Það er í sjálfu sér ekki mikið að frétta héðan úr Þrándheimi.
Það er búið að rigna núna í einhverjar 2 til 3 vikur en það virðist samt vera komið gott veður núna. Er samt bara bíða eftir því að rigningin byrji. Það sem verra er við þetta haust er að hitinn hefur nú ekki verið mjög svo hár. Í fyrra var algeng sjón að sjá ca. 12°C til 18°C stiga hita en núna hefur þetta verið meira 8°C til 12°C, sem er bara skít kalt og þá sérstaklega þegar sólin skín ekki. Þannig að þetta haust er búið að vera drasl, öfugt á við í fyrra.
Skólinn kominn á fullt og ég er kominn með fasta lesaðstöðu niðri í skóla, nema hvað að lykill að lesaðstöðunni er ekki tilbúinn. Það þýðir að maður getur ekki skilið neitt eftir þar því maður veit aldrei hvenær maður kemst inn næst. En vonandi reddast það sem fyrst.
jæja hef þetta nóg í bili.
11.9.07
7.9.07
Oppdal 2007
Jón Haukur, Margrét og Guðrún komu í heimsókn hingað til Noregs í mars á þessu ári og við skelltum okkur öll á skíði í Oppdal. Hérna er smá myndband sem ég gerði um ferðina. Flott fyrir þá sem eru áhugasamir að kíkja til Noregs á skíði :)
6.9.07
Myndir frá ágúst
![]() |
| Ágúst 2007 |
Nú er ég búinn að setja myndir frá ágúst inná Picasa. Þetta eru myndir frá því að við komum út til Noregs og út ágúst.
Þið getið nálgast þær hér:
http://picasaweb.google.com/orvars
Eða með því að smella á myndina af Kára.
Merki:
Daglegt,
Ljósmyndir
5.9.07
Júdas
Veit nú ekki hvort að þessi auglýsing hefur verið lengi í gangi heim en ég verð nú að vera ósammála Biskup Íslands með hana. Hann sagði að hún væri ósmekkleg en mér finnst hún bara alveg mjög svo smekkleg og fyndin.
4.9.07
Nóg að gera í sjónvarpinu...
Lítið að gera í skólanum = nóg að gera í sjónvaprinu. Hérna er það sem maður er búinn að vera að horfa á undanfarna daga.
Zodiac (2007)
Mynd byggð á sannsögulegum atburðum um raðmorðingja í San Francisco. Góð mynd með góðum leikurum, heldur löng en heldur manni alveg við efnið.
Einkunn: Zodiac fær 8
Sometimes in April (2005)
Vinafólk okkar hérna í Þrándheimi sem kemur frá Rúanda lánaði okkur þessa mynd. Þau sögðu að hún lýsir betur þjóðarmorðunum í Rúanda heldur en Hotel Rwanda. Alveg ótrúleg mynd í alla staði, maður trúir þessu varla að svona geti átt sér stað án þess að nokkur maður geri neitt. Erfitt að horfa á svona myndir en eitthvað sem allir hafa gott af.
Árið 1994 var ég 15 ára unglingur og horfa á Pulp Fiction á meðan tæpum treföldum fjölda íslendinga var slátrað á 100 dögum og vesturlöndin gerðu ekki neitt. Þarf eiginlega skrifa þessa mynd til að leyfa öðrum að sjá hana.
Einkunn: Sometimes in April fær 8
Evan Almighty (2007)
Dýrasta grínmynd í heimi var bara allt í lagi, ekkert meira en það. Bjóst ekkert við miklu og því alveg hægt að hafa gaman af henni en þetta er nú samt ekkert meistaraverk.
Einkunn: Evan Almighty fær 7
The Prestige (2006)
Svipar aðeins til myndarinnar The Illusionist en samt ekki eins góð. Ég er náttúrulega svo mikill séní að ég fattaði plottið löngu áður en telst eðlilegt. En góð mynd engu að síður.
Einkunn: The Prestige fær 7
Stranger Than Fiction (2006)
Bara helvíti fín mynd, nokkuð skrítin en góð. Vissi að ég væri ekki að fara horfa á grínmynd þannig að hún olli mér ekki vonbrigðum. Will Ferrell er einn besti gamanleikarinn í dag, ekki spurning og hann stendur sig mjög vel í þessari mynd.
Einkunn: Stranger Than Fiction fær 7
Alpha Dog (2006)
Justin bara nokkuð góður en var ekki að fíla þessa mynd. "Allt í lagi mynd" en mæli ekkert sérstaklega með henni. Margar betri krimma myndir til í dag.
Einkunn: Alpha Dog fær 5
1408 (2007)
Mér hefur alltaf þótt John Cusack góður leikari en þessi mynd flokkast seint með hans bestu myndum. Ekki nógu góð hryllingsmynd, ég myndi ekki mæla með að horfa á hana.
Einkunn: 1408 fær 4
Held að þetta sé allt í bili :)

Kvikmyndir
30.8.07
Meistaradeildin í Lerkandal
Það var dregið í riðlakeppni meistaradeildarinnar áðan og var mikil spenna á heimilu. Svona fyrir fram var ég nú að vonast eftir Liverpool myndi dragast með Rosenborg í riðli en svo varð því miður ekki.Rosenborg lenti með Chelsea, Valencia og Schalke í riðli og getur maður nú verið nokkuð sáttur með það, sérstaklega að fá tvö stórlið í heimsókn.
Þannig að nú er bara að undirbúa miðakaupin svo maður fái nú miða á leikina.
Kamp 1: Chelsea - Rosenborg tirsdag 18. september
Kamp 2: Rosenborg - Schalke onsdag 3. oktober
Kamp 3: Rosenborg - Valencia onsdag 24. oktober
Kamp 4: Valencia - Rosenborg tirsdag 6. november
Kamp 5: Rosenborg - Chelsea onsdag 28. november
Kamp 6: Schalke - Rosenborg tirsdag 11. desember
Merki:
Fótbolti
29.8.07
Steggjun Stebba og brúðkaup
Var að setja myndir frá steggjuninni hans Stebba inná netið. Settið þær inná Picasa síðuna mína.http://picasaweb.google.com/orvars/SteggjunStebba
Var svo einnig að bæta við brúðkaupinu hjá Stebba og Sillu:
http://picasaweb.google.com/orvars/BrKaupStebbaOgSillu
Er að reyna að vera duglegri að setja myndir inná netið.
Hérna er svo lítið slide show með myndunum en mæli frekar á að fólk skoði þetta í slide show-i á picasa síðunni.
Merki:
Daglegt
27.8.07
Åre
Ekki vorum við heppin með veður því þegar lagt var af stað var mikið rok hérna í Þrándheimi (sem er óvanalegt) og einnig þegar við komum til Åre. Leiðin sjálf var falleg á köflum þó svo að stór hluti leiðarinnar hafi maður verið að keyra í trjágöngum (ef þið fattið hvað ég meina).
Gaman að koma í þennan skíðabæ en gáfum okkur ekki mikin tíma í að skoða bæinn vegna veðurs. Maður er orðinn of góður vanur þegar maður er farinn að kvarta yfir smá roki.
En núna getum við loks kallað okkur alvöru Norðmenn. Búin að fara yfir til Svíþjóðar í innkaupaleiðangur. 3 kg af kjúklingabringum, 3 svínalundir, 1 nautalund, stór skinka, beikon, ostur og ekki má gleyma áfenginu, 6 léttvín og kassi af bjór. Ágætis árangur þó svo að gróðinn hafi fokið í burtu þegar ég fékk stöðumælasekt fyrir að leggja bílnum fyrir utan húsið allan nóttina, alveg glatað.
En nóg í bili
23.8.07
Í fréttum er þetta helst
Þessi vika búin að vera mjög skrítin. Kári er yfirleitt farinn á leikskólann um 8-8:30 og er alveg til 15:00, þannig að maður er hálf eirðarlaus þennan tíma. Maður var búinn að gleyma hvernig er að hanga heima hjá sér og gera ekki neitt, en maður er samt fljótur að rifja það upp. :)
Þá er Anna komin með vinnu í heimahjúkrun og fær að vita meira um það í næstu viku. Ætlaði að vera vinna á vökudeildinni á St. Olav spítala en það gekk því miður ekki upp. En samt frábært að hún sé kominn með vinnu og fer að vera fyrirvinnan á heimilinu.
Þannig að það fer allt að gerast í næstu viku, við bíðum spennt.
20.8.07
Fótbolti
Þessi helgi hefði orðið fullkomin fótboltalega séð ef þetta fífl hefði ekki dæmt leikinn á með Liverpool. Aldrei vitað um annað eins bull. Chelsea er alveg nógu leiðinlegt lið, það þarf ekki að fá svona hjálp frá dómaranum.
Annars finnst mér þetta mark algjör snilld og vonandi er þetta það sem koma skal.
Annars finnst mér þetta mark algjör snilld og vonandi er þetta það sem koma skal.
Merki:
Fótbolti
16.8.07
Áhorf sumarsins
Því miður hef ég ekki horft á margar góðar myndir í sumar. Hérna eru þær nýjustu sem ég hef séð.
The Last King of Scotland (2006)
Frábær mynd byggð á raunverulegum atburðum. Forest Whitaker er frábær sem Idi Amin. Mæli hiklaust með þessari.
Einkunn: The Last King of Scotland fær 8
Shooter (2007)
Horfði á þessa þegar Anna var á kvöldvakt. Flott AST (allt sprent í tætlur) mynd en ekki horfa á hana með frúnni.
Einkunn: Shooter fær 7
Hannibal Rising (2007)
Sæmileg mynd en kemst ekki nálægt fyrri myndunum um Hannibal.
Einkunn: Hannibal Rising fær 6
Spider-Man 3 (2007)
Kláruðum þessa í vikunni og varð fyrir nokkrum vonbrigðum þó svo að ég hafi verið varaður við. Þetta dans atriði út á götu er eitt það versta í kvikmyndsögunni (ásamt einu atriði í The Sweetest Thing). Þá var einnig sorglegt að sjá Spider stökkva og lenda fyrir framan 100 fm (fermetra) Bandarískan fána, úff hvað það var slæmt. Eigum við að fara eitthvað útí Tobey Maguire að reyna að vera cool eða vondur.
Hver var svo vondi kallinn í þessari mynd?
Ekki ánægður með hana þó svo að tæknibrellur og hasaratriðin hafi verið flott.
Einkunn: Spider-Man 3 fær 5
88 Minutes (2007)
Al Pacino ekki að gera góða hluti með að leika í þessari mynd. Allt gert til að þú "fattir" ekki plottið á kostnað myndarinnar. Var bara einhvernveginn ekki að virka.
Einkunn: 88 Minutes 5
Catch and Release (2006)
Ætlaði að vera góður við Önnu og horfa á eina rómantíska gamanmynd. Í stuttu máli var þessi hvorugt rómantísk né fyndin á neinn hátt, algjör leiðindi. Veit ekki hvað Kevin Smith er að spá stundum, og svei mér þá ef Jennifer Garner sé ekki farinn að fara jafn mikið í taugarnar á mér eins og Cameron Diaz.
Einkunn: Catch and Release 3
Þetta er allt í bili, lét svo vita hvað þið eigið að forðast þegar ég er búinn að horfa á eitthvað nýtt.

15.8.07
Lag dagsins
Mikið stuð hjá Calvin Harris í þessu lagi, góð blanda af LCD Soundsystem og Daft Punk. Hérna er lagið "The Girls". Var að uppgötva þennan í dag og búinn að hlusta á diskinn og er það bara fínasta hlustun.
Hérna er svo eitt á mp3 formi í lokin, þetta er nýjasti "Single-inn".
Calvin Harris - Merrymaking At My Place
Hérna er svo eitt á mp3 formi í lokin, þetta er nýjasti "Single-inn".
Calvin Harris - Merrymaking At My Place
13.8.07
Leikskólastrákur
Á myndinni er drengurinn orðinn óþreyjufullur í að komast á leikskólann, gengur ekki að vera ennþá að hanga inni kl. 10!
Merki:
Kári
11.8.07
Enska deildin
Þá er loksins komið að því að enska deildin byrji. Sumarin eru alltaf nokkuð skrítin tími varðandi það að eyða ómældum tíma í að skoða slúður og annað ómerkilegt varðandi ensku liðin og af þeim sökum hlakkar manni til þegar deildin loksins byrjar.Mikil umræða er búin að vera á Liverpool blogginu um Sýn2 og 365 yfir höfuð og ekkert nema gott um það að segja því ekki myndi ég borga 4390 á mánuði eða 52680 á ári fyrir að horfa á enska boltan. Ansi margt hægt að gera fyrir þann pening.
Bendi mönnum á tvær fínar síður:
www.myp2p.eu
www.live-footy.org
Ekki að ég muni nota þetta, neineinei, það er örugglega ólöglegt. Svo er TV3 alltaf með meistaradeildina og ég er með hana heima í Moholti.
Ég er ekkert að tapa mér í bjartsýni fyrir komandi tímabil en vona auðvitað að mínir menn í Liverpool byrji vel og geti því verið með í kapphlaupinu um titilinn. Á, því miður, reyndar von á því að skítaliðið Man utd vinni deildinina og Chelsea nái öðru sætinu og Liverpool í þriðja og eins og margir gæti ég alveg trúað að Tottenham nái loksins að "vinna" Arsenal og ná 4 sætinu.
Torres er auðvitað kominn í Liverpool en aftur á móti er Tevez kominn í Man utd og þar er leikmaður sem ég hefði viljað sjá í Liverpool. Ég vona bara að Torres komist í gang og eigi eftir að raða þeim inn fyrir Liverpool og Tevez þjáist af slæmri gyllinæð sem mun gera það að verkum að hann eigi jafn gott tímabil og Sheva í fyrra. Ekki má gleyma Chelsea því þeir voru að landa Alex frá PSV og svo hlýtur Sheva að detta í gang, trúi ekki öðru.
Þannig að mitt mat er að Man utd og Chelsea eru með betri mannskap en Liverpool en það er ekki að segja það að Liverpool geti verið með betra lið og klárað dæmið. Mitt mat er samt svona:
1. Man utd
2. Chelsea
3. Liverpool
4. Tottenham
5. Arsenal
Svo verða Everton, Blackburn og kannski Newcaslte í næstu sætum.
Spá dagsins er því Aston Villa 1 - Liverpool 1, því miður. Er með of mikla reynslu sem Liverpool maður til að tapa mér í bjartsýni...
Hvað finnst þér?
Merki:
Fótbolti
10.8.07
Tónlist dagsins
Það er ekkert smá sem er að koma út af góðri tónlist þessa daga, ég er líka að vinna upp takmarkanir á internetinu í sumar.Held áfram að koma með tónlist frá Kanada, nú eru það The New Pornographers sem eru að fara gefa út Challengers núna í ágúst. Platan er reyndar ekkert stórkostleg en það eru góð lög inná milli. Hérna er eitt sem kemur til greina á topp 10 á árinu og er mjög hresst sumarlag. Gott í sólinni í Þrándheimi, veit reyndar ekki hvernig það fer í rigningunni á Íslandi.
The New Pornographers - My Rights Versus Yours
Gaman væri nú að vita ef einhver hefur gaman af þessu og ef svo er hvað þeim finnst nú um lögin, Uncle G hrósði nú mér fyrir Tegan & Sara!
Merki:
Tónlist
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)