13.11.07

Tony og typpalingarnir



Maður var nú mikill Guns N' Roses maður í gamla daga og því var Bob Dylan slagarinn Knocking on Heavens Door alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér. Alltaf fundist sú útgáfa mjög góð ábreiða af laginu.
En núna er verið að gera mynd um ævi Bob Dylan sem mun heita I'm not there og á soundtrackinu taka nokkrir frægir listamenn góða Bob Dylan slagara. Tony ogtyppalingarnir eru þarna á meðal og taka umrætt lag. Langt síðan maður heyrði eitthvað nýtt frá Tony og typpunum og því afar hressandi (þversögn) að heyra þessa útgáfu af þessu flotta lagi.
Antony & The Johnsons - Knocking on heavens door [mp3]

Til að hafa þetta alvöru lét ég líka fylgja Guns N' Roses og Bob Dylan útgáfurnar.
Guns N Roses - Knocking On Heavens Door [mp3]
Bob Dylan - Knocking on heavens door [mp3]

Verði ykkur af góðu.

Engin ummæli: