22.11.07

Stressið stigmagnast...

Eitt sem ég fattaði í dag, þegar ég var í fyrri fyrirlestri dagsins, var það að þetta voru seinustu fyrirlestrar sem ég á eftir að sitja í þessu námi! Auðvitað verður kannski eitthvað af almennum fyrirlestrum eða fundum á næsta ári en þetta voru seinustu fyrirlestrarnir. Frekar skrýtin tilhugsun en maður hefur eiginlega ekki tíma til að njóta hennar því það er svo helvíti stutt í próf.

Próftaflan þetta árið er án efa versta próftafla sem ég hef fengið. Á fyrstu fimm dögum próftöflu fer ég í 3 próf og það á 4 dögum. Þá eru ca. 17 dagar eftir til að taka próf á!!! Ekki alveg eðlilegt að troða þessu svona framarlega þannig að maður hefur sama sem engann tíma til að undirbúa sig.
Þetta gefur mér reyndar góðan tíma til að gera verkefnið mitt (eitt fag) sem ég á að skila 20. des en ég þarf nú ekki alveg svona marga daga til að klára það. Nokkrir dagar hefðu verið nóg. Þannig að ég fagna ekki að prófin eru búin snemma í ár.


Í gær var ég svo að reyna að klóra mig í gegnum eitt það leiðinlegasta sem ég hef lesið í langan tíma. Efnasemsetning sements og hvernig efnasamböndin verða til þegar þau blandast við vatna. Úff, mér finnst alveg nóg að vita um efnafræði steypu og er alveg nokkuð sama um hvernig þessu blessuðu efnasambönd koma saman. Ég skal skoða það ef ég fer út í sementsframleiðslu en ekki í þessu.

Þannig að þessa daga er mjög mikið að gera en Anna er nú svo góð að hún er dugleg að hjálpa til með að létta á vinnuálaginu heimafyrir :)

Jæja ætla að halda áfram að læra.

Engin ummæli: