Í gær var mjög stór dagur í lífi okkar Önnu (og Kára þó svo hann hafi nú ekki fattað mikið), því við fengum þá úthlutað lóð við Lundaþing 9-11 í Vatnsendahlíð. Sóttum um parhúsalóð með Styrmi bróðir (eða fyrirtækinu hans 2 Naglar) og vorum ein með þessa lóð og fengum hana því átakalaust.
Mjög mikil stress búið að vera á heimilinu sökum þessa. Fyrst átti úthlutunin að vera fimmtudaginn, svo var því frestað fram á föstudag, svo fram á mánudag og svo loksins í gær frétti maður að við fengum þessa fögru fögru lóð.
Þessar lóðir eiga að vera tilbúnar í lok árs 2008 og líklegt þykir að sú dagsetning muni eitthvað færast aftur og giskar maður helst á að þetta verði tilbúið svona um vorið 2009. Við stefnum samt ekki á að byrja fyrr en vorið 2010. Þannig að framundan er að klára þetta námsvesen og svo bara spara spara og spara fyrir einu stykki húsi.
Ég hlakka alveg ótrúlega mikið til að fara byrja á öllu veseninu sem þessu fylgir. Teikna, hanna, reikna og ákveða allt frá því hvernig húsið lítur út niður í hvernig hurðahúna maður kaupir.
Mikil hamingja ríkir á heimilinu þessa dagana og maður iðar í skinninu á að geta byrjað :)
Þá fengu Stebbi og Silla einnig úthlutað lóð þannig að gaman verður að vera með einhvern svona nokkurvegin samferða í þessu öllu.
Hérna er hægt að finna allar upplýsingar um skipulagið á þessu svæði:
Kópavogurlóðir.is
Lundaþing 9-11 er undir svæði E2. Hérna er skýringarmynd og hérna er deiliskipulag. Bara að hægri smella á linkana.
Ég bjó svo til punkt í Goggle Map sem ætti að sýna hvar þetta liggur, svona ca. Það ber þó að geta að loftmyndin er ekkert sérlega ný og er því byggðin komin mun nærri en á þessari mynd.
Lundaþing 9 á Google Map
Þetta verður örugglega mjög skemmtilegt hverfi. Mjög stutt í grunnskóla, Guðmundarlundur (falin perla höfuðborgarinnar) er þarna við hliðin á og svo eru einfaldlega allir að flytja þarna uppeftir.
Jæja á maður að reyna að læra!

Engin ummæli:
Skrifa ummæli