12.3.08

Liverpool í Evrópu

Það er eitt sem maður verður að viðurkenna er að Liverpool veldur manni sjaldan vonbrigðum í Evrópu.

Þetta var kannski ekki heimsins besti fótboltaleikur en spennandi var hann (þeas fyrri hálfleikur). Rauða spjaldið sem Burdisso var fullkomlega verðskuldað, held að fáir geta þrætt fyrir það að þetta voru tvö gul spjöld og bæði nokkuð klaufaleg. Með að Babel hafi átt að fá rautt er nú bara vitleysa að mínu mati, fólk fær ekki oft gult spjald fyrir öxl í öxl, en vinir okkar hjá andfótbolta vilja meina það.

En eigum við eitthvað að ræða hvað Torres er góður, maður vill bara ekki hugsa út í það ef hann hefði ekki komið til Liverpool. Ekkert smá flott afgreiðsla og það er enginn framherji í heiminum sem ég vildi heldur hafa í Liverpool.

Fyrir næsta tímabil verður bara að kaupa einhver í staðinn fyrir Kuyt í þessu nýja kerfi og einnig góðan vinstri bakvörð, þá er ég nokkuð sáttur.

En þótt að tímabilið í deildinni sé ónýtt þá getur maður alltaf treyst á Liverpool í Evrópu.

11.3.08

Dexter og félagar

Kláraði að horfa á aðra seríu af Dexter í gærkvöldi. Frábærir þættir sem ég fæ bara ekki nóg af, án efa uppáhalds þátturinn minn í dag. Alltaf flott þegar að það koma nýjir frumlegir þættir fram og maður vonar bara að næsta sería verði eins góð og fyrstu tvær. En næsta sería ætti að byrja í sept/okt.

Þá er ég einnig byrjaður að horfa á þætti sem heita Californication. Þessir þættir fjalla um rithöfund sem leikin er af David Duchovny og samband hans við áfengisflöskuna, fyrverandi konu sína og dóttir. Lofa mjög góðu og kemur einnig önnur sería með þessum þáttum.

Svo ber einnig að nefna Chuck sem eru svona skemmtilega öðruvísi grín/spennu þættir. Önnur sería einnig á leiðinni.

Ef einhver getur mælt með einhverjum góðum þáttum þá er það vel þegið því rithöfundaverkfallið er farið að hafa áhrif á áhorf fjölskyldunnar.

10.3.08

Ljósmyndir frá helginni

Ljósmyndir frá helginni eru komnar í mars albúmið.

Hægt að nálgast þær hér:
2008 - Mars

Sól, skíði og ut på tur

Kári, Kristin, Ola, Haakon og Anna í mat (07.03.2008)

Á föstudaginn buðum við vini Kára frá leikskólanum og fjölskyldunni hans í mat. Kári var búinn að vera heima sökum þess að hann tók upp á því að æla í rúmið sitt um nóttina og fór hann því ekki á leikskólann á föstudeginum, þó svo að heilsan hafi svo verið fín. Því var ákveðið að hætta ekki við matarboðið. Kári var búinn að vera tala um Ola vin sinn allan daginn var mjög glaður að sjá hver dinglaði á bjöllinni um kl. 17:30. Þeir léku sér mikið saman, hoppuðu í rúminu og borðuðu snakk og súkkúlaði köku, mikið fjör hjá þeim félögum og gaman að sjá hvað þeir eru góðir vinir. Þegar svona mikið stuð er á mannskapinu þá voru það ansi þreyttir vinir sem kváðu hvorn annan um 8.

Mikið stuð hjá Kára í lyftunni (08.03.2008)

Á laugardaginn var svo farið á skíði í ekkert smá flottu veðri, sól og um 5°C hiti. Kári fékk að prufa nýju skíðin sín og gekk það alveg ágætlega. Fórum ca. 4 ferðir í barnalyftunni og stóð minn maður ágætlega í lappirnar, honum fannst reyndar skemmtilegast að vera í lyftunni en það er annað mál. Svo fórum við eina ferð alveg uppá topp í barnalyftunni og eftir ca. hálfa ferð niður gafst Kári upp enda búinn að vera mjög duglegur að vera á skíðunum sínum.

Anna, Heiða og Krummi í góðu stuði upp í Vassfjellet (08.03.2008)

Krummi og Heiða komu með okkur uppeftir og það sem eftir var af deginum var notaðir í að skíða, stökkva, detta og hlæja mikið. Dagurinn var nýttur vel enda vorum við upp í fjalli frá ca. 10 til 16:30. Lofa myndum bráðlega þar sem kemur sérlega góð sería af Krumma reyna heljarstökk. Svo er hægt að finna myndir á fésbókinni hennar Heiðu af okkur Krumma reyna að "renna" á "rail-i", gekk ekkert sérlega vel og var mikið hlegið við þessar tilraunir.
Hérna ætti að vera linkur á myndirnar hennar Heiðu (veit ekki hvort að fólk þarf að vera skráð á facebook til að sjá þetta).
http://www.facebook.com/album.php?aid=41687&page=1&id=714490148

Haakon, Kritin, Ola, Anna og Kári ut på tur (09.03.2008)

Á sunnudaginn var svo farið í alvöru norskan "ut på tur" með Haakon, Kristin og Ola (sömu og voru í mat á föstudaginn). Við gegnum upp að einu af vötnunum í Estenstadmarka og þar var svo gerður varðeldur að norskum sið, svo var tekið uppá því að grilla innbakaðar pylsur og banana með súkkulaði. Algjör snilld að prufa að fara í alvöru norskan "ut på tur" og hvað þá að láta norsarana kenna sér fræðin. Aftur var mikið fjör hjá vinunum Ola og Kára og gaman að láta draga sig á snjóþotu og líka að fá að vera í burðarpokum á bakinu á foreldrum sínum, og auðvitað þurftu þeir alltaf að gera eins.
Anna yfirgrillari að grilla innbakaða pylsu í Estenstadmarka (09.03.2008)

Jæja þá er maður mættur í skólann og ætli það sé ekki best að koma sér í lærdóminn. Myndir komnar inná barnaland frá helginni og ég set myndir inn fljótlega, vonandi í kvöld.

6.3.08

Ætlar Hillary bara að stúta öllu liðinu?

Það var umfjöllun í Kastljósi í gær um forkostningar fyrir forsetakostningarnar í Bandaríkjunum. Jóhann sýnir þarna myndband sem á að vera auglýsing Hillarys nema hvað að hún hefur tekið aðeins breytta útgáfu af þessari auglýsingu og haldið að það var upprunalega útgáfan.
Spólið fram að ca. 4 mín.
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4365627/0

Jóhanna ætlar greinilega að yfirgefa Kastljósið með stæl.

Hérna er svo rétt útgáfan:

Karlmenni?

Í gærkvöldi horfði ég á kvikmyndina Suburban Girl í staðinn fyrir að sitja á pöbb, drekka bjór og horfa á Liverpool rústa lánlausu liði West Ham 4-0. Gerist þetta eitthvað karlmannlegra? En áhuginn á fótbolta er að kvikna hægt og rólega aftur.

Aftur að Suburban Girl. Held að ég ráðleggi fólki frá þessari mynd. Hún fjallar um unga konu sem nælir sér í eldri mann og hvernig samband þeirra þróast. Ég veit ekki hvað kom fyrir mig þegar ég bauð Önnu að horfa á þessa mynd en ég hélt að þetta væri þessi venjulega klisja (maður verður stundum að vera góður við konuna). Fjallar um voðalega lítið einhvern vegin, ekkert í sjálfu sér illa skrifuð en er bara um ekki neitt. En þess má geta að ótrúlegt en satt fór Sarah Michelle Gellar ekki mikið í taugarnar á mér.
Einkunn: Suburban Girl fær 4.

5.3.08

Tóm leiðindi og skíði

Á mánudaginn var skipulagsdagur á leikskólanum og því frí fyrir börnin. Ætlaði ég mér að vera heima með Kára þar sem Anna var að fara að vinna.

Anna var því mætt á slaginu 7:30 í vinnuna bara til að uppgötva að hún ætti að vera á kvöldvakt, svo var hún föst í umferð á leiðinni "heim úr vinnunni" og var því ekki mætt heim fyrr en um 8:30, hressandi, já maður myndi halda það. Ekki nóg með það heldur þá tóku rúðuþurrkurnar á bílnum að bila (gerist stundum þegar fólk nennir ekki að skafa rúðurnar ;)) í mikilli snjókomu og í ofanálagi við þetta þá var mín búin að týna peningaveskinu sínu. Þetta náði mín að afreka fyrir klukkan 8:30 á mánudaginn, vikan byrjaði vel.

En svo kom minn til hjálpar. Byrjaði á að finna veskið hennar á kafi í barnavagninum, hafði verið þar frá því deginum á undan. Eftir það tók 2-3 klst viðgerð að koma rúðuþurrkunum aftur í lag. Hafðist á endanum. Maður er orðinn svo mikill vélvirki að bræður mínir og faðir mega fara að vara sig. Þannig að þetta fór allt vel að lokum en það var ein sem var í ekkert sérlega góðu skapi um kl. 8:31 þennan dag.

Vildi nú bara deila þessu með ykkur.

Ég gleymdi alltaf að segja frá því að fjölskyldan fjárfesti í skíðum handa yngsta fjölskyldumeðliminum á sunnudaginn. Keyptum notuð skíði af Vassfjellet skíðaleigunni og því drengurinn (rétt rúmlega eins og hálfs árs) orðinn stoltur skíðaeigandi.

Á mánudaginn var svo farið og keyptir skíðaskór á 70% afslætti og var þetta því allt hið besta mál. Anna þurfti reyndar að tuða í afgreiðslumanninum sem ætlaði ekki að selja henni skónna því þeir voru of stórir, en Anna náði að sannfæra hann um að þetta væri meira hugsað fyrir næsta ár (sem þeir eru).

Kári var mjög áhugasamur um skíðin á sunnudagskvöldið og einnig gekk vel með hann á skíðum í Lillehammer. Hins vegar voru gerðar tvær tilraunir á mánudaginn að fara með drenginn út á skíði og hvorug þeirra heppnaðist neitt sérlega vel. Þannig að um helgina verður aftur farið og athugað hvort að litli maðurinn vilji standa á skíðunum. Hérna eru myndir af óhamingjusömum skíðadreng (neðarlega).

Annars er ég búinn að setja fullt af myndum inná picasa ljósmyndasíðuna:
http://picasaweb.google.com/orvars

3.3.08

Gone Baby Gone og Once

Um helgina runnu tvær myndir í gegnum DVD spilarann og verða þær teknar fyrir hér.

Gone Baby Gone (2007)
Ben Affleck leikstýrir og bróðir hans Casey fer með aðalhlutverk í mynd sem gerð er eftir bók sem höfundur bókarinnar Mystic River skrifaði og samnefnd kvikmynd var gerð eftir.
Fjallar um að einkaspæjari (Casey) er ráðin til að hjálpa lögreglunni að finna stelpu sem var rænt. Þetta er Crime/Drama/Mystery mynd sem lýsir myndinni ágætlega. Ben Afflect gerir gott mót með þessa mynd og Casey ásamt öllum hinum eru góðir/góð í sínum hlutverkum. Góð mynd sem ég mæli með.
Einkunn: Gone Baby Gone fær 8.

Once (2006)
Á sunnudaginn var svo horft á Once sem fékk Óskarinn fyrir besta frumsamda lagið, það vakti athygli mína og er ég búinn að hlusta á þetta snilldar lag með Glen Hansard and Marketa Irglova. Hérna er það fyrir áhugasama, það heitir Falling Slowly.



Ég var eitthvað að fikta í myndunum mínum á meðan þessi rann í gegn og var það í sjálfu sér ágætt, þeas að hafa eitthvað að gera. Ekki að hún er leiðinleg bara þetta er meira svona tónlistarmynd, fjallar um tvo tónlistarmenn sem hittast í Dublin, taka upp plötu og dragast að hvort öðru. Áhugaverð mynd með frábærri tónlist en fólk þarf að vita hvað það er að fara útí.
Einkunn: Once fær 6.

Aðrar myndir sem ég hef horft á eru á meðal annars:
Death Proof (2007) fær 8 í einkunn.
The Simpsons Movie (2007) fær 6 í einkunn.
Astrópía (2007) fær 7 í einkunn.
The Brave One (2007) fær 6 í einkunn.
Death Sentence (2007) fær 6 í einkunn.
No Reservations (2007) fær 3 í einkunn.
Vacancy (2007) fær 5 í einkunn.
Wedding Daze (2006) fær 4 í einkunn.

2.3.08

Skíði, bær & meiri skíði

Þá fer enn einni helginni að ljúka (skrifað á sunnudaginn og klárað í dag).

Á föstudagskvöldið fór ég ásamt Krumma upp í Vassfjellet og var skíðað í ca. 4 tíma. Stebbi lét svo sjá sig seinasta klukkutímann (plús ca. 20 mín). Nokkuð hart færi neðst eins og er oft í Vassfjellet en það var búið að snjóa fyrr um daginn þannig að efri hlutinn var góður.
Krummi er með 12 ára skíðaæfinga reynslu á bakinu og Stebbi var einnig að æfa skíði, ekki alveg sjor hvað lengi. Svona æfingaskíða guttar skíða allt öðruvísi en fólk almennt gerir, þeir eru meira fyrir að fara í stórsvigi niður brekkuna og ég var því yfirleitt síðastur niður. Ekki beint það sem ég er vanur, ekki taka því illa Anna ;).

Var svo að gæla við þá hugmynd að fara á hlaupaárs djamm með Krumma seinna á föstudagskvöldinu en lét það þó eiga sig. Endaði í staðinn upp í sófa með bjór og snakk og hafði það gott. Sá ekki eftir þeirri ákvörðun á laugardeginum enda frétti maður að ástandið á mannskapnum hafi verið ansi vafasamt, allavega á myndunum að dæma...

Myndir frá föstudeginum eru komnar inn ásamt restinni af febrúar.
2008 - Febrúar

Laugardagurinn var svo notaðir í að fara niður í bæ og rölta um, seinustu helgar hafa verið fráteknar í annað þannig að gott var að komast aðeins út úr húsi og gera eitthvað skemmtilegt. Skemmtana gildið fór reyndar minnkandi á tímabili þar sem Anna var að draga mig í einhverjar búðir en svo fengu ég og Kári að fara á róló við Nidelva og okkur fannst það voða gaman.

Það var svo farið í fjölskylduferð upp í Vassfjellet á sunnudaginn. Magni og Dóróthea komu með og ég og Anna skiptumst á að skíða. Veðrið var fínt til að byrja með en svo kom mikil snjókoma í lokin, og aftur var færið flott í efri hlutanum en slæmt í neðsta kaflanum. Þá var gott að geta stoppað í miðlyftunni og farið alla leið uppá topp. Ég og Kári renndum okkur svo eina ferð saman og fannst Kára það mjög gaman, eða við höldum það að minnsta kosti.

Myndir frá bæjarferðinni og skíðaferðinni eru komnar í mars albúmið:
2008 - Mars

þannig var nú það...

29.2.08

Bestu erlendu lög ársins 2007

Betra seint en aldrei!

Í jólafríinu tók ég saman bestu lög ársins 2007 að mínu mati. Gleymdi svo alltaf að setja hann hérna inn. Reglurnar voru að ég tók yfirleitt bara eitt lag af hverri plötu þannig að listinn væri fjölbreytilegur.
En hérna er það sem mér fannst best á árinu 2007, þó listinn myndi örugglega líta aðeins öðruvísi út í dag. Set youtube myndbönd við 10 efstu og svo ætti mp3 linkur að detta inn með öllum lögunum.

1. Spoon - The Underdog


2. Okkervil River - Unless It Kicks


3. The New Pornographers - My Rights Versus Yours


4. Stars - The Night Starts Here


5. Modest Mouse - Dashboard


6. The National - Fake Empire


7. Kings of Leon - Knocked Up


8. Tegan and Sara - Back In Your Head


9. The Concretes - Kids


10. Feist - 1234


11. Bright Eyes - Four Winds
12. The Arcade Fire - Black Mirror
13. Josh Ritter - Right Moves
14. James Blunt - 1973
15. Kate Nash - Foundations
16. Madcon - Beggin
17. Of Montreal - Heimdalsgate Like a Promethean Curse
18. Arctic Monkeys - Fluorescent Adolescent
19. Iron & Wine - 09 - Boy with a Coin
20. Editors - Smokers Outside The Hospital Doors
21. Kanye West - Stronger
22. The Fray - How To Save A Life
23. Rihanna - Umbrella (ft. Jay-Z)
24. Band of Horses - Is There a Ghost
25. Patrick Wolf - Bluebells

Þetta er ekkert í fullkomnir röð en ætti að gefa nokkuð góða mynd af því hvað mér fannst skemmtilegt að hlusta á.

27.2.08

Heimför frá Norge

Var í þessu að bóka far með Norrænu (á eftir að fá þetta staðfest) heim til Íslands. Samkvæmt planinu þá tek ég ferjuna frá Bergen 24. júní og verð mættur til Seyðisfjarðar í hádeginu 26. júní. Þannig að ef allt gengur vel ætti maður að vera mættur í Kópavoginn góða um kvöldið 26. júní.
Ég á að skila verkefninu mínu 16. júní þannig að ekki er unnt að fara 17. júní, þannig að þetta virðist vera besti kosturinn.
Anna og Kári munu svo koma heim (til Íslands) með flugi eitthvað á undan mér og hefur 22. júní verið nefndur í þeim efnum.

Var að renna í gegnum ferðina mína á flickr, hægt að skoða hér. Þetta var ansi mikið ævintýri að keyra með stútfullan bíl frá Kópavoginum kl. 20:30 umkvöld með þriggja vikna gutta heima, svo var keyrt alla nóttina til Egilsstaða og farið frá Íslandi 24. ágúst 2006.

Þannig að nú verður fólk bara að fara skipuleggja heimkomu partý...

26.2.08

I'm F******

Þetta er nú með því betra sem er á internetinu.



og engu sparað við að svara þessu...

25.2.08

Júróvísa

Rífandi stemmning í Moholti
Það var merkilegur dagur í Moholti á laugardaginn, þá var nefnilega haldið fyrsta partýið í Herman Krags veg 30. Ákveðið var að efna til Júróvisjon samkomu og voru þeir íslendingar sem við þekkjum boðaðir.

Þessi laugardagslög fóru alveg framhjá manni en maður mátti nú ekki missa af þessu stórviðburði. Ég hélt auðvitað með fyrverandi flokkstjóranum hennar Önnu (Barða) og vinum hans í Merzedes Club en söngkonan náði alveg að klúðra þessu með vægast sagt hörmulegum söng. Dr. Gunna lagið kom mér reyndar á óvart og hefði einnig varið gaman að sjá þá áfram. Get nú ekki sagt að ég búist við miklu frá þessu sigur lagi og reikna ég fastlega með því að þetta verði enn eitt árið sem Íslendingar komast ekki í aðalkeppnina. Finnur kom reyndar með snilldar hugmynd að sameina Ho ho ho we say hey hey hey með This is my life, prufðum þetta live og þetta smell passaði, nú þarf bara einhver góður remix-er að taka sig til og splæsa þessu saman.

Þar sem ekki er hlaupið af því að redda pössun fyrir drenginn er fín lausn fá partýið til sín. Líka undarlega staða að vera með stærstu íbúðina af hópnum sem mættu og dugar heilir 51 fm til þess, það var líka hálf sorglegt, en uppörvandi, að vita til þess að við eigum ekki ljótasta sófann, til hamingju með það Magni :).

En gott kvöld og skemmtilegur félagsskapur, held reyndar að fæstir hafi eitthvað verið að hlusta á lögin, slík var málgleðin hjá hópnum, en þau fengu að hljóma undir.

Verst að Kári vaknaði á slaginu 7 bara nokkuð hress...

21.2.08

Pempía

Þessi mynd var tekin af mínum manni í lok október á síðasta ári, mjög smekklegur ungur maður. Við morgunverðaborðið í morgun var hins vegar annað uppá teningnum. Kári var að borða hafragraut og sullaði eitthvað niður á sig og vildi að ég myndi þurrka honum, svo kom smá hafragrautur á puttana og auðvitað þurfti að þurrka það einnig.

Þannig að fljót skipast veður í lofti og nú er Kári orðin pempía, hver hefði trúað því.
pempía

20.2.08

Lillehammer 2008

2008 Lillehammer


Myndir frá Lillehammer komnar á netið, alveg spurning hvort maður endist í að merkja myndirnar svona vel, tekur meira en endalausan tíma.