Það er mjög fallegur dagur hérna í Þrándheimi í dag. Fór með Kára á leikskólann og svo var hjólað í skólann í -4°C frosti og með bleikan himinn yfir bænum. Bærinn alltaf mjög fallegur í svona stillu þegar sólin er að koma upp.
Fyrir þá sem ekki vita er snjórinn löngu farinn aftur. Það var nú bara ágætt því það var orðið mjög hættulegt að ferðast um bæinn sökum klaka brynju og almennar hálku. Ég tók góða "head dive" á leiðinni í skólann í seinustu viku og endaði rennandi blautur á hliðinni, ekkert sérlega þægilegt. Ég var farinn að halda að ég gæti bara ekki dottið á fáknum góða. Kannski var maður orðin of góður með sig og því farinn að fara ansi hratt niður bröttu brekkurnar á leiðinni í skólann í vafa sömum aðstæðum. En maður lærir af reynslunni.
Þá vildi ég óska Jón Hauki, Margréti og Guðrúnu til hamingju með nýja húsið sitt við Fróðaþing 24. Loksins í gær komu nýjar myndir af húsinu og varð maður alveg veikur á að skoða þær. Það er grunnt á byggingarbakteríunni í manni. En alveg stórglæsilegt hús og manni hlakkar til að koma í heimsókn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli