21.4.13

Langur sunnudagur


Hljóp að heiman upp í Heiðmörk. Ætlaði að enda að sækja bílinn í vinnuna en gleymdi lyklinum. Hljóp því fyrst fræðsluhringinn með smá auka krók og svo hljóp ég niður í vinnu.
Endaði í 27,3km og hafði eiginlega ekki tíma í meira, hefði verið ágætt að fara upp í 2:30 klst en komast ekki nægilega snemma út til að það gekk upp.

Vikan endaði því í  81km, 6:07 klst og 5 hlaupadögum. Ein interval æfing, ein tempó æfing og ein löng æfing, hefði vilja ná allavega einu degi í viðbót og vera nær 100km en þetta verður að duga. Löppin er að skána en fann aðeins til eftir sunnudags æfinguna, er samt alltaf að verða betri og betri.

19.4.13

6km tempó hlaup

Ákvað að prufa aðeins á hvaða hraða maður gæti mögulega hlaupið í hálfu í vormaraþoninu. Tók 4km upphitun og svo 6km á semi sléttri braut. Byrjaði tempóið við austurenda Elliðavatns og hljóp meðfram Bugðu í kringum Norðlingaholtið, inn að Víðidal og upp brekkuna í Fella hverfið.
Hljóp á 3:55 - 3:53 - 3:58 - 3:52 - 3:48 - 4:09.
Hraðinn sveiflaðist nokkuð mikið eftir því hvar ég var staddur og átti líka erfitt með að finna "réttan" hraða. Sprakk svo alveg á því í Powerade brekkunni upp í Fell í Breiðholti. Var samt fljótur að jafna mig og rúllaði heim og kláraði 14km. Held að formið gæti leyft eitthvað undir 4:00 pace í hálfu, ekki mikið meira en það.
Sól og smá vindur.

18.4.13

Eat and Run eftir Scott Jurek

Scott Jurek er Ultra maraþon hlaupari sem flestir þekka úr bókinni Born to Run. Hann er þekktastur fyrir að vera búinn að vinna Western States 7x, Hardrock 100 1x og Badwater 2x ásamt mörgum öðrum fræknum sigrum.
Hann rekur ævi sína frá því að vera sveitadurgur í Missesota og í það að verða ultra maraþon legend ásamt því að fara út í það hvernig hann gerist vegan (ekki til íslenskt orð yfir það).
Fátt nýtt í sjálfu sér í þessari bók sem ég vissi ekki fyrir en samt ágætlega skrifuð. Gaman að fræðast um æfingar og keppnissögur hjá svona reyndum hlaupara. Það helsta við þessa bók eins og margar aðrar hlaupa bækur eru að þær virka virkilega hvetjandi á mann og manni langar alltaf að fara og hlaupa hundruði km þegar maður er búinn að lesa/hlusta.

17.4.13

Morgunskokk 8km

Rólegt morgunskokk. Fyrsti kílómetrinn var ansi þreytulegur en skánaði aðeins. Aðeins aumur í hæl/hásin og þreyta í löppunum eftir æfingu í gærkvöldi (ca. 8 tímar í hvíld). Hljóp morgunhringinn yfir í Breiðholtið. Logn úti og hiti í kringum frostmark, blautt og smá vottur af hálku.
7,7km á 37:16 ~4:50 pace.

16.4.13

17km rúll

Fór út fljótlega eftir kvöldmat og fór stór hringinn í Heiðmök. Fyrst meðfram vatninu og svo upp í Heiðmörk. Var að reyna að beita mér rétt og rúlla vel áfram.
Gekk fínt og náði að halda góðum meðalhraða mest allt hlaupið. Skyggnið var samt farið að vera ansi lítið á reiðstíginum á leiðinni tilbaka. Pásaði úrið á einum tímapunkti og gleymdi að kveikja aftur. 17 km kláraðir á ca. 1:19 ~4:40 meðalpace.
Gott veður, nánast logn og svo kom hressandi rigning um miðbik, smá vor.

15.4.13

5x1,6K

 Hljóp frá Salalaug á meðan strákurinn var í fimleikum. Flott veður og gott að komast út á meðan sólin er á lofti.
Hljóp niður að Vífilstaðavatni og tók þar 5x1,6K með 2 mín skokk hvíldum. Tók stutta upphitun því ég vildi ná æfingunni á þessum 60 mín sem ég hafði til taks.
Mismunandi hvernig vindurinn hitti á sprettina en gekk fínt að halda svona 3:40-3:43 hraða, fór yfirleitt aðeins of hratt af stað. Vel þreyttur í sprett 4 og 5. Lullaði svo aftur upp að Salalaug og kláraði 15km á 1:02:40.

14.4.13

Vika 15 - 8.04-14.04

Ánægður með æfingar vikunnar. Tók 5 æfingar, hljóp 84,1 km og var 6:20 klst. Eina interval/spretta æfingu, eina semi tempó og eina langa, fyrsta sinn sem ég fer 30km síðan held ég fyrir ári síðan.
Löppin alltaf að vera betri, búinn að fara 2x til sjúkraþjálfara.

11.1.13

Poweradehlaup nr. 4 2012/2013

Mætti í janúar útgáfu af Poweradehlaupinu í gær. Sannarlegt haustveður í lofti; auðir stígar, næstum því logn og smá úði, sem sagt kjör aðstæður.
Fór af stað á eftir fyrsta hópnum og var ekkert að reyna að elta menn þar enda formið ekki þannig þessa dagana. Rúllaði áfram á ca. 3:45ish pace-held ég, allavega sléttu kaflana og gekk það fínt. Mjóbakið var eitthvað aðeins að stríða mér en mun betri en fyrir mánuði síðan þegar ég stífnaði allur upp og ekkert gekk. Missti tvo framúr mér á 3-4km og svo voru tveir aðrir rétt á undan mér, hafði þessa fjóra alltaf í augnsýn en náði ekki alveg að loka bilinu.
Yfir stokkinn eftir ca. 7,5km og þá hélt ég að þeir væri farnir en svo í Rafstöðvarbrekkunni eða eiginlega eftir rafstöðvarbrekkuna þá fór ég að ná að loka bilinu og eftir undirgöng náði ég að stinga mér framúr tveimur af þessum fjórum og enda nokkrum sek á eftir Guðna vinnufélaga. Endaði á ca. 38:20 og nokkuð sáttur við það.

Skemmtilegt hlaup og mikið um ný andlit og allt í einu er maður orðinn hálf gamall í þessum hlaupabransa.
Hérna er smá myndband frá hlaupinu í gær:

10.1.13

Skráning í Laugaveginn 2013

Þá er maður búinn að skrá sig í Laugavegshlaupið sem fer fram 14. júlí næsta sumar. Fyrir þá sem ekki vita er Laugavegurinn 55km gönguleið frá Landmannalaugum að Þórsmörk (Húsadal).

Það hefur ekki verið mikið um skipulagðar hlaupaæfingar hjá mér eftir að ég kom heim frá Boston í apríl, kom mér aðeins af stað fyrir Reykjarvíkurmaraþonið þar sem ég fór í hálf maraþon en eftir það rétt verið að dúlla mér 0-3x sinnum í viku. Hef þó verið duglegur að mæta í Crossfit í vinnunni 2x í viku og ætti að vera búinn að styrkja mig eitthvað.

Nú þarf maður að fara setjast niður og koma sér upp einhverju æfingaprógrammi til að notast við fram að sumri. Ekki búinn að ákveða hvort ég reyni að fara í vormaraþon sem hluti af undirbúning en það á eftir að koma í ljós.

Ætla að reyna að blogga aðeins um æfingar og þannig lagað á þessum vettvangi á næstunni.

9.1.13

Tónlistinn 2012

Nú koma bestu lög ársins 2012. Hafa ber í huga að ég set ekki nema eitt lag með hverjum listamanni á listann til að fá smá fjölbreytileika í þetta. Annars væru nokkur lög frá einhverjum hljómsveitum.

Bestu íslensku lög ársins 2012:
01. - Ásgeir Trausti - Leyndarmál
02. - Jónas Sigurðsson - Hafið er svart
03. - Retro Stefson - Glow
04. - Tilbury - Tenderloin
05. - Valdimar - Yfir borgina
06. - Of Monsters and Men - Mountain Sound
07. - Helgi Júlíus - Stöndum saman (ásamt Valdimar)
08. - Prinspóló - Tipp Topp
09. - Biggi Hilmars - Now Is The Time
10. - BlazRoca - Ásgeir Trausti - Hvítir skór
11. - Skálmöld - Óðinn
12. - Moses Hightower - Sjáum hvað setur
13. - Bubbi & Mugison - Þorpið
14. - Hjaltalín - rack In a Stone
15. - XXX Rottweiler hundar - Klárum allt í kvöld
16. - Raggi Bjarna og Jón Jónsson - Froðan
17. - Kiriyama Family - Weekends
18. - Blár Opal - Stattu upp
19. - Sing Fang - Only Eyes
20. - Lay Low - The Backbone
21. - Borko - Born to Be Free
22. - Magnús Þór og Jónas Sigurðsson - Ef ég gæti hugs
23. - Monotown - Can Deny
24. - The Lovely Lion - Into The Forest
25. - Legend - Sister

Eins og með disk ársins þá er Ásgeir Trausti með lag ársins. Heyrði fyrst í honum á 17. júní á Rútstúni og hann kveikti strax áhuga hjá manni. Svo fóru fljótlega lög að heyrast í útvarpinu og allt fór á fullt.

Bestu erlendu lög ársins 2012:

01. - Mumford & Sons - I Will Wait
02. - The Black Keys - Run Right Back
03. - Jack White - I'm Shakin'
04. - Santigold - The Keepers
05. - Passion Pit - Take a Walk
06. - The Vaccines - I Always Knew
07. - Van She - Idea Of Happiness
08. - The XX - Angels
09. - Lykke Li - I Follow Rivers (The Magician Remix)
10. - The Walkmen - Heartbreaker
11. - Alt-J - Something Good
12. - Beach House - Myth
13. - Edward Sharpe and the Magnetic Zeros - Man on Fire
14. - The Knocks Ft. Mandy Lee - Midnight City (M83 Cover)
15. - Lana Del Rey - Video Games
16. - The Lumineers - Ho Hey
17. - The Neighbourhood - Sweater Weather
18. - The Tallest Man On Earth - 1904
19. - Kendrick Lamar - Cartoon & Cereal mp3
20. - The Shins - Simple Song
21. - Grimes - Genesis
22. - Muse - Follow Me
23. - ME - Naked
24. - Half Moon Run - Full Circle
25. - First Aid Kit - Emmylou

Mumford & Sons með alveg frábært lag, hefði getað valið nokkur lög í efstu þrjú sætin með Mumford & Sons, The Black Keys og Jack White en röðin var ca. svona á þessu.


8.1.13

Plötur ársins 2012

Ég er lista maður, þykir alveg rosalega gaman að lesa allskonar árslista sem koma út í kringum áramótin. Þannig hef ég einnig reynt að setjast niður í kringum áramót og setja á blað bestu plötur ársins og einnig bestu lögin.
Var ekkert sérlega duglegur í ár að fylgjast með nýrri og ferskri tónlist en gerði nú eitthvað af því. Það góða við alla þessa árslista er að þá er kjörið að athuga hverju maður hefur misst af og góður tími til að uppgötva eitthvað nýtt.
En hérna koma bestu plötur ársins að mínu mati:

Bestu íslensku plötur ársins 2012
 1. Ásgeir Trausti - Dýrð í dauðaþögn
2. Retro Stefson - Retro Stefson
3. Valdimar - Um Stund
4. Jónas Sigurðsson - Þar sem himinn ber við haf
5. Moses Hightower - Önnur Mósesbók
6. Tilbury - Exorcise
7. Biggi Hilmars - All We Can Be
8. Kiriyama Family - Kiriyama Family
9. Hjaltalín - Enter 4
10. Skálmöld - Börn Loka

Þó nokkuð sem ég á eftir að rannsaka eins og: Prinspóló, Helgi Júl, Sin Fang, Pascal Pinon, Nóra, Pétur Ben og Ojba Rasta.
Efstu tvö sætin koma kannski ekki á óvart enda langbestu plötur ársins að mati flestra spekúlanta.

Bestu erlendu plötur ársins 2012
 1. Jack White - Blunderbuss
2. The Black Keys - El Camino (des 2011)
3. Mumford & Sons - Babel
4. The Vaccines - Come of Age
5. The XX - Coexist
6. Alt-J - Awesome Wave
7. Passion Pit - Gossamer
8. Beach House - Bloom
9. Muse - The 2nd Law
10. Lana Del Rey - Born To Die

Nokkuð sáttur við árið tónlistarlega séð, mikið af góðu efni, bæði íslensku og einnig erlendu. En Jack White kann þetta og kemur með stórkostlega plötu.
Aðrar áhugaverðar plötur: Edward Sharpe and the Magnetic Zeros, Santigold, Bat for Lashes, First Aid Kit og The Shins.

7.1.13

Gamlárshlaup ÍR 2012

Ég ákvað að skella mér í Gamlárshlaup ÍR þrátt fyrir að hafa lítið hreyft mig undanfarin mánuð sem ég kem kannski að seinna. Búinn að vera slæmur í hælnum (með sjálfgreindan hæspora e.plantar fascitis).
Vrið var ekki alveg að gera sig þegar maður mætti niður í Hörpu ca. 11.30 á gamlársdag. Kalt ca. -1°C og mikill vindur. Var ekki vel upplagður í upphitun og ekki mikil trú á hlaupaforminu.
Að koma í mark. Mynd frá Hlaup.is
Fyrstu ca. tvo kílómetrana var maður eitthvað kraftlaus og svo fór maður að detta í gírinn. Ég, Geir, Þórir og Birkir hlupum saman fyrsta ca 3-4 km og þá slitu Geir og Þórir sig aðeins frá hópnum. Á þessum kafla byrjaði ég að stífna aðeins í bakinu eins og gerist í seinasta Powerade hlaupi án þó þess að vera eins alvarlegt. Reyndi að hugsa sem minnst um þetta og hélt áfram að reyna að hlaupa sem eðlilegast.
Ég og Birkir héldum áfram og Róbert Gunnars bættist í hópinn rétt áður en við beygðum af Sæbrautinni  niður í Vatnagarða. Við skiptumst á að brjóta vindinn og gekk það fínt. Mikill vindur á köflum en var kaflaskiptur. Flugum upp aðal brekkuna í brautinni (upp Klettagarðana upp á Sæbraut). Eftir það kom smá kafli með hliðarvind og svo var mótvindur seinustu 2 km.
Náði að halda orkunni sæmilegri en réð einfaldlega ekki við meiri hraða. Enda lítið um markvissar æfingar frá því í apríl.
3 mín lakari tími frá því í fyrra en brautin var eitthvað styttri þá og einnig betra veður + betri form.
Sáttur við þetta hlaup og alltaf gaman að hlaupa í þessu stemnings hlaupi. Endaði í 13. sæti á 38:48.

22.6.12

Miðnæturhlaupið 2012

Mynd: Birgir Örn Birgisson
Ég hef aldrei áður farið í Miðnæturhlaupið á Jónsmessunni en lengi langað. Hef undanfarin 3 ár verið úti í júní og því ekki komist. Því var kjörið tækifæri núna að mæta til leiks þó svo að ég hafi látið æfingarnar sitja á hakanum eftir Boston maraþonið. Ég fór því í þetta hlaup meira svona sem stöðupróf heldur en með einhver ákveðin tíma sem ég ætlaði að hlaupa á.
Fer af stað á eftir fremstu mönnum og lét tilfinningu ráða, keyrði hratt af stað og slóg svo viljandi af eftir ca. 1 km. Friðleifur fyrri framan mig og Siggi fyrir aftan og sú röð hélst nokkur veginn allan tímann. Tók framúr einum sem sprengdi sig en annars var ég einn næstum því allan tímann.
Gekk ágætlega að rúlla á þessum hraða en átti ekkert mikið inni. Var vel þreyttur þegar maður kom upp að stíflu en svo náði maður að jafna sig á leiðinni niður rafstöðvarbrekkuna góðu :).
Var góður yfir stokkinn og svo tók nokkuð á að koma sér frá Sprengisandi upp að göngubrú yfir Miklubraut. Vantaði aðeins meiri keppni í mann á þeim kafla þar sem maður var nokkuð einmanna. Reyndi svo aðeins að keyra upp hraðann í lokin og gaman að koma inná Röbluna og sjá markið og flottur stuðningur.
Skemmtilegt hlaup og vel staðið að því, allar aðstæður mjög góðar. Tíminn kom skemmtilega á óvart, bjóst við nær 37:30 en endaði á 36:32 og í 7. sæti.

12.5.12

Kópavogsþríþrautin

Mætti í mína aðra þríþraut niðri á Rútstúni í morgun. Tók þátt í fyrra í fyrsta skipti og þótti þetta mjög gaman og ákvað því að mæta aftur til leiks í ár. Þetta er svo kölluð sprett þríþraut og felst í því að synda 400m, hjóla 10km og hlaupa tæpa 3km.
Fín tilbreyting eftir Boston marathon að fara að hjóla og synda smá. Búinn að vera að hjóla í vinnuna og svo reyna að komast í sund 2-3 í viku síðan ég kom heim frá Boston, ekki góður undirbúningur en skít sæmilegur. Óhætt að segja að minn akkelísarhæll sé sundið og hefur það gengið mjög erfiðlega, búinn að vera strögla við að reyna að læra skriðsund og það gengur hægt og illa.

Var mættur niður í Kópavogslaug kl. 8 og byrjaði á að sækja númerið og tímaflöguna, fór svo að undirbúa hjólið á skiptistöðinni. Ekki laust við að smá minnimáttarkennd hefi gert vart við sig þegar ég var að koma hjólinu fyrir innan um alla racer-ana og þríþrautar hjólin. Þarna voru hjól saman komin fyrir tugi milljóna og dýrustu hjólin örugglega að fara langt upp í milljón í kostnaði...góðan daginn.

Sundið
Tók smá upphitun í innilauginni og svo eina buni úti. Fékk í öxlina strax við fyrsta sundtak og það er eitthvað sem ég hef ekki fundið áður, kannski eitthvað með álag að gera en kom ekki að sök. Vorum bara 4 á braut sem var fækkun frá því í fyrra þegar ég var með 8 manns á braut. Fór af stað í skriðsundi og náði mínum 50m þannig, skipti yfir í bringu næstu 50m og ætlaði svo aftur í skrið en sleppti því, var eitthvað vel þreyttur og móður og vissi að ég myndi þá strögla of mikið með skriðsundið. Þannig að ég kláraði bara mitt bringusund á tímanum 9:08 með því að hoppa upp úr lauginni og hlaupa út um dyrnar. Tók vel á sundið og vel móður eftir þetta. Var 29 upp úr lauginni (í mínum aldursflokki) og því nokkrir á eftir mér :)

T1 (Fyrri skiptitími)
Hljóp niður að hjólunum sem voru staðsetta á Rútstúni og fór í skóna (engir sokkar), númera beltið setta á og svo langerma bolur sem gekk illa að komast í, tafði mig smá. Hjálmurinn á hausinn og svo hjólið tekið og hlaupið út af svæðinu með það. T1 var 1:28.

Hjólið
Ákvað að hjóla bara á mínu eigin hjóli og sleppa því að vera að leita uppi racer til að fá lánaðann. Fékk í fyrra hjá Geir og hann var góður en var alltaf að ruglast á gírunum sem voru með annarri uppsetningu en á hjólinu mínu. Fór einnig bara beint í hlaupaskóna en ekki í hjólaskó eins og flestir keppendur (enda á ég ekki slíka).
Byrjaði með því að renna á petalanum og meiða mig og svo rúllaði ég af stað. Man nú ekki alveg hvernig þetta var þarna í byrjun og það komu einhverjir racer-ar framúr mér fljótlega en svo hélst röðin nokkurnveginn óbreytt allan hjólalegginn, ég náði nokkrum og það fóru tveir framúr mér, Gummi Guðna þar á meðal. Hjólið gekk fínt en fann vel fyrir í lærunum og þá sérstaklega upp Urðarbrautina sem er gatan sem þverar nesið við sundlaugina. Endaði á 20:29 og með 19 besta hjólatímann (í mínum aldursflokki).

T2
Brunaði inná skiptisvæðið og bremsaði ansi snögglega við hvíta línu sem mátti ekki hjóla yfir. Hljóp með hjólið og gargaði á fólk sem var fyrir (áhorfendur) kom hjólinu fyrir og hjálminum og svo bara beint úr. Var víst með besta skipti tímann, vann þó í einhverju :). Flestir voru að skipta um skó þarna en ekki ég og náði ég því að vinna smá tíma og kom meðal annars fram úr Gumma Guðna sem hafði náð að vinna smá forskot á mig á hjólinu.

Hlaupið
Lappirnar á mér voru í henglum svona fyrstu 500m, byrjaði að fá seiðing í kálfann og hélt ég væri að fara fá krampa en það slapp til. Langt bil á milli manna en maður náði að rúlla þá inn hægt og rólega. Fannst ég ekki komast í gang fyrr en þegar var ca. 1 km eftir. Heyrði líka í einhverjum nálgast og var ekki að skilja það, þá var það Gummi og það gaf mér smá kraft til að keyra betur upp hraðann. Náði svo nokkuð mörgum í brekkunni upp að Rútstúni og rúllaði þar fram úr Gutta (Guðjóni Trausta) sem gaf svo all svaka lega í á endasprettinum og náði mér. Viljinn hjá honum var svo gríðarlegur að það var ekki séns að ég reyndi að taka hann á seinustu metrunum. Hljóp þetta á 10:45 sem var 4 besti tíminn og ekki alveg nógu ánægður með það. Hefði viljað gera betur þarna enda vann Geir og Gummi mig í hlaupinu...sem gengur náttúrulega ekki :) En lappirnar voru mjög skrítnar fyrstu km og ekki vanur að hlaupa svona strax eftir hjólið.

Endaði svo hlaupið 42:16 og í 18. sæti í mínum aldursflokki og 28 í heildina.
Hérna koma svo tímarnir:
Sund T1 Hjól T2 Hlaup Heild
Röð Af heild Nafn Röð Tími Tími Röð Tími Tími Röð Tími Tími
18 28 Örvar Steingrímsson 29 09:08 01:28 19 20:29 00:24 4 10:45 42:16
Úrslitin eru svo hérna:
http://www.breidablik.is/assets/ymislegt/KopTri_2012_results(1).txt

Frábær keppni og mjög skemmtileg og vel skipulögð. Var reyndar að spá hvað í ósköpunum ég væri að gera hérna þegar ég var kominn svona 300m inn í sundið en það hafðist þó. Klárlega möguleikar á bætingu. Væri gaman ef maður myndi leggja smá áherslu á sundið og ná því góðu og fara hjóla meira.  En það kemur í ljós hvað maður gerir.
Vill þakka Þríkó fyrir frábæra keppni og öllum þeim sem hjálpuðu til.

22.4.12

Boston marathon 2012

Flugum út til Boston á laugardeginum og tókum því nokkuð rólega um kvöldið. Á sunnudeginum var farið á Expo-ið, númerið og annað nauðsynlegt var sótt og svo var rölt um svæðið og hlaupadót skoðað. Gleymdi mér aðeins í að smakka orkudrykki og annað matarkyns en hætti því fljótt því ekki vildi ég koma maganum í uppnám daginn fyrir hlaup. Eftir Expo-ið fórum við í skoðunarferð um bæinn og maður reyndi eftir bestu getu að taka því rólega. Fór svo uppá hótel og tók því rólega fram að kvöldmat.
Fórum þá út að borða í North end og enduðum á Mothers Anna‘s og fékk mér þar eins einfaldan pasta rétt og ég gat valið. Snemma í háttinn til að vera tilbúin fyrir morgundaginn.

Vaknaði um kl. 5 og beið hálfpartinn eftir því að leggja að stað niður að Tremont Street þar sem við Íslendingarnar ætluðum að hittast áður en við myndum leggja af stað til Hopkinton. Boston er ekki eins og venjulegt maraþon þar sem er hlaupinn 42,2 km hringur heldur er það frá pkt. A til pkt B eða rétta sagt frá smábænum Hopkinton og svo er hlaupið til Boston.

Ég, Siggi, Ásgeir og Stefán vorum svo mættir kl. 6 fyrir utan bíóið og förum svo fljótlega upp í bus-ana sem keyrðu okkur til Hopkinton. Voru komnir þar um kl. 7 og tókum því rólega í skugganum og undirbjuggum okkur svo fyrir átökin. Fékk mér tvær hnetusmjörs samlokur í rútunni og drakk smá af vatni og orkudrykk. Sólin skein og hitinn var kominn upp fyrir 20°C þarna um morguninn og átti bara eftir að aukast. Fékk mér svo banana og nartaði í eina tóma beyglu á íþróttasvæðinu.
Ég og Siggi fórum svo að skila dótinu okkar og tókum létta upphitun. Þá loksins áttaði maður sig á því hversu mikill hitinn var og hvernig það væri að hlaupa í þessum hita. Fórum svo og röltum í átt að start-svæðinu og komum okkur í okkar bás. Svo var beðið með eftirvæntingu þangað til að flautan gall og mann hafið fór af stað.

Alveg sama þó að allir skipuleggjendur í hlaupinu og aðrir fjölmiðlar voru að hamra á því að enginn ætti að reyna að hlaupa á sínum besta tíma (PR) útaf miklum hita sem var spáð á mánudeginum, þá var nú erfitt að gefa markmiðið alveg upp á bátinn. Var búinn að æfa mikið á 4:00 maraþon hraða og í lokin fór ég í 3:55 hraða. Þetta myndi skila manni í mark á ca. 2:45-2:49 klst. Markmiðið var því að komast  undir 2:50 og lágmark fannst manni að ná sínum besta tíma eða undir 2:55:13 sem ég átti úr Vormaraþoninu í fyrra (þó svo að sú braut hafi líklegast verið aðeins of stutt). Það var því ákveðið að reyna að keyra út á ca. 4:00 pace-i og sjá hvað maður myndi endast í hitanum. Maður var ekki beint vanur að hlaupa í hátt í 30°C hita.

1km – 15km
Startið var þröngt og vorum við Siggi nokkuð framarlega því í fyrstu bylgju vorum við í bás 2 af 9 og svo elítan fremst. Vorum því innan við mínútu að komast yfir byrjunarlínuna og þá hófst fjörið. Brautin byrjar á frekar brattri brekku niðurámóti og smá erfitt að komast í takt í svona mannþröng. Fyrstu 15 km eru að mestu niðurhallandi og var maður því að passa sig að fara ekki of hratt á þessum kafla. Þessir 15 km gengu fínt og ég og Siggi vorum að hlaupa þetta saman á ca. Sub. 4:00 pace-i og gekk fínt að halda hraða þrátt fyrir hitann. Þarna var mjög þétta á milli manna og mikið um sikk sakk til að komast fram hjá mönnum, sérstaklega þegar komu litlar brekkur. Það hægði yfirleitt á manni hjá vatnsstöðunum sem voru á 1 mílu fresti. Þá þurfti maður að passa sig að komast sér í sæmilega stöðu til að ná í sér Gatorade og svo vatn seinna á vatnsstöðinni.
Maður kom sér fljótlega upp í rútínu að ná sér fyrst í Gatorade, reyndi að drekka slatta af því og svo eitt vatnsglas yfir sig til að kæla og svo annað til að fá sér smá að drekka. Gekk stundum ekki og þá gat maður náð stöðinni sem var á hinni hlið vegarins.
Tímarnir:
5km á 19:44 (3:57)
10km á 29:38 (5km á 19:54 / 3:59)
15 km á 59:51 (5km á 20:13 / 4:03).

Þarna hélt ég að við værum vel undir 4 pace-i en skv. official klukkunni þá var þetta hraðinn á okkur og þarf maður að passa sig á gps vs. raunlengd. Held að maður þurfti að vera ca. 3 sekúndum hraðari en gps-ið segir til að vera á réttum hraða.

15km – 25km
Næstu 10km voru svo nokkuð sléttur kafli. Þegar það fór svo að sléttast úr brautinni þá misstum við aðeins hraðann og maður þurfti að hafa aðeins meira fyrir því að halda hraða. Eftir ca. 17km þá fannst mér við farnir að vera full hægir og gaf aðeins í til að vera nær 4:00 pace-inu þó svo ég hafi verið aðeins yfir því, fannst það samt í lagi útaf hitanum og vildi ekki ofgera hraðann í fyrri hlutanum. Gekk samt ágætlega upp í 20km á 1:20:03 (5km á 20:12 / 4:02). Fór svo í gegnum hálft á 1:24:26 og ennþá allt í góð en lærin farin að þyngjast aðeins.
Náði að halda hraðanum sæmilega upp í 25 km og fór í gegnum þá á 1:40:20 (5km 20:17 / 4:03). Þarna var maður búinn að rúlla ca. 10 km á nokkuð sléttri braut en fyrstu 15 km tóku greinilega nokkuð vel úr lærunum og þarna var maður kominn á ca. lægst pkt. í brautinni. Tímarnir:
20km á 1:20:03 (5km á 20:12 / 4:02)
21,1km á 1:24:26.
25km á 1:40:20 (5km 20:17 / 4:03)


25km-33km
Var mikið búinn að hugsa um að komast upp í 25km með lærin í lagi því þarna taka við 8-9 km af rúllandi hæðum sem endar með sjálfri Heartbreak Hill. Var svona sæmilega sáttur við lærin þó svo þau hafi verið farin að þyngjast. Gekk fínt að hlaupa og var að fara mikið framúr mikið frá ca. 20km til 30km. Fannst brekkurnar ganga sæmilega en lærin farin að þyngjast og hitinn farinn að hafa mikil áhrif. Fékk á þessum kafla fyrstu klakana sem voru algjör guðsgjöf. Fór 30 km á 2:01:26 eða 5km á 21:06 / 4:13. Mikið af brekkum á þessum kafla og fannst ég fljóta með straumnum en var greinilega að missa hraðann.
Það var samt á þessum legg þar sem hitinn orðinn gjörsamlega steikjandi og maður var hættur að spá mikið í á hvaða hraða maður væri að fara heldur var maður þarna kominn í hálfgert survival mode og ætlaði bara að reyna að klára þetta sæmilega.
Áfram hélt maður, lærin orðin nokkuð vel steikt og farið að hægjast á manni. Var alveg viss þegar ég var kominn upp í 32 km að Heartbreak Hill væri lokið en svo kom önnur brekka og það slóg nokkuð á mann. Þessar rúllandi brekkur fóru nokkuð illa með mann og fannst mér niður kaflinn á þeim yfirleitt verri heldur en sjálf brekkan. Þrátt fyrir að lesa mikið um brautina þá held ég að maður hafi samt farið of hratt af stað og ég hefði þurft að eiga meira inni til að tækla þessar brekkur.
Efst uppi á Heartbreak í 33km kom svo Siggi framúr mér og  leit mjög vel út, hann kastaði á mig kveðju og ég sagði honum að lærin voru í steik og reyndi að gera mitt besta. Svo hljóp ég niður Heartbreak Hill brekkuna og það var virkilega vont. Nokkuð löng brekka sem för illa með lærin sem voru fyrir orðin vel þreytt. Hitinn var ekkert að minnka og var maður kominn í nokkuð skrýtið ástand alveg að sálast úr hita og lærin að drepa mig. Fór í gegnum 35km á 2:22:42 eða 5km á 21:16 / 4:15.
35km á 2:22:42 eða 5km á 21:16 / 4:15

33km - 42,2km
Eftir Heartbreak Hill er restin af brautinni nokkuð niðurhallandi og slétt en alltaf einstaka hækkun. Hitinn orðinn ógeðslegur og lærin í steik og áfram skrölti maður þó, það var svo í ca. 38km sem maður var gjörsamlega að sálast og þá var tekin mjög erfið andleg ákvörðun og það var að labba. Þurfti að labba smá til að ná áttum og reyna að þola sársaukann í löppunum. Allt troðið af fólki að styðja og alveg ömurlegt að þurfa að labba, reyndi að fara af stað eins fljótt og ég gat. Þarna voru margir í sömu sporum og ég en samt margir að fara framúr. Kláraði svo 40km á 2:45:39 eða 5km á 22:57 / 4:35. Held að þetta hafi verið versti kaflinn fyrir mig í hlaupinu, að eiga 8-9km eftir og vera að sálast í löppunum er ekki góð skemmtun, eftir því sem styttist því betra er það og reyndi maður ýmiskonar hugaræfingar til að koma sér í gegnum þennan kafla.
Bara 2,2 km eftir en það var alveg nóg. Þarna var maður hættur að fylgjast með umhverfinu sínu og tók ég ekkert eftir því þegar ég fór framhjá Fenway Park. Gekk seinustu vatnsstöðina og líka aðeins ein undirgöng þar sem ég fékk hvatningu frá einu hlaupara og þá drattaðist ég af stað og tók ca. seinustu míluna á hlaupum. Seinustu 5km voru í algjörum áhorfenda göngum og alveg brjálaður stuðningur allan þennan tíma.
Þegar maður beygði svo loks inná Boylston Street þá komst maður loksins á sæmilega siglingu. Heyrði því miður ekki í Önnu sem stóð og öskraði hvatningu til mín, maður var líka smá „out of it“ enda með augun föst á endalínunni og maður gat ekki beðið eftir því að klára. Reyndi samt aðeins að svipast um eftir Önnu en nokkuð erfitt í öllum þessu mannhafi. En hávaðinn var mikill þarna og var þetta eins og draumi að hlaupa í mark með allan þennan mannfjölda að hvetja sig áfram. Rúllaði svo yfir endalínuna á 2:55:42 eða 4:34 pace-i seinustu 2,2km. Gekk ekki lýst því hvað ég var ánægður að þetta sufferfest var lokið.
40km á 2:45:39 eða 5km á 22:57 / 4:35.
42,2km á 2:55:42 eða 4:34


Ég var í sæmilegu ástandi miðað við marga aðra sem voru í kringum mig. Það voru frekar lærin sem voru að drepa mig en ekki vökva skortur. Fékk mína medalíu, vatn og orkudrykki og fór fljótt á „family meeting area“ og beið þar eftir Önnu.
Var að svipast um eftir Sigga en sá hann hvergi. Frétti svo seinna um kvöldið að hann hafi fengið hitasting á 41km og finn alveg mikið til með honum að hafa lent í því svona stutt frá markinu. En hann er heill heilsu og komst vel frá þessu sem betur fer.

Anna fylgdi mér svo upp á hótel enda treysti hún mér ekki einum í þessu ástandi. Svo var farið að fá sér bjór og „rölta“ um Boston. Við Íslendingarnir hittumst svo um kvöldið og áttum gott kvöld saman og deildum okkar sögum um þessa mögnuðu upplifun. Frábær dagur í alla staði þó svo að þetta hafi verð alveg ógeðslega erfitt.

Var með tvær megin áhyggjur fyrir hlaupið. Sú fyrri var hvort að lærin gætu þolað þetta niður hlaup fyrstu 15km og svo rúllandi hæðir á 8-9km kafla akkúrat á þeim tíma sem lærin hafa verið að stífna upp hjá mér. Seinni ástæðan var hvort að maginn myndi halda allri þessari vökva inntöku sem var nauðsynleg í þessum hita. Ég drekk vel og mikið og kannski bjargaði það mér að byrja að labba seinustu drykkjarstöðvarnar og náði þannig vel inn að vökva á seinustu km. En það voru enn og aftur lærin sem voru að klikka í maraþoninu hjá mér enda ekki beint braut sem er þekkt fyrir að fara vel með þau. Held ég þufti að nálgast næsta maraþon sem öðrum hætti og breyta eitthvað æfingaáætluninni til að fá meiri styrk í lærin.
Endaði 30 sek frá mínum besta tíma en náði þó ekki mínu markmiði. En ef maður tekur inn hitann þá er ekki hægt annað en að vera ánægður með þennan tíma.

Fékk mér eitt gel 15 mín fyrir hlaup og svo þrjú önnur á leiðinni, seinasta um km 30 held ég. Var með tvö önnur en tók þau ekki, ætli öll þessi Gatorade drykkja hafi ekki verið nóg til að halda uppi orkustiginu.
Áhorfendur voru alveg magnaðir alla brautina og gerðu allt til að hjálpa manni, dreifa appelsínum, klökum og vatni og einnig að spraut vatni yfir keppendur til að hjálpa við að kæla. Veðrið lék við áhorfendur en ekki keppendur, stundum er það þannig og það er ekkert sem maður getur gert í því. Ánægður að hafa valið þetta hlaup og í lokin ánægður að hafa náð að klára þetta hlaup á sæmilegum tíma þó svo að maður hafi ætlað sér betri tíma. En frábært hlaup með frábæra áhorfendur, frábær borg með frábæru fólki. Maður var að fá hamingju óskir alveg fram á miðvikudag því maður gekk um eins og asni og fólk áttaði sig fljótt á því hvað orsakaði það...