Í dag er 23. nóv og því má alveg bráðlega fara hugsa um jólin, er það ekki?
Nú er allt á kafi í snjó hérna í Þrándheimi og ekkert smá fallegt um að litast. Fátt er fallegra en þegar snjórinn situr fastur á trjánum, ekki alltaf fokinn af á núlleinni eins og gerist svo oft heima. Vildi bara vera úti að taka myndir dag, eitthvað sem maður hefur ekki gert mikið af þessa önnina sökum anna.
Eitt það besta við jólin eru mandarínur og piparkökur. Ég er í sjálfu sér ekki mikill smáköku kall en piparkökurnar eru góðar (kannski flokkast þær ekki undir piparkökur?). Er þessa stundina með piparkökur og mandarínur með mér hérna niðri í skóla og það er fátt betra en að snæða sér á þeim í internet pásum.
Jæja aftur til starfa...nóg að gera.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli