11.10.07

Haust eða vetur?

Þetta haust er nú búið að vera frekar lélegt hérna í Þrándheimi, í fyrra var sól og sumar langt frameftir hausti en í ár var það rigning og kuldi. Haustið toppað sig svo alveg í morgun þegar það bauð uppá snjókomu.

Þannig að fyrsti "snjórinn" í ár kom 11. okt, þó svo að þessi snjór hafi nú bráðlega breyst í rigningu. En það var hressandi að hjóla í skólanum á móti snjó/slyddunni, maður er allavega vakandi þegar maður mætir í tíma.

Það er bara að vona að úrkomu magnið verði álíka mikið þegar er komið inní veturinn.

8.10.07

Helgin

Löng helgi að baki og mættur í skólann aftur. Haustið tók ansi hressilega á móti manni í morgun, rok, rigning og ekkert alltof hátt hitastig mætti manni á leiðinni í skólann.

Annars var helgin mjög góð. Tók mér frí frá lærdóminum á föstudaginn og þá var skundað upp í Estenstadhyttu með tengdó. Þetta er mjög fallegur skógur með tveimur vötnum (uppistöðulónum) og veðrið var alveg frábært. Set einhverjar myndir við þessar færslu þegar ég kem heim.

Seinna um daginn var svo farið upp að skíðastökkpallinum í Granåsen og þrammað þar upp, fólkinu var nú ekkert alltof sama um að ég var með Kára á bakinu en hann skemmti samt vel.

Á laugardaginn var brunað upp Røros en Røros er mjög fallegur námubær sem er á heimsminjaskrá. Aksturinn tók ca. 2,5 klst en var samt mjög skemmtilegur því haustið skartaði sínum fallegustu litum. Þá náðum við að fara niður í Olavsgruva sem er gömul koparnáma, en það var lokað í vetur þegar við ætuðum þangað með mömmu og pabba.

Í gær var það svo sundferð út í Pirbadet. Kára fannst ekkert smá gaman að komast í sund og var farið í rennibrautina, öldulaugina og einnig í straumlaugina/hringinn. Maður myndi kannski fara oftar ef það kostaði ekki fjölskylduna ca. 3500 kr að fara.

Þannig að nú er það bara skólinn hjá mér á meðan Anna fer með gengið í búðir.

Lofa svo myndum bráðlega.

5.10.07

Meistaradeildin

Það var stemmning á meistaradeildar leiknum þó svo að úrslitin hafi ekki verið sérlega góð, en Rosenborg tapaði 0-2 fyrir Schalke. Rosenborg komst mjög nálægt því að skora snemma leiks, þegar einn leikmaður Schalke skallaði boltann til baka til markmannsins sem missti hann yfir sig en náði að moka boltanum í stöng og út. Leikurinn hefði nú verið skemmtilegra ef þessi bolti hefði endað í netinu. Annars er ég á því að Schalke hafði skorað ólöglegt markt, það sem sóknarmaður Schalke hafi verið rangstæður þegar hann fékk boltann í fyrsta markinu.

En fúlt að horfa á tapleik og sjá ekki einu sinni mark hjá Rosenborg en gaman engu að síður, og við vorum rosalega góðir í seeeen-inu í Roooooo...seeeeeen...boooooorg.

Ekki hjálpaði til að vita til þess að Liverpool tapaði fyrir Marseille 0-1, um leið og þeir geta eitthvað smá í deildinni þá hverfur öll geta í meistaradeildinni.

En nóg um fótbolta

4.10.07

Afmælisbarn dagsins

Afmælisbarn dagsins heitir Guðrún Jónsdóttir (yngri) og er 2 ára í dag. Fjölskyldan í Þrándheimi vildi óska þeirri stuttu til hamingju með afmælið og þykir það mjög leitt að geta ekki komist í afmælisveisluna. Aldrei að vita nema að maður láti bara í sér heyra í staðinn.

Þá er fyrsta heimsóknin staðreynd þessa önnina. Tengdó komu í gærkvöldi/nótt og munu vera hérna í viku. Nóg að skoða og gera með þeim og alltaf gaman að fá heimsókn.
Ekki skemmir allur fíni maturinn sem þau komu með, ég er samt ánægðastur með íslensku hamborgarana því þeir norsku eru mjög svo vondir.

Svo var ég að græða 15 ár :)
Sjá hér

3.10.07

Champions League

Er að fara á Champions League í kvöld. Rosenborg spilar við Schalke í kvöld á Lerkendal Stadion og ég verð þar. Kannski ekki mest áhugaverðasti leikur í heimi en stemmningin mun samt verða góð á Lerkendal.
Áfram Rosenborg, Roooo Seeeen Borg.......

2.10.07

Fjernsyn

Nú er haustið komið með öllum tilheyrandi sjónvarpsþáttum en þó svo að lítið sem ekkert af þáttum hafi verið á dagskrá í sumar var lagerinn fullur af góðu efni. Það er nefnilega þannig að tíminn sem fer í þessa yðju fer alltaf minnkandi, barn og skólaganga eiga þar stóran hlut. Þannig að við áttum gott safn af uppsöfnuðu efni til að horfa á frá maí til lok sept. Já vhs spólurnar taka mikið pláss,; hóst, hóst :)

Tveir helstu þættir sem við höfum horft á í sumar/haust eru Heroes og Studio 60. Var búinn að heyra góða hluti um þessa þætti en geymdi þá þar sem við áttum nóg með að horfa á alla hina þættina sem á dagskrá voru seinasta vetur.

Vorum að klára Heroes í vikunni og var ég mjög ángæður með fyrstu seríuna af þessum þáttum. Þetta eru svona ofurhetju þættir, kannski svipuð pæling og X-men án þess að það sé komið útí þær öfgar. Það góða við þetta er að nú þurfum við ekkert að bíða eftir næstu seríu, því hún byrjaði í seinustu viku í USA.

Við erum svo ennþá að horfa á fyrstu seríu af Studio 60 eru grín/dramaþættir með Matthew Perry í einu af aðalhlutverkunum. Góðir þættir sem fjalla um lífið í tv bransanum. Það er reyndar búið að "cancel-a" þeim og við það urð þeir aðeins óáhugaverðari hjá manni. En skemmtilegir þættir engu að síður.

Þá hafa fleiri þættir verið á dagskrá hjá okkur. Kláruðum meðal annars 3 seríu af Lost í gærkvöldi og eru þeir þættir eitthvað að skána aftur, allavega betri sería en nr. 2. Verst er að þeir byrja ekki aftur fyrr en í febrúar á næsta ári.

En þetta er gott í bili af hvað er á dagskrá hjá okkur í Moholti.

1.10.07

Digranesvegur

Ég reikna með að Gummi Sverris sé ánægður með þetta en ekki þeir 184 sem voru teknir, reikna nefnilega með því að Gummi vilji engann hraðakstur í sinni götu.

Ingó fjallar svo einnig skemmtilega um þetta mál.

Sandkassaleikir

Helgin var nokkuð róleg hjá okkur í Moholti, sem er gott af og til. Það var góð tilbreyting að fara út á róló í þurru veðri þessa helgina og það sem meira var að það var einnig sól.

Ég held að mér finnist skemmtilegra en Kára að fara út á róló og moka í sandkassanum. Síðustu þrjár helgar hefur ég verið að "leika" mér af því að gera sandkastala með misgóðum árangri. Þannig er nefnilega málum háttað að maður á barn sem heldur að ég sé þarna (í sandkassanum) til að leika við sig en það er nefnilega stór misskilningur. Þannig að Kári kemur alltaf og hjálpar mér með kastalana og þar sem hans hjálp er misgóð þá enda kastalarnir yfirleitt sem útkraminn sandhaugur, sem er ágætis bygginar form en ekki það sem ég er að leita eftir.
Þannig að næstu helgi ætla ég að spyrja Jóa hvort hann vilji vera "memm" og við förum einir að leika okkur í sandkassanum.

Já það er gaman að eiga börn og hafa afsökun í að leika sér, get ekki beðið eftir því að fara renna mér á snjóþotu í vetur :)

28.9.07

Afmælisbarn dagsins

Stóri bróðir minn hann Styrmir er afmælisbarn dagsins, enda enginn smá dagur hjá honum í dag. Það er nefnilega þannig að hann er að detta í fertugsaldurinn og er 30 ára í dag. Til hamingju með það.

Nú er ég eini í fjölskyldunni sem er "ungur" ennþá :)

Annars væri ég mjög svo til að mæta í afmælisveisluna og fá mér bita af þessum (sjá mynd). Þetta er það versta við að búa í útlöndum að missa af svona atburðum.

Enn og aftur til hamingju með daginn.
Kveðja frá fjölskyldunni í Moholti

Skólalíf

Eftir frekar rólegar fyrstu vikur í skólanum er núna allt komið á fullt. Búið að vera mikið að gera seinustu tvær vikur og því hafa færslum fækkað hér, ég lofa samt bót í því.

Eitt fagið er eitt stórt verkefni þar sem ég reikna einn hluta af Realfagbygget, svona þetta helsta. Alveg magnað að maður sé búinn að læra í 5 ár og yfirleitt bara verið að skoða einn bita eða súlu en aldrei heila byggingu, hvernig eigi að gera þetta "in the real world". En þetta virðist vera skemmtilegt.

Annað fag heitir Brukonstruksjoner, en flestir ættu að geta áttað sig á um hvað það er. Þar er líka allt komið á fullt og er ég búinn að skila fyrsta verkefninu sem var að reikna krafta á "Smestua" brú.

Þá er ég búinn að fara í tvo verklega tíma í Betongteknologi 3 eða Steyputækni 3, þar er maður búinn að skoða ýmislegt sem kannski er ekkert mikilvægt að segja frá hér. En áhugavert engu að síður.

En án efa er merkilegasta fagið Formgiving. Ég ætla að vitna í Jóa sem lýsti því nokkuð vel á blogginu hjá sér:
Í því eigum við að klippa og líma ásamt því að teikna og lita, og það besta er að þetta er próflaus áfangi. Ég var að fá fyrsta verkefnið og það felst í því að lita gráskala frá 100% svart yfir í 12,5% svart. Fyrirlestrarnir eru líka ágætir og lærir maður þar mikið nýtt og nýtilegt. T.d. að pappír gengur ekki á fjórum fótum og segir beeee og hvernig trefjarnar snúa í klósettpappír til að forðast vandræði. Já prófið að rífa skeinipappír í ræmur bæði langsum og þversum og sjáið hvað ég á við.
Já skólalífið er ekkert grín!

21.9.07

Miðbæjarvandinn

Þetta finnst mér fyndið.

Úti að hlaupa

Loksins kominn sól í Þrándheimi, alveg kominn tími til eftir góðan rigningarmánuð, en við skulum ekki tala meira um veðrið.

Er að reyna að vera duglegur með að fara út að hlaupa þrisvar í viku. Búinn að halda út í ca. mánuð mínus tveir dagar þar sem ég var eitthvað slappur (var ekkert að mér skv. hjúkkunni). En eitt sem er alveg nauðsynlegt það er góður playlisti. Það er alveg furðulegt hvað tónlistarsmekkur manns breytist við það eitt að fara út að hlaupa og pumpa stáli. Tökum dæmi:

Fyrst var ég að hlusta á þetta lag:


og svo skiptir maður yfir í þetta lag og finnst akkúrat ekkert athyglisvert við það!


Þegar ég var að leita af ofangreindu lagi þá fann ég þetta, verðið að tékka á meistara DJ Bobo.

Annars er alveg að koma helgi...

20.9.07

The Special One

Ég efast um að ég sé fyrstur með fréttirnar en Jose Mourinho er hættur með Chelsea. Verð nú bara að segja fyrir mitt leiti að þetta eru mjög góðar fréttir. Ekki nóg með að hann er óþolandi leiðinlegur þá er hann nefnilega helvíti góður stjóri. Þannig að það verður erfitt fyrir Chelsea að fá jafn góðan mann til að sjá um allar stórstjörnunar. Nú er bara að vona að þeir fari í svipað ástand og Real Madrid fyrir nokkrum árum og að Mourinho finni sér annað starf utan Englands.

Kannski á maður Rosenborg að þakka fyrir þetta, maður veit aldrei!

Hér er frétt um málið.

19.9.07

Ég horfði á fótbolta í gær...

Ég horfði á fótbolta í gær, sem betur fer horfði ég á Chelsea vs. Rosenborg í staðinn fyrir Porto vs. Liverpool. Þessi Liverpool leikur var víst einn sá leiðinlegasti í langan tíma og var það aðalega vegna slakrar frammistöðu Liverpool. En djöfull voru Rosenborg flottir að ná jafntefli á Stamford Bridge. Verst að Sheva náði að jafna, hefði nú verið skemmtilegra að taka öll 3 stigin af Chelsea.

16.9.07

Vonbrigði

Engin smá vonbrigði á fimmtudaginn þegar við Stebbi ætluðum að kaupa miða á meistaradeildarleiki Rosenborg.

Miðarnir áttu að fara í sölu kl. 12 og vorum við mættir við tölvurnar á refresh takkanum á slaginu. Það hafa greinilega margir verið tilbúnir líkt og við og var því ómögulegt að komast inn til að kaupa miða. Þannig að eftir nokkra klukkutíma og mörg hundruð refresh þá komumst við af því að allir miðar voru uppseldir.

Mikil vonbrigði því það var eitt sem var alveg bókað að ég ætlaði að gera ef ég byggi í Þrándheimi og það var að fara á meistaradeildarleik.

Næsta í stöðunni er að reyna að fara fyrir utan og kaupa miða "svart" en er í sjálfu sér ekki bjartsýnn að það takist.

En eitthvað er Rosenborg farið að hugsa um leikinn á móti Chelsea á þriðjudaginn því þeir töpuðu á móti Start um helgina. En manni er svona minna sama um gengi liðsins núna því ekki kemst ég á meistaradeildarleik að ári :(