22.7.13

Anton Krupicka Nolans 14

Skemmtileg mini sería tilraun ultra hlauparans Anton Krupicka til að hlaupa á Nolans 14. Það eru 14 tindar í Colorado Sawatch Range sem ná yfir 14.000 fet sem eru um 4.250m.





16.7.13

Keppnissaga: Laugavegurinn Ulta maraþon 2013

Veðrið var ágætt um morguninn. Giska á hita uppá ca. 5°C og nánast logn í Landamannalaugum. Það fór svo að rigna þegar maður var að taka sig  til og var maður því óviss hvernig maður ætti að klæða sig.  Þegar maður sá svo allt liðið koma úr rútunum og flestir voru mjög vel klæddir þá fór maður að endurskoða aðeins útbúnaðinn. Ákvað svo að vera bara í stuttbuxum með kálfahlífar, í bol og svo langerma bol yfir og með hanska og buff. Var svo með Salomon bakpokann sem ég hafði keypt nokkrum dögum áður. Í honum var ég með 1 l af powerade og setti svo 500 ml af vatni til að þynna powerade-ið aðeins. Tók með 10x GU gel og 1x GU hlaupkalla (sama og gelið). Var svo með nokkrar salt töflur til vara.

Landmannalaugar-Hrafntinnusker
Ég og Guðni hituðum okkur  aðeins upp með að skokka um svæðið og ná mestu spennunni úr kerfinu. Komum okkur svo í startið og komum okkur fyrir fremst. Hópurinn taldi saman niður frá 5 og svo var hlaupið af stað. Hef aldrei verið svona  framarlega og lenti því ekki í neinni biðröð á stígnum upp hraunkantinn. Stefán Viðar og einn útlendingur voru fyrstir og svo ég og Guðni þar fyrir aftan. Eftir ca. 500m í hrauninu  tók ég framúr útlendinginum og  þegar við nálguðumst Brennisteinsöldu þá fórum við framúr Stefáni, Biggi Sævars fylgdi okkur svo skammt undan. Við Brennisteinsölduna var strax logn og manni orðið heitt. Við hlupum það sem var hægt og gengum svo bröttustu brekkurnar og fórum rólega í niður kaflana. Sáum fljótt að þetta yrði líklegast keppni okkar á milli og höfðum við svo smá áhyggjur af Bigga, þó svo að hann hafi ætlað að hlaupa áfram út í Skóga. Það virtist ekki vera neinn úber öflugir útlendingar eins og við vorum búnir að óttast.
Fljótlega fór svo að kólna og vindurinn að aukast. Það var svo eftir ca. 7 km sem snjórinn byrjaði. Maður var búinn að heyra um snjóinn en gerði ekki ráð fyrir að hann myndi byrja svona snemma. Þegar ég hljóp 2011 var miklu meiri snjór en 2010 en þetta var allt annað. Þá var snjórinn meiri við Hrafntinnuskerið en núna náði hann svo langt niður í átt að Landamannalaugum. Það er líka auðveldara að hlaupa í snjó á jafnsléttu en upp brekkur og því varð þetta ennþá erfiðara. Þá var snjórinn frekar blautur og laus í sér og var erfitt að hlaupa í honum, eiginlega erfitt að labba í honum líka.  Við gerðum okkur fljótt grein fyrir að þessi snjór myndi hægja eitthvað á okkur við myndum verða aðeins lengur upp í Sker en vorum samt rólegir yfir þessu því allir aðrir þurfti líka að fara í gegnum snjóinn.  Komum svo upp í Hrafntinnusker á tímanum 1:03:53 sem var ca. 2 mín á eftir áætlun. Fékk mér 1 gel eftir ca. 45 mín.

Hrafntinnusker-Áfltavatn
Við stoppuðum varla í Hrafntinnuskeri, fékk mér smá vatnsopa úr einu glasi og svo héldum svo strax áfram. Allt á kafi í snjó og ennþá var hann nokkuð erfiður og þá kom mótvindur líka á þessum kafla. Reyndum áfram að hlaupa það sem við gátum en þurftum oft að skipta yfir í göngu til að þola snjóinn. Á þessum kafla sleppur maður þó við nokkuð lítil gil og því græðir maður einnig smá á snjónum á þessum kafla. Vorum næstum því búnir að hlaupa útúr leið eftir ca. 14 km en vorum fljótir að átta okkur á vitleysunni. Aðeins öðruvísi að vera fremstur og þurfa að „finna“ leiðina en ekki elta eins og ég hef vanalega gert. Var samt gott að vera tveir og geta kastað á milli hvað væri nú „rétta“ leiðin. Snjórinn hætti svo loks fyrir stærstu brekkuna og var alveg frábært að vera laus við hann. Þá loksins náðum við að komast í smá hlaupa gír. Fljótlega fórum við að rúlla niður og vorum báðir mjög tæpir í einu gilinu sem var svo hált að það munaði litlu að myndi enda illa. Á hverasvæðinu var mikið um blautan leir og því passaði maður sig vel á þeim stöðum. Fórum svo varlega niður Jökultungurnar til að fara vel með lærin. Þarna var ég með smá áhyggjur og fannst ég vera orðinn þreyttari en ég var þegar ég hljóp þetta árið 2011. Kannski eitthvað samspil af snjó og kulda en maður var kominn með smá þreytu í lærin og einhvern veginn ekki kominn almennilega í gang sökum þess að maður var lítið búinn að hlaupa langann kafla. Þarna fór maður samt aðeins að fá að rúlla. Frábært að það var búið að setja tvö borð á stigann yfir fyrstu ánna/lækin eftir jökultungurnar. Datt þarna frekar illa árið 2011 og því mikil bót. Héldum áfram saman ég og Guðni og var mjög þægilegt að hlaupa þetta tveir saman. Voru aldrei einhvern veginn að toga hvorn annan áfram heldur var þetta bara vinalegur hlaupatúr. Aftur tók ég varla stopp í Álftavatni, fékk mér aftur smá vatnssopa og Guðni fyllti á vatnið sitt og var mjög snöggur að því og því fljótur að ná mér aftur. Vorum í Álftavatni á 2:03:36 og fórum við því þennan legg á 59:43 sem var alveg á áætlun en í heildina aðeins á eftir áætlun. Ég fór að halda að það yrði erfitt að toppa 2011 tímann með þessu áframhaldi og miðað við að lappirnir voru minna ferskar á þessum tíma punkti heldur en 2011.

Álftavatn-Emstrur
Áfram héldum við og sáum Bigga ekki langt fyrir aftan okkur þegar við vorum að hækka okkur upp eftir ferskvatnsánna eftir Álftavatn. Þarna var ég áfram með smá áhyggjur, frekar kalt með mótvind í fangið og Guðni hljóp upp smá brekku sem ég labbaði frekar. Náði honum samt fljótlega. Renndum í gegnum Hvanngil og þar var alveg einn að taka á móti okkur J Veðrið eitthvað að hafa áhrif því 2011 var þarna mikill hópur og margir sem ég þekkti. Fljótlega eftir það var það svo Bláfjallakvíslin. Lappirnar vel frosnar þegar maður hélt áfram en var fljótur að jafna sig á á kuldanum og þarna fór maður loksins að geta hlaupið. Vindurinn snéri sér aðeins þannig að hann kom á hlið og frekar í bakið en á móti. Fann það fljótt að maður var að jafna sig á Jökultungunum og snjónum og lærin voru að lifna við. Þarna var einnig gott að hafa Guðna því við ræddum mikið saman um líðan og það hjálpaði að vita að við vorum í svipuðum málum. Þarna náðum við mjög góðum kafla og rúlluðum á ca. 4:30 pace-i í einhverja 7 km. Sandurinn var fínn en var þungur þar sem hann er laus í sér, alveg sama hvort hann er blautur eða ekki. Slepptum alveg vatnsstöðinni hjá veginum og héldum áfram að rúlla vel. Fínt að fara í gegnum skarðið við Útigönguhöfða, aðeins að fá að labba upp og rúlla niður. Þá fundum við að lærin voru komin í gang aftur og báðir nokkuð ferskir. Einnig gott að vita að maður átti „bara“ 20km eftir. Svæðið fyrir Emstrur kom smá á óvart, mundi ekki alveg nógu vel af því en ég vissi samt að við værum vel á áætlun. Komum svo í Emstrur á 3:21:22 (split 1:17:46). Náði eiginlega ekki að kíkja á klukkuna því þarna stoppuðum við loksins og ég fyllti á vatnsbrúsann í bakpokanum. Var búinn að hafa smá áhyggjur að ég myndi vera lengi að fylla hann en það gekk vel. Fékk starfsmenn til að hjálpa við að hella nokkrum glösum af Powerade-i ofan í pokann og svo rukum við aftur af stað. Þarna vorum við komnir aðeins á undan áætlun án þess að ég gerði mér fyllilega grein fyrir því. Var alltaf að horfa á hvert split fyrir sig en aldrei heildar tímann.

Emstrur-Húsadalur
Vorum báðir nokkuð ferskri en fundum það fljótlega að skrefin vorum farinn að þyngjast upp brekkurnar. Náðum ennþá að rúlla vel niður og hlaupið sæmilega. En sandurinn var erfiður á köflum og hægði hann á og tók smá úr manni. En þarna er farið að styttast í endann og það hjálpar manni mikið. Brekkan upp úr gilinu eftir  Markarfljótsbrúnna var vel erfið. Fínt að komast aftur í að hlaupa og fannst mér á tíma auðveldara að hlaupa upp brekkur en að labba þær. Næst var það svo Slyppugil og Bjórgil og þá fór maður að mæta gönguhópunum sem er alltaf gaman. Það var svo eftir Bjórgilið að maður fór að rúlla niður á við og þá tók ég smá skyndiákvörðun að aðeins að gefa í og sjá hvort að ég gæti slitið Guðna af mér. Einhverstaðar urðum við að fara keppa og þetta var alveg jafn góður staður og hver annar. Vissi ekki alveg hvort að Guðni væri að gefa eftir eða væri límdur við mig en þegar ég fór að nálgast Ljósánna þá mættum við góðum gönguhóp sem var búinn að stilla sér upp og hvatti okkur vel. Þá heyrði ég að það var slatti á milli þess að þau fögnuðu mér og svo Guðna.
Ég hélt samt áfram að þrýsta hraðann en fann ég var orðinn mjög tæpur með að fá krampa aftan í læri en hélt samt áfram að hlaupa af krafti. Fékk mér smá kóksopa við Ljósánna sem var gott því ég var orðinn nokkuð „léttur“ í hausnum og það hjálpaði kannski að laga blóðsykurinn. Fyrsta skipti í 11 ár sem ég fæ mér kók J.
Næst var það Kápan góða og þá sá ég bilið sem ég hafði náð að mynda á þessum ca. 3km og var kominn með nokkuð öruggt forskot. Hélt samt áfram að hlaupa eftir Kápuna og var nokkuð góður niður brekkuna. Fór yfir Þröngá og þá fyrst setti ég á heildar tímann og sá ca. 4:34 og þá fyrst áttaði ég mig á því að ég færi vel með það að komast undir 5 klst. Fékk mér svo aftur kókglas á vatnsstöðinni eftir Þröngá. Lenti í smá geðshræringu í skóginum þegar ég áttaði mig á að þetta væri að verða búið og að ég væri í 1. sæti og það væri fátt sem gæti komið í veg fyrir það. Alltaf gaman að hlaupa niður í átt að Húsadal en seinustu brekkurnar voru nokkuð sleipar og því fór maður varlega þar. Að taka svo seinustu beygjuna og sjá markið og heyra í áhorfendum er alveg ólýsanleg tilfinning. Það var ekkert smá gaman að koma loks í mark og hvað þá að vera í 1. sæti. Fann strax Kára og var þetta alveg frábært. Enda tíminn var 4:48:08 og fór ég seinasta legginn á 1:26:46.
Heilt yfir var ég mjög ánægður með hlaupið, enda ekki annað hægt. Var búinn að undirbúa mig vel fyrir hlaupið og það hjálpar mikið til. Var búinn að fara vel yfir leiðina og pæla hvernig maður ætti að tækla hvern kafla. Aðstæður voru ekki bestar útaf snjó en veðrið var fínt þó svo að það hafi rignt mikið. Maður er vanur að hlaupa í rigningu og er það betra en í 15°C hita. Vindurinn hafði svo lítil áhrif því oft er maður að hlaupa niður brekkur þegar hann kom í fangið.
Lappirnar héldu vel og lærin líka, það var helst að maður var þreyttur aftan í lærum í brekkunum og enn sínir sig hvað maður verður að vera búinn að tækla brekkurnar vel í undirbúningi. Var alveg frábært að hlaupa þetta langan kafla með Guðna þó svo það hafi ekki verið undirbúið.
Sleppti svo að fá mér kjöt að borða enda er matarlystin ekkert alltof góð eftir svona keppnir. Finnst lélegt að þurfa að borga 2.500 /3.500 fyrir að fá að borða í lok keppni sem maður borgar ansi mikið fyrir að taka þátt í. Annars var allt sem kemur að keppninn i til fyrimyndar og vil ég þakka öllum þeim sem tóku þátt í að skipuleggja og aðstoða við hlaupið. Takk fyrir mig.


Búnaður og drykkir:
Skór: Brooks PureGrit. Virkuðu mjög vel. Eru léttir og góðir þó svo að gripið mætti vera aðeins betra. Var með smá áhyggjur að fá í kálfana því þeir eru svo lágir en fann ekkert fyrir því.
Sokkar: Compressport doppu sokkar. Snilldar sokkar sem verja mann vel. Fékk ekki eina blöðru.
Kálfahlífar: CEP. Farnar að dala en held að þær hjálpi aðeins til við að halda aðeins við.
Stuttbuxur: Asics. Venjulegaar þröngar hlaupabuxur.
Bolur: Adidas. Léttur hlaupabolur.
Langerma: Asics. Léttur hlaupabolur.
Bakpoki: Salomon XT Wings með 1,5l vatnssekk. Algjör snilld að hlaupa með svona og geta fengið sér auðveldlega sopa án þess að neitt vatn fari til spillis. Maður finnur ekkert fyrir því að hafa 1,5 l á bakinu og hrisstist sama sem ekkert. Þá var frábært að koma gelunum í vasana framan á bakpokanum
Gel: 7xGU gel + 1 High Five gel fyrir hlaup. Er alveg að fýla þessu GU gel í botn. Fékk ekkert í magann og veit ég ekki alveg hvort að það sé bara útaf ég hefi drukkið minna en þegar það er heitt eða að þessi gel fari betur í mig ásamt því að ég borðið ekkert af bönunum á vatnsstöðunum eins og hef hef gert undan farin ár. Prófaði líka hlaup kallana og var fínt að skipta aðeins yfir í þá.
Morgunmatur: Fékk mér hefðbundinn morgunmat sem er hafragrautur með döðlum, möndlum, Chia fræjum, hnetusmjöri og banana.

2.7.13

Esja #8


Seinasta Esjan fyrir Laugaveginn. Horfði á Esjuna að heiman og sá að það var þessi skýjabakki breiðist yfir toppinn, sem bendir til þess að það sé brjálað rok þarna uppfrá. Á leiðinni uppeftir horfði ég á Úlfarsfellið í kvöldsólinni og var að spá í að taka það 2-3x í staðinn. En ákvað að fara samt á Esjuna í skuggann og rokið. Tók lúppuna neðst eins og í Esjuhlaupinu og lagði svo af stað upp fjallið. Hljóp þetta vanalega í neðri hlutanum þrátt fyrir vindinn en eftir að leiðirnar skiptast var rokið einfaldlega of mikið til að hlaupa, rétt hljóp sléttustu kaflana. Á tímabili var erfitt að standa í lappirnar slíkt var rokið og mér orðið skítkalt á höndunum þrátt fyrir síðerma bol. Fékk vindinn loks í bakið á seinasta kaflanum og var kominn upp að steini ca. á 32 mín. Gleymdi úrinu mínu og notaði símann, sem fann ekki gps merki fyrr en ég var lagður af stað upp fjallið.
Skokkaði svo sömu leið niður en þegar ég var nýkominn yfir lækinn eftir skriðinu rak ég tánna í stein og flaug framfyrir mig. Lenti nokkuð illa á hægri hliðinni og skrambúlaði á mér olnbogann einna verst. Slapp þá sæmilega frá þessu og er alveg heill þrátt fyrir smá mar og sár. Skokkaði svo frekar rólega niður eftir þetta en meðvindurinn ýtti manni full hratt niður.
Var í heildina 53:31 sem er ágætt miðað við aðstæður.
 Keypti mér svo hlaupa bakpoka fyrr um daginn. Var að leita mér að annað hvort svona vatnsbakpoka eða stórum brúsa í belti. Var búinn að spotta einn í Afreksvörum en þar var lokað þegar ég fór þangað eftir vinnu. Datt þá í hug að kíkja í Íslensku Alpana og sjá hvort að þeir væru með einhverjar hlaupa vörur. Kom mér á óvart að sjá að þeir eru með mikið af hlaupa vörum frá Salomon sem eru mjög vinsælir í Ultra heiminum í dag. Endaði svo á að kaupa mér Salomon XT WINGS 10+3 bakpoka eða vesti. Keypti svo 1,5 l vatnspoka með slöngu og fór með á Esjuna í gær. Fyrsta prófun gekk mjög vel og pokinn situr vel á manni en það gutlar aðeins í vatninu í pokanum. Þægilegt að geta drukkið úr slöngu á ferð og vasarnir að framan virka fínir á mig til að geyma gel, myndavél og þannig hluti.

1.7.13

Tveggja vatna leiðin

Fór út um kl. 21:30, frábært veður, logn og kvöldsól.
Hljóp upp í Guðmundarlund, yfir Sandahlíðina og þar að kanna nýja slóða og leiðir til að hlaupa. Ætlaði að hlaupa frá Sandahlíðinni yfir að Vífilstaðavatni en stígurinn hætti allt í einu og allt fullt af lúpínu þannig að ekki var hægt að finna neina slóða þar. Þá fylgdi ég stikaðri leið upp að gömlu bæjarstæði upp á Sandahlíðinni og aftur niður. Fann svo flottan stíg norðan við Elliðavatnsveg og alveg niður að Vífilstaðavatni. Meðfram því og ætlaði svo að komast á línuveginn þar fyrir ofan en stígarnir ekki tengdir saman. Var týndur þar í móa í smá stund en datt svo inná slóða og svo línuslóðann (sem er mjög grófur) upp Grunnvatnsskarð og framhjá Sandahlíðinni. Hljóp svo einnig framhjá Vatnsendahlíðinni og kom svo upp meðfram Elliðavatni. Frábært að hlaupa í svona flottu veðri, birtan af kvöldsólinni falleg og gaman að horfa í kringum sig. Sá eftir að hafa ekki tekið með myndavél í svona túr.
14km á 1:11 klst

29.6.13

Langt í Heiðmörk + Vikan

Fór að heiman í fínu veðri, skýjað og hlýtt úti. Fór meðfram golfvellinum niður að Vífilsstaðavatni, kringum það og svo inn Vífilstaðahlíðina, inn Búrfellsgjá og svo meðfram Löngubrekku (held það heiti það) inná fræðsluhringinn og þaðan meðfram vatninu heim. Einhver þreyta og orkuleysi eftir ca. 15 km. Hélt samt áfram og kláraði þetta semi ferskur.
Var búinn að vera vinna í að moka beð í 3 klst fyrir hlaupið sem hefði kannski þessi áhrif, vona það en hafi ekki verið eitthvað hlaupa tengt.
 30 km á 2:22 klst.

Fín vika að baki. Hljóp samtals 112km á 8:50 klst. Ein keppni, eitt langt og eitt lítið fjall, annars nokkuð rólegt allt saman. Var orðinn þreyttur eftir vikuna og þarf maður að passa álagið núna þegar að það eru tvær vikur í Laugarveginn. Næstu tvær vikur minnkar maður svo hlaupin og hugar að hvíld til að mæta ferskur til leiks í Laugaveginn.

28.6.13

Rólegt morgunskokk

Hljóp í vinnuna í fínt veðri. Fór sunnan megin við vatnið og þaðan meðfram Bugðu og Rauðavatni inn í Árbæ og vinnuna. Nokkuð ferskur, fékk mér einn banana áður en ég lagði af stað.

27.6.13

Samgönguhlaup + Úlfarsfellið

Morgunhlaup í vinnuna. Smá rigning og meðvindur. Fékk mér morgunmat áður en ég fór af stað og því lítið mál að rúlla af stað.
7,3km á 35 mín.

Hljóp úr vinnunni og stefnan tekin á Úlfarsfellið, svo í matarboð í Mosó. Fór niður í Grafarvog, upp meðfram golfvellinum upp í Grafarholt, þar í kring og yfir á Úlfarsfellið. Fann einhverja niðurleið og lenti í vandræðum í mikilli drullu og rótum. Endaði með að fljúga á hausinn og svo að reka hausinn í brotna grein. Komast þó nokkuð heill niður á Vesturlandsveg og tók létt skokk það sem eftir var. Fínt veður smá vindur og smá rigning, ekkert til að væla yfir. Ennþá smá þreyta í löppum eftir mánudaginn en allt að koma.
11,5 km á 1:01 klst.

26.6.13

Heiðmerkurhringurinn

Út eftir kvöldmat og stefnan tekin á Heiðmörk. Ennþá með talsvert af harðsperrum í kálfum og utanverðum lærum eftir hálfa maraþonið á mánudaginn. Ágætisveður þrátt fyrir slæma spá fyrir daginn. Fékk reyndar tvær dembur á mig en það var bara hressandi. Slapp við mesta vindinn. Komast á ágætis ról en hélt þessu frekar rólegu.
17 km á 1:20:47.

25.6.13

200 Kóp recovery

Létt rúll um 200 Kóp. Fékk þennan fína hlaupasting eftir 1km sem var alveg að drepa mig á tímabili. Þegar ég loksins losnaði við hlaupasting þá tók almenn þreyta og stífleiki við eftir hlaup gærdagsins. Gott að komast aðeins út og reyna að hrista af sér mestu harðsperurnar.
9,6km á 46:22 mín.

24.6.13

Miðnæturhlaup Suzuki

Miðnæturhlaupið er stemmnings hlaup og hafði mig alltaf langað að taka þátt í því. Fór í fyrsta skipti í fyrra í 10 km hlaupið en núna langaði mig að fara hálft maraþon þrátt fyrir krefjandi braut. Var með strákinn á Akranesmótinu alla helgina og því ekki tími fyrir hlaup þá og var maður því vel hlaupa hvíldur eftir helgina.
Var mættur klukku tíma fyrir hlaup niður í Laugardal og sótti númerið í rólegheitum og fór svo fljótlega að hita upp. Tók hefðbundna upphitun til að vekja líkamann aðeins og búa hann undir það sem koma skal. Smá vindur og hiti ca. 10°C.
Það voru einhverjir 300 útlendingar skráðir í öllum vegalengdum og því datt manni í hug að það yrðu nú einhverjir öflugir útlendingar. Sá strax 1 eða 2 sem litu út fyrir að vera öflugir. Ég og Róbert Gunnars vorum líklegastir af íslendingunum sem voru mættir á ráslínu. Skotið reið af og allir hlupu af stað.
Fór af stað á eftir einum útlendingi en lét hann fara fljótlega, sá að hann var í annarri deild en ég. Ég leiddi hóp af 3-5 fyrsta 1-2 km og svo fóru menn að dragast aftur úr. Ég og Róbert og 1-2 í viðbók, vorum í hóp upp að fyrstu vatnstöð við stífluna en þá datt held ég einn aftur úr. Þegar við vorum komnir upp í Víðidal kemur svo einn hress Kanada maður framúr og spyr okkur hvort við þekkjum leiðina, sögðum að svo væri og hann flaut svo aðeins framfyrir okkur. Ég elti hann upp Víðidalinn og áfram framhjá Árbæ en þessar rúllandi hæðir tóku vel í lærin. Fyrst við hesthúsabyggðina, svo við Selás og svo loks við Hádegismóa (Mogga húsið). Þar var Kanada maðurinn kominn með einhverja 50m á mig og ég missti svo Róbert framúr í brekkunni upp að Mogga húsinu. Eftir það kom smá niðurkafli í átt að golfvellinum og þá fór ég strax aftur fram úr Róberti en náði ekki Kanada manninum. Aftur brekka frá golfvellinum upp í Grafarholt en eftir það var svo brött brekka niður í Grafarvog þar sem maður passaði sig að fara ekki of geyst. Þarna og svo í Grafarvoginum dróst aðeins á milli okkar þriggja sem hélst svo alveg til loka.
Gaman að koma að stokknum í Elliðaárdal og bætast í hóp 10km hlaupara. Þeir voru hæfilegum hraða þannig að maður náði að hlaupa hraðar en þeir og svo vann maður sig áfram hægt og rólega. Missti samt sjónir af Kanada manninum. Þegar ég kom hjá Glæsibæ sá ég að klukkan var 1:17:xx og reyndi ég þá að gefa vel í til að sjá hvort ég kæmist undir 1:20. Þrátt fyrir góðan endasprett þá dugði það ekki og endaði ég á 1:20:20 sem er bæting um heilar 6 sek.
Endaði í 3. sæti og var fyrstur íslendinga. Sáttur við daginn og skemmtilegt hlaup í krefjandi braut. Fékk svo gjafabréf í Reykjavíkur maraþon í verðlaun.

23.6.13

17-23. júní

Róleg vika að baki, meira af nauðsyn en einhverju öðru en eftir stífa seinustu viku var í góðu að missa út nokkra daga. Afmæli og frúin að vinna + Norðurálsmótið hjá stráknum og því nóg að gera. Tók Mikka maraþon með Kára á 17. júní og skemmti hann sér mjög vel. Eftir það voru það 3x morgunhlaup + eitt kvöl í Heiðmörkinni. Komast ekki föstudag né laugardag sökum anna en ákvað svo einfaldlega að hvíla á sunnudaginn. Þannig var þetta fín tímasetning til að fara svo í hálft í Miðnæturhlaupinu á mánudeginum.
Vikan var því:
51 km og 4:16 klst

Nú fer að styttast í Laugaveginn (3 vikur) og því er næsta vika ein sú síðasta sem hægt er að taka sæmilegt magn. Eftir það fer þetta að minnka.

20.6.13

Morgunskokk

Morgunskokk í Heiðmörk, enn og aftur var ég ekkert að nenna þessu. Þessi morgunhlaup eru frekar erfið en skána eftir því sem líður á. Ekki gott að hlaupa á útúr spændum hestaslóðum svona í morgunsárið en þegar ég komst á vegina þá verð þetta betra. En veðrið klikkar ekki á afmælisdaginn, sól og logn.
10,3 km á 50 mín

19.6.13

Morgunhlaup

Skemmtilegt morgun hlaup. Smá þreyta og var varla að nenna út, vissi samt að það kæmist ekki önnur æfing inn í dag og því drullaðist maður úr rúminu og þá var þetta lítið mál eftir það.
Hljóp meðfram vatninu í sól og blíðu svo meðfram Helluvatni og þaðan inná veginn og tilbaka með smá krók til að klára 10 km. Tók 48 mín.

18.6.13

Morgunhlaup + Heiðmerkurhringur

Morgunhlaup. Upptekin þessa vikuna og því verður lítið um alvöru hlaup. Fór út kl. 6 og skokkaði hringinn í kringum vatnið. Þreyttur í hælum í byrjun en svo datt maður í gang. Samt meira strögl svona á morgnanna en þegar maður er almennilega vaknaður og kominn af stað.
10km á 48:36 mín.

Fór út eftir afmælisveisluna mína að prufa nýja dótið mitt. Fékk nýja skó (Brooks PureGrit), nýja compression sokka frá Nike og nýja bol.
Fór í alveg grenjandi rigningu af stað en eftir ca. 4-5km hætti að rigna og kom þetta flotta veður. Sæmilega sprækur en finn fyrir smá þreytu eftir erfiða seinustu viku. Var að skríða heim um kl. 23:30 en gott að ná nokkrum km í bankann því það komast lítil hlaup inn í næstu helgi.
Skórnir voru fínir, rosalega léttir (um 250 gr.) og með góðu gripi. Fann samt alveg mun á þeim og á nýju Lunarglide skónum sem eru mjög mjúkir.
16,64km á 1:20 klst
Ekki þeir flottustu í bænum en vonandi góðir á Laugaveginum

17.6.13

Mikka maraþon

Kári að hlaupa Mikka maraþon. Flott umgjörð utan um þetta hlaup og gaman að sjá hvað allir krakkarnir voru spenntir. Gekk vel hjá Kára, vorum lengi í gengum hliðið í byrjun og smá sikk sakk fyrsta km en svo fór þetta að rúlla. Hljóp vel og svo var labbað inná milli og fannst svakalega gaman að hella vatni yfir sig á vatnsstöðvunum. Gaman að hlaupa með honum. Hann lenti í 23. sæti í sínum aldursflokki (6-8 ára). En hann hafði gaman af þessu og það er fyrir öllu.
4,2 km á 30:18