Er að hlusta af nokkuð mikið af tónlist þessa dagana. Er með á "shuffle" og því koma hin ýmsu lög upp sem maður hefur ekki hlustað á lengi. Datt inná lag með Ajax sem er á hinum frábæra diski Icerave frá 1992. Tékkaði á tónlist.is til gamans til að fá umslagið á plötunni.Fyrst vill ég hrósa Tónlist.is fyrir að hafa þessa snilldar plötu þarna. Þarna eru nokkrar af perlum íslenskar "rave" menningu.
En ekki skil ég alveg markaðsfræðina í að selja þessa plötu á 1299 kr. Hvaða heilvita maður kaupir 15 ára gamla rave plötu á 1299 kr? Bara að velta því fyrir mér.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli