Já maður hefur ekki verið beint góður faðir þessa vikuna. Ég er búinn að eyða flestum stundum sólarhringsins hérna niður í skóla til að reyna að undurbúa mig fyrir þessa martraðar helgi sem er jú komin af stað núna.Á fimmtudaginn fékk Kári að fara heim með Kittý, Freyju og Ásdísi og var þar þangað til að Anna sótti hann á milli 5-6. Svo í gær var þetta frekar svakalegt fyrir litla orkuboltann okkar. Kári fór á leikskólann um 9:30 og kom ekki heim fyrr en ég sótti hann um 7 leitið. Svona er þetta að búa í útlöndum og engar ömmur eða afar til að passa. Anna var að fara á kvöldvakt og ég í próf í dag. Því var brugðið á það ráð að hafa Kára lengur á leikskólanum í þetta eina skipti (fór reyndar á annan leikskóla á milli 4:30-7). Það var ekki að sjá á barninu kl.19 í gær að hann var búinn að vera góðan vinnudag og næstum tvo yfirvinnutíma frá foreldrum sínum. Var í fullu fjöri með leikskólakennurunum að taka til þegar ég mætti á svæðið og var nú ekkert að hlaupa til mín. Aftur á móti var hann orðinn nokkuð þreyttur þegar við komum heim og sofnaði nokkuð auðveldlega.
Það var svo í morgun að hann var eitthvað stúrinn og greinilegt að hann var ekki par sáttur með þess "illu" meðferð í vikunni.
En er það versta yfirstaðið varðandi vaktaskiptan hjá foreldrunum þannig að drengurinn mun ekki fá svona illa meðferð í bráð.
Set svo eina mynd af dregnum sem í sjálfu sér tengist þessari færslu ekki neitt. En djöfulli er sófinn okkar flokkur, vill einhver kaupa?





