24.11.07

Norsk tónlist

Svei mér þá mér tókst loksins að finna skemmtilega norska tónlist. Var alveg ákveðinn í því þegar maður kom hérna út að finna eitthvað norskt gull. Reyndar allt Hipp-Hopp/Rap lög en ekkert verri fyrir það. Persónulega finnst mér þetta allt vera helvíti góð lög.

Það heitasta í dag hérna í Norge eru félagarnir í MadCon. Þeir eru að gera allt vitlaust með lagið Beggin. Var að skutla Önnu í jólahlaðborð í gær þegar þetta lag var í útvarpinu, Anna hækkaði í botn og fór að dilla sér með. Í eitt að fáum skiptum sem ég hef ekki heyrt lag sem Anna hefur heyrt en til að koma mér til varnar þá hlusta ég ca. ekki neitt á útvarp á meðan Anna brunar um bæinn hlustandi á útvarp á milli staða.



Næst eru það Erik og Kriss og er þetta einnig nokkuð nýtt lag (að ég held).



Svo í lokin er eitt lag frá 2002 þar sem fyrr nefnd hljómsveit MadCon kemur fyrir en tónlistarmaðurinn í þetta skiptið er Paperboys.



Ekkert mp3 í þetta skiptið enda öllum nokk sama held ég. Ef fólk vill fá þessi lög "lánuð" til frekari hlustunar er þeim bent á að senda mér tölvupóst á orvars (hjá) gmail.com eða bara láta vita í commentkerfinu.

Engin ummæli: