta sería ætti að byrja í sept/okt.
Þá er ég einnig byrjaður að horfa á þætti sem heita Californication. Þessir þættir fjalla um rithöfund sem leikin er af David Duchovny og samband hans við áfengisflöskuna, fyrverandi konu sína og dóttir. Lofa mjög góðu og kemur einnig önnur sería með þessum þáttum.
Svo ber einnig að nefna Chuck sem eru svona skemmtilega öðruvísi grín/spennu þættir. Önnur sería einnig á leiðinni.Ef einhver getur mælt með einhverjum góðum þáttum þá er það vel þegið því rithöfundaverkfallið er farið að hafa áhrif á áhorf fjölskyldunnar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli