Nú verður vikunni/helginni lýst í myndum.
Í gærdag var svo tekin sú merka ákvörðun að senda drenginn í klippingu og var það bara gamla góða heimilisvélin notuð. Kári sat sallarólegur og horfði á sjónvarið á meðan fögru lokkarnir voru klipptir af. Þannig að nú þarf maður ekki að berjast við drenginn að greiða honum á morgnanna í smá tíma. Ég vorkenni honum bara þegar skipt í miðju tískan kemur aftur...
Ég og Kári fórum í heimsókn til Guðrúnar frænku í morgun upp í snjóríkið við Elliðarvatn. Það var mikið fjör hjá þeim frændsystkinum á Stiga sleðanum hennar Guðrúnar og skiptust við bræðurnir að vera toglyftan.Fjörið tók svo snöggan endi þegar Kári rallýökumaður tók góða vinkilbeygju úr leið og andaði með því að frændsystkinin skutust af sleðanum beint ofan í snjóskafl eftir að hafa klesst á stóran stein. Sem betur fer fór allt vel þó svo að börnum og feðrum hafi verið smá brugðið. En ætli þessu svaðilför dæmist ekki á mig og svo vil ég nú kenna 2 ára barninu mínu smá um :)
Er svo búinn að klóra mig í gegnum það að merkja og skrifa við allar myndirnar frá Köben. Þær eru hérna:
http://picasaweb.google.com/orvars/2008KBen02#






