Ekki búinn að horfa á mikið af tilvonandi óskarsverðlauna myndum undanfarið, en svona er þetta stundum.
Pirates of the Caribbean: At World's End (2007)
Seinasti myndinni (að ég held) í þessum þríleik. Þessi mynd er svona svipuð og mynd númer 2 (Pirates of the Caribbean: Dead Man's Chest). Býður ekki uppá neitt nýtt og er bara verið að teygja lopann ennþá lengra. Þetta er samt góður lopi og alveg hægt að hafa gaman af þessari mynd. En í sjálfu sér er fyrsta myndin lang best.
Það gekk eitthvað erfiðlega að muna eftir hvernig mynd númer tvö endaði og því var hún nokkuð ruglingslega í byrjun. Það segir kannski allt sem segja þarf um mynd númer tvö.
Johnny Depp er alltaf góður og það sama má segja um Geoffrey Rush og svo er Keira Knightley er alltaf sæt.
Einkunn: Pirates of the Caribbean: At World's End fær 7
The Good Shepherd (2006)
Mynd sem Robert De Niro leikstýrir og fjallar um njósnir í stríðinu og hvernig CIA verður til. Þunglyndisleg, hæg og lítið spennandi mynd með Matt Damon í aðalhlutverki.
Einkunn: The Good Shepherd fær 5
Surf's Up (2007)
Ég og Kári horfðum á þessa mynd í nokkrum hlutum eftir að hann kom heim af leikskólanum. Alveg fínasta mynd um brimbretta mörgæsina Cody Maverick. Jeff Bridges leikur Big Z sem er svona svipuð týpa og The Dude (þú átt bara að vita hver það er) og er skemmtilegur í því hlutverki.
Annars man ég eftir því þegar ég var í straumfræði, back in the days, þá var kennarinn að tala um hversu erfitt væri að gera vatn (straum) eðlilegan í þessum teiknimyndum. Það hefði tekist fyrst í Shrek að mig minnir (man ekki alveg hvaða mynd það var). En allavega er vatnið og sjórinn í þessari mynd mjög vel gerður, bara fyrir þá sá eru mikið að spá í straumfræði.
Hérna er svo feminista dómur um þessa mynd sem nokkuð vit er í.
Einkunn: Surf's Up fær 6
Cars (2006)
Ég og Kári horfðum einnig á þessa mynd saman í einhverri leti. Alveg ágæt mynd þar sem Owen Wilson er mjög góður sem hin hrokafulli Lightning McQueen. Var reyndar búinn að lesa bókin fyrir Kára nokkuð oft og þekkti því söguþráðinn nokkuð en það skemmdi í sjálfu sér ekki mikið enda ekki mjög djúp mynd. Fín mynd fyrir börnin en er samt ekki eins góðar fullorðins myndir eins og The Incredibles og Shrek.
Einkunn: Cars fær 6
Sunshine (2007)
Vísindaskáldsögu bull. Þessi mynd fær 7,3 á imdb sem ég bara skil ekki, einhverjir Star Trek nörrar sem finnst þetta skemmtilegt. Ég er ekki þar á meðal.
Einkunn: Sunshine fær 4
Wild Hogs (2007)
Maður hefur nú stundum gaman að horfa á heimskulegar gamanmyndir og þessi fer undir þann flokk. Skil nú ekki alveg hvernig er hægt að fá svona fína (og ekki fína en fræga) leikara til að leika í svona mynd. En allt er hægt ef peningar eru fyrir hendi. Fólk veit hvað það er að fara út í þegar það horfir á þessa mynd og fær í sjálfu sér það.
Einkunn: Wild Hogs fær 5
Engin ummæli:
Skrifa ummæli